Undine skrifaði:
Die Maschen Anschlagszahl von z.B. 52M in Größe 26/28 in Garngruppe B und Nadel 3.5 kann unmöglich richtig sein für ein 4 jähriges Kind! Ich schlage für Größe 39 in Garngruppe A mit Nadel 2.5 sonst immer 60 Maschen an ! Wie ist das gedacht?
23.01.2023 - 19:58
Veronika skrifaði:
Bei der ersten Bilderschrift ist in der dritten Zeile ein Fehler, eine Masche in Rose, die da laut Foto nicht hingehört. Oder täusche ich mich? Lg Veronika
08.10.2022 - 18:24DROPS Design svaraði:
Liebe Veronika, Sie haben recht, eine Korrektur wird erfolgen, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
10.10.2022 - 08:59
Heidi skrifaði:
Mønsteret matcher ikke i ste 26/28. Må gi opp. Har forsøkt å lese nøye men maskene går ikke opp mht mønster.
25.10.2020 - 20:23
åse Westlye skrifaði:
Nei, nå har jeg klart å strikke feil, og må rekke opp igjen! Jeg syns det var veldig rotet og uforståelig med A2A, A2 b og a2c. at alt dette skulle være på ett og samme mønster forsto jeg ikke, og har strikket helt feil. Det burde forklares og illustreres tydeligere!
18.05.2020 - 17:59
åse Westlye skrifaði:
Er det feil i A2A mønsteret? Jeg ser ikke systemet i dette at det i rad 6 og 7 kommer to røde oppå hverandre, når det ellers er annenhver. Det ble veldig rotet. Jeg leter etter et bilde av sokken så jeg selv kan sjekke, men siden jeg strikker 29-31 str viser dere ikke bilde av hele mønsteret. Det skulle jeg ønsker dere ville gjøre.
18.05.2020 - 13:43DROPS Design svaraði:
Hei Åse. Ser at du har funnet ut av det med kommentaren din over, så bra. Det er veldig viktig å lese oppskriften nøye, men dine kommentarer er oversendt til design avd slik at de kan evnt forbedre sine forklaringer. mvh DROPS design
25.05.2020 - 11:13
Annika Fredriksson skrifaði:
I storlek 26/28 bilderna 3 A2A och A2C slutarbetet passar inte ihop med resten av mönstret. Är de fel ritADE
28.10.2018 - 03:37
Anny skrifaði:
Hei, diagrammene er merket feil med farger, noe om jo er veldig irriterende når man som meg bare har fulgt diagrammene og innser etter A3 at fargene er omvendt av det man ønsker og man må rekke opp. Fint om man kan få rettet opp i dette
20.10.2018 - 00:31
Bjørg Aasheim skrifaði:
Hei. Jeg synes dere burde lese igjennom teksten i oppskriften og sammenligne mot hvilke diagram det er henvist til i teksten. Viser også til kommentar jeg har ovenfor.
28.12.2017 - 12:26
Bjørg Aasheim skrifaði:
Hei. Hvorfor er diagrammet tatt vekk på de to største str. I mønsteret til Drops Children 30-12 . Gjelder sokken Vispy sock.
25.11.2017 - 19:42DROPS Design svaraði:
Hei Bjørg. Hvilken diagram mener du mangler? A.2B og A.2C er delt opp i 3 diagrammer (avhengig av størrelsene). mvh Drops design
27.11.2017 - 09:58
Katarina Niemi skrifaði:
Hej, jag tycker att det är några fel i mönstret Diagram A1, varv 3 ska vara 3 vita, 1 rosa, 2 vita Diagram A2A stl 29/32 32/34 Varv 6 bör vara 4 vita
06.11.2017 - 19:14
Visby Socks#visbysocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 24 - 37.
DROPS Children 30-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 12. og 13. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtöku með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-5-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-5-5-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 10-10-10-10 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum bleikur. Prjónið síðan 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-2-6-4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 48-48-54-54-60 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 8-8-9-9-10 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFSTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 er fækkað um 0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-58 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2A (= 3 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 42 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 14 lykkjum) og endið með A.2C (= 3-3-7-7-13 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.2B er fækkað um 8-8-4-4-2 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-56 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 5-5-6-6-7 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-3 í mynsturteikningu er fækkað um 0-0-8-0-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-48-48 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (= 5-5-5-6-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið áfram með A.4 þar til stykkið mælist 18-19-20-20-22 cm. Haldið nú eftir fyrstu 10-10-10-12-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 20-20-20-24-24 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-10-10-12-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum dökk bleikur yfir 20-20-20-24-24 hællykkur í 4-4-4-5-5 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Á eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 9-9-9-11-11 lykkjur hvoru megin við hæl og 20-20-20-24-24 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 48-48-48-56-56 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.4 hringinn eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 2-2-2-3-3 sinnum á hæðina (frá þar sem A.4 byrjaði). Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk bleikur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir að lykkjur hafa verið prjónaðar upp hvoru megin við hæl er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 20-20-20-24-24 lykkjum ofan á fæti slétt saman og 2 síðustu lykkjur á undan 20-20-20-24-24 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-6-6 sinnum = 40-40-40-44-44 lykkjur (þegar lykkjum er fækkað í hvorri hlið þá kemur mynstur A.4 ekki til með að ganga lengur jafnt upp með einni heilli mynstureiningu í hvorri hlið, stillið mynstur af þannig með því að prjóna færri lykkjur með litnum dökk bleikur á milli «doppa» í hvorri hlið). Haldið áfram hringinn þar til stykkið mælist 8-10-11-13-15 cm frá prjónamerki á hæl, nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Prjónið A.5 hringinn (= 10-10-10-11-11 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum dökk bleikur til loka. Þegar stykkið mælist 11-13-14-16-18 cm frá prjónamerki á hæl er sett 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þar til það verða 20-20-20-22-22 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin fyrir tá – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 5 sinnum í öllum stærðum og síðan í hverri umferð alls 2 sinnum í öllum stærðum = 12-12-12-16-16 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-6-8-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #visbysocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.