Nadette skrifaði:
Bonjour, Je vais adapter les explications de ce snood pour le réaliser avec un tricotin géant. Serait-il possible que Drops développe des modèles avec cet accessoire, alternative intéressante et amusante aux aiguilles circulaires pour ce type d'ouvrages ? Merci
02.11.2018 - 11:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Nadette, votre demande a été transmise à nos stylistes, nos stylistes sont toutefois davantage habituées à la technique de tricot traditionnelle et nous ne pouvons rien vous promettre. Bon tricot!
28.11.2018 - 14:41
Kaja skrifaði:
Ifølge oppskriften skal man øke til 6 masker på hver del når man har delt arbeidet i to. Men etter man har strikket den todelte delen sier oppskriften kun at man skal strikke sammen to masker en gang, ikke to. Dermed sitter man igjen med 11 masker når man setter de to delene tilbake på samme pinne. Er dette en feil, eller er det meningen at de første 20 cm av pannebåndet har 10 masker, mens de neste 20 cm strikkes med 11? På forhånd takk for hjelpen! Mvh
31.10.2017 - 08:09DROPS Design svaraði:
Hei Kaja. Når delene strikkes sammen igjen, skal de 2 midterste maskene strikkes sammen, klipp tråden og trekk tråden igjennom den siste masken som ble strikkes (så disse 2 maskene er ikke lengre med) = 20 masker igjen på pinnen. God Fornøyelse!
03.11.2017 - 09:36
Wrap Around#wraparoundset |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi og hálsskjóli í klukkuprjóni úr 2 þráðum DROPS Air. Stærð S/M – L/XL.
DROPS 182-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEIR ÞRÆÐIR: Notið þráðinn innan úr og utan með dokkunni. Gott er að skipta ekki um báða þræðina í einu, annars verða samskeytin of þykk. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (fram og til baka – á við um eyrnaband): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga/rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjunni slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 2. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónið í hring á hringprjón – á við um hálsskjól): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn Endurtakið umferð 2 og 3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Lesið TVEIR ÞRÆÐIR! EYRNABAND: Fitjið upp 10 lykkjur á prjón 10 með 2 þráðum Air. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21-23 cm skiptist stykkið í tvennt og prjónað er fram og til baka yfir fyrri hlutann þannig (1. umferð = frá réttu): UMFERÐ 1: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið upp 1 lykkju í lykkju á milli næstu tveggja lykkja (= 1 lykkja fleiri). Setjið þær 5 lykkjur sem eftir eru á prjóninn á þráð. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga/rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið 2. umferð 4 sinnum til viðbótar. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á annan þráð. Setjið til baka lykkjur frá fyrri þræði á prjóninn. Prjónið frá réttu þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 6 lykkjur. Nýja kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. Haldið síðan áfram fram og til baka í klukkuprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 4 umferðir til viðbótar. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og leggið þetta stykki aftan við hitt stykkið þannig að stykkin krossi hvort annað. Prjónið yfir fyrstu 5 lykkjur í umferð, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= síðasta kantlykkja á fyrra stykki og fyrsta kantlykkja á seinna stykki). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju sem var prjónuð svo að hún rakni ekki upp. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið við og endurtakið umferð 2 í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 49-53 cm. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman eyrnabandið við miðju að aftan. Saumið nokkur spor í gegnum bæði lögin við miðju að framan þar sem 2 stykkin krossa hvort annað. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Lesið TVEIR ÞRÆÐIR. HÁLSSKJÓL: Fitjið laust upp 62-68 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum Air. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (í hring á hringprjón) – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-29 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wraparoundset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.