M Eijpe skrifaði:
Bij het telpatroon van model DROPS design: Patroon pu-021Garengroep B\r\n\r\nstaat er 2x hetzelfde bij de uitleg van de kabel: \r\n= zet 3 steken op een kabelnaald en houd deze achter het werk, 3 recht, 3 recht van de kabelnaald \r\n= zet 3 steken op een kabelnaald en houd deze achter het werk, 3 recht, 3 recht van de kabelnaald.\r\nde 2e moet volgens mij \"VOOR\" de naald zijn.
22.07.2018 - 07:46
Sandra Pinkerton skrifaði:
In chart 4, row seven has 2 increases but the next row only shows 1 additional stitch. In Row 15 there are 4 increases but only 1 double decrease. I am not sure what to follow the pattern and ignore the stitch count or adjust the pattern to match the stitch count. Thanks for your help.
10.06.2018 - 00:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Pinkerton, the first row in A.4 (on row 7) is for the increase to the raglan, the 2nd YO will replace the last st in A.4 (= the one that you will dec in A.5 slipping 1 st as if to K, K2 tog, psso). Happy knitting!
11.06.2018 - 09:17
Teresa Luís skrifaði:
O início do esquema A1, começa com uma laçada (esquerda) ou com uma malha em meia (direito)? Eu estava a ler os esquemas da esquerda para a direita, mas ao ver a sequência do esquema A8, parece-me que a leitura será da direita para a esquerda. Fico na dúvida se os esquemas devem ser lidos da esquerda para a direita, ou da direita para a esquerda.\r\nObrigada pela vossa ajuda!\r\nTeresa
03.05.2018 - 11:09SILVIA skrifaði:
Hola, estoy tejiendo este modelo y me pasa que no entiendo cuando dice: " Cada vez que se completa A.8/A.12 1 vez en vertical trabajar 2 repeticiones más de A.8/A.12 B entre A.8/A.12 A y A.8/A.12 C. Cada vez que se completa A.9, A.10 y A.11 una vez en vertical, trabajar 4 repeticiones más de A.10 entre A.9-A.11. " tengo que repetir A8 dos veces más? Gracias!
24.02.2018 - 20:48DROPS Design svaraði:
Hola Silvia. Al trabajar repeticiones verticales aumentamos puntos en cada 2ª fila y por tanto, al finalizar hay más puntos, los suficientes para trabajar 1 repetición más del dibujo central, en este caso A.8/A.12 B. En el segundo caso también se hace lo mismo.
02.03.2018 - 13:41
Gunnel Ekroth skrifaði:
I mönstergrupp A2 och A3, 18 maskor, ska man på varv 1 sticka ihop 2 maskor 2 gånger = 16 maskor kvar. Men hur gör man på varv 3? Då ska man göra likadant enligt skissen men då går det ju inte att sticka ihop 2 maskor för då finns ju bara 1! I ökningstips får jag heller ingen klarhet och där nämns även markörer men var i mönstret nämns det markörer? Alltså hur gör jag för att det åter ska bli 18 maskor i A2 och A3? Tacksam för hjälp!
13.12.2017 - 16:26DROPS Design svaraði:
Hej, då du stickar diagram A.2 och A.3 ska du även göra omslagen enligt diagrammen, då hålls maskantalet konstant på 18 maskor. Markörerna i ökningstipset sätts i varje sida på fram- och bakstycket enligt beskrivningen.
13.12.2017 - 17:55
Winter Grace Jacket#wintergracejacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Peysa með köðlum, gatamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Puna. Stærð S - XXXL.
DROPS 183-10 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A.1, A.7, A.8 og A.12. ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 4 umferð í garðaprjóni í hálsmáli, fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu með ca 8 cm millibili. Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 97-97-105-105-113-113 lykkjur á hringprjón 4 með Puna. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 117-117-129-129-141-141 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu – þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), A.1 (= 3-3-6-6-9-9 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 18 lykkjur), A.4 (= 2 lykkjur), A.5 0-0-1-1-2-2 sinnum (= 0-0-6-6-12-12 lykkjur), A.6 (= 3 lykkjur), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3, A.7 (= 3-3-6-6-9-9 lykkjur), 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur, aukið út eins og útskýrt er í A.1, A.4, A.6 og A.7. Á ermum er aukið út hvoru megin við 12 lykkjur í sléttprjóni, aukið út í annarri hverri umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að ofan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.1 til A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 181-181-193-193-205-205 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, A.8 A (= 3-3-7-7-7-7 lykkjur) A.8 B (= 6 lykkjur), A.8 C (= 2-2-1-1-4-4 lykkjur), A.2 eins og áður, 28 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.3 eins og áður, A.9 (= 10 lykkjur), A.10 0-0-1-1-2-2 sinnum (= 0-0-6-6-12-12 lykkjur), A.11 (11 = lykkjur), A.2 eins og áður, 28 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.3 eins og áður, A.12 A (= 2-2-1-1-4-4 lykkjur), A.12 B (= 6 lykkjur), A.12 C (= 3-3-7-7-7-7 lykkjur), 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur og haldið áfram með útaukningar á ermum. Í hver skipti sem A.8/A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.8/A.12 B á milli A.8/A.12 A og A.8/A.12 C. Í hvert skipti sem A.9, A.10 og A.11 hefur verið prjónað 1 sinni oftar á hæðina eru prjónaðar 4 mynstureiningar fleiri af A.10 á milli A.9 og A.11. Haldið áfram með mynstur þar til aukið hefur verið út alls 25-29-30-35-37-43 sinnum = 317-349-369-409-437-485 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá röngu): Prjónið fyrstu 51-55-59-64-69-75 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 62-70-72-82-86-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 91-99-107-117-127-139 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 62-70-72-82-86-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur, prjónið síðustu 51-55-59-64-69-75 lykkjur (= vinstra framstykki). Stykkið mælist ca 19-21-22-26-28-31 cm frá uppfitjunarkanti. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 209-225-245-265-289-313 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni, A.2 og A.3. Yfir lykkjur í A.8, A.9, A.10, A.11 og A.12 (= 55-63-71-81-91-103 lykkjur á bakstykki og 28-32-36-41-46-52 lykkjur á hvoru framstykki) prjónið nú mynstur eftir A.13. Byrjið í þeirri umferð í A.13 sem fær mynstrið til með að passa með síðustu mynsturumferð í A.8 til A.12 – þær lykkjur sem ekki ganga upp í hliðum með mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út með 6 cm millibili alls 5 sinnum = 229-245-265-285-309-333 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-35-37-35-36-34 cm, fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal í A.2 og A.3 = 217-233-253-273-297-321 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið til baka lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-82-92-98-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkju – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjón/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 14-17-18-22-24-29 sinnum. Eftir allar úrtökur eru 42-44-46-48-50-52 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 44-43-42-39-38-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintergracejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.