Katie skrifaði:
I've just started on the sleeve but 21 stitches will never fit 4oynd my wrist it is far to small am I being silly
04.04.2024 - 14:47DROPS Design svaraði:
Dear Katie, that's how the sleeves were designed, if you like the wrist to be tighter, adjust to the desired circumference and don't forget to add more increase to get correct width. Happy knitting!
04.04.2024 - 15:21
Christine skrifaði:
Bonjour, J'aimerai réaliser ce modèle en taille L/XL avec la variété NEPAL, car ANDES pour moi c'est trop gros. Pouvez-vous me conseiller en matière de taille d'aiguille ? Pensez-vous qu'en me basant sur la taille XXL du modèle avec des aiguilles N° 5 (préconisées pour NEPAL), j'obtiendrai une taille L/XL ? Merci d'avance
02.10.2018 - 16:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, vous pouvez remplacer 1 fil Andes par 2 fils Nepal tricotés ensemble (= fil en double) - utilisez notre convertisseur pour connaître la quantité nécessaire pour la taille souhaitée - vous trouverez ici des informations complémentaires sur les alternatives. Bon tricot!
03.10.2018 - 07:32
Denise skrifaði:
Bonjour, j'ai eu des soucis avec les manches qui étaient trop serrées à mon goût . J'ai pris des aiguilles plus grosses et une taille de tricot supérieure mais ce n'est pas une réussite . Dommage car le modèle est plutôt sympa. Cordialement
08.03.2018 - 11:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Denise, vous trouverez un schéma avec les mesures pour chaque taille, si votre échantillon est conforme, vous obtiendrez ces mesures, elles peuvent également vous aider à les ajuster selon vos envies et besoins. Bon tricot!
08.03.2018 - 13:34
Harriet skrifaði:
Ik ben begonnen met het achterpand in de maat XXL. Na afkanten van de armsgaten heb ik, zoals ook beschreven staat, 71 steken over. Het patroon dat dan volgt telt 69 steken. Is dit een fout in de beschrijving of doe ik iets niet goed. Bij de andere maten komen de steken wel overeen.
22.11.2017 - 20:35DROPS Design svaraði:
Hoi Harriet, Er zat inderdaad een fout in het aantal aangegeven steken. Het patroon is net aangepast en zou dus nu moeten kloppen.
25.01.2018 - 12:05
Iris skrifaði:
Ein schönes Projekt für ein Wochenende! Ich habe den Pulli in nebelrosa / blaue Dämmerung nachgearbeitet. Die erste Wäsche verlief problemlos und ich bin mehr als zufrieden. Und das zu dem Superpreis.
30.10.2017 - 11:04
DROPS Design skrifaði:
Colour combinations shown are: A) DROPS Andes 3620, 9020 B) DROPS Andes 0100, 9015
02.10.2017 - 09:04
Nicole skrifaði:
Her mit diesem schlichten, schönen Pullover! Die Hundewolle wird darin phantastisch zur Geltung kommen
09.06.2017 - 21:52
Diana skrifaði:
Ik zie mezelf hier al in lopen hoor. Lekker warm lijkt hij me.
06.06.2017 - 13:33
Nordkapp#nordkappsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með marglitu norrænu mynstri og klauf í hliðum úr DROPS Andes. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um mynsturteikningu A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi. Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 59-61-73-73-79 lykkjur á hringprjón 9 með litnum grænn. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða (merkir hvar klauf byrjar) = 61-63-75-75-81 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 4 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 45-46-47-49-50 cm fellið af 2-3-3-3-3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 57-57-69-69-75 lykkjur. Prjónið 2-2-2-4-4 umferðir með litnum grænn (prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið). Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 3-3-9-9-12 lykkjur), A.2 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar 12 lykkjur), A.3 (= 4-4-10-10-13 lykkjur), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni með litnum grænn. Þegar stykkið mælist 63-65-68-71-73 cm fellið af miðju 17-17-17-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 19-19-25-24-27 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 65-67-70-73-75 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 59-61-73-73-79 lykkjur á hringprjón 9 með litnum grænn. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða (merkir hvar klauf byrjar) = 61-63-75-75-81 lykkja. Prjónið síðan sléttprjón með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-46-47-49-50 cm fellið af 2-3-3-3-3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 57-57-69-69-75 lykkjur. Prjónið 2-2-2-4-4 umferðir með litnum grænn (prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið). Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 3-3-9-9-12 lykkjur), A.2 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar 12 lykkjur), A.3 (= 4-4-10-10-13 lykkjur), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni með litnum grænn. Þegar stykkið mælist 59-60-62-65-66 cm setjið miðju 9-9-9-11-11 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi: 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni = 19-19-25-24-27 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 65-67-70-73-75 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 21-21-23-23-25 lykkjur á sokkaprjón 9 með litnum grænn. Prjónið 12 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8-8-8-6-7 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6.-6.-6.-6.-4. hverri umferð 8-7-2-2-9 sinnum, síðan í 0.-4.-4.-4.-3. hverri umferð 0-2-8-9-2 sinnum = 37-39-43-45-47 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-43-39-40-38 cm fellið af 4-6-6-6-6 lykkjur mitt undir ermi = 33-33-37-39-41 lykkjur. Prjónið nú smá ermakúpu til að flíkin passi betur, prjónið fram og til baka á hringprjón. Fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð þannig: 4 lykkjur 4 sinnum (= fellið af 4 lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið) = 17-17-21-23-25 lykkjur eftir í umferð. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki – saumið í kantlykkju á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermi. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður að lykkju sem fitjaðar voru upp eftir klauf. Klippið frá og festið enda. HÁLSMÁL: Takið upp 44-55 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan sokkaprjóna í kringum hálsmál. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn, prjónið 1 umferð slétt og fellið af með brugðnum lykkjum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordkappsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.