DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Solfest

Prjónuð peysa með köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Nepal.

DROPS 180-16
DROPS Design: Mynstur ne-245
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-650-700-750-800 g litur 2923, skærgulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff/kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (á við um miðu undir ermum):
Aukið út mitt undir ermum þannig – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Byrjið 2 lykkjum á undan A.2/A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.2/A.3, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

UPPHÆKKUN (á við aftan í hnakka):
Klippið frá. Prjónið síðan þannig – byrjið umferðina eftir 11-13-16-18-19-20 lykkjur á bakstykki (= miðja að aftan). Prjónið sléttprjón, A.2 og A.3 eins og áður.
Setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið þar til prjónaðar hafa verið 36-37-39-41-43-45 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-75-79-83-87-91 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið 67-69-73-77-81-85 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 61-63-67-71-75-79 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. Klippið frá. Umferðin byrjar nú á sama stað eins og áður, þ.e.a.s. 16-17-19-21-23-25 lykkjur til hægri (séð frá réttu) frá prjónamerki við miðju að aftan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna áður en þær eru settar saman við og berustykki er prjónað í hring á hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 166-178-194-210-226-246 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 83-89-97-105-113-123 lykkjur (prjónamerki merkir hliðar á stykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 7 sinnum = 138-150-166-182-198-218 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-38-38-38-38 cm fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið) = 61-67-73-81-87-95 lykkjur á framstykki/bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-8-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-11-12-13-13-15 sinnum = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-39-38-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 44-50-54-58-58-60 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 210-234-254-278-290-310 lykkjur.
Prjónið síðan þannig – byrjið umferð eftir 5-4-3-3-4-5 lykkjur á bakstykki: Prjónið * 51-59-67-75-79-85 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 12 lykkjur), 30-34-36-40-42-46 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 12 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 226-250-270-294-306-326 lykkjur í umferð.
Prjónið nú áfram þannig: Prjónið * 51-59-67-75-79-85 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 16 lykkjur), 30-34-36-40-42-46 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 16 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 6-6-6-6-7-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 8-10-11-13-13-15 sinnum (= alls 14-16-17-19-20-22 sinnum).
Eftir allar úrtökur eru 114-122-134-142-146-150 lykkjur í umferð. Til að peysan passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur yfir A.2 og A.3 = 98-106-118-126-130-134 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 33-35-39-43-47-51 lykkjur sléttprjón og fækkið um 3-4-7-9-10-11 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 16-18-20-20-18-16 lykkjur 2 og 2 saman *, prjónið *-* alls 2 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Berustykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.06.2019
Leiðrétting: UPPHÆKKUN (á við aftan í hnakka):
Klippið frá. Prjónið síðan þannig – byrjið umferðina eftir 11-13-16-18-19-20 lykkjur á bakstykki (= miðja að aftan). Prjónið sléttprjón, A.2 og A.3 eins og áður.
Yfirfarið á vefsvæði: 31.10.2019
ERMI:..Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Jardé wrote:

Bonjour, Juste avant de couper le fil pour réaliser la rehausse doit- on terminer par une maille envers du diagramme ou par une maille de transition à savoir une maille endroit ? Après cela je coupe le fil pour réaliser la rehausse et je voudrais savoir si les mailles de transition faisaient partie du dos ou des manches ?

02.03.2024 - 18:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jardé, avant de tricoter la rehausse, tricotez le dernier tour exactement comme avant, en le commençant et en le terminant au même endroit que les tours précédents, coupez le fil. Les rangs raccourcis doivent commencer au milieu du dos, mettez un marqueur si besoin pour mieux repérer le milieu du dos (pour que le ,nombre de mailles tricoté de chaque côté soit symétrique) et tricotez en jersey, avec les torsades comme avant en suivant bien le nombre de mailles pour votre taille. Bon tricot!

04.03.2024 - 08:26

country flag Agnieszka wrote:

Cześć, przerobiłam tył i przód i mam koniec nitki na początku podkroju pachy. Jak teraz dodać rękawy, które też mam już zrobione, skoro na wzorze jest napisane, żeby zacząć okrążenie za 5 pierwszymi oczkami i 51 oczek? Czy nie powinnam się cofnąć z oczkami o 5 idodac rękawy tak, jakjestna filmiku? Czy jak mam zrobione podkroje na rękawach, to mam dokończyć okrążenie aby nitka była na początku podkroju? Z góry dziękuję za pomoc, Pozdrawiam

07.10.2023 - 13:22

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, ja bym to zrobiła jak jest na filmie TUTAJ. Później przerabiając karczek zaczniesz okrążenie za 5-4-3-3-4-5 pierwszymi oczkami tyłu jak w opisie. Pozdrawiamy!

09.10.2023 - 08:57

country flag Jardé wrote:

Bonjour, Concernant la réhausse j'imagine qu'on tricote les mailles comme elles se présentent ? A savoir que sur les rangs retour donc côté envers on tricote les mailles se présentant à l'envers à l'envers et celles se présentant à l'endroit à l'endroit ? Merci beaucoup d'avance.

22.03.2023 - 22:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jardé, effectivement, lorsque l'on tricote les rangs envers de la réhausse, tricotez les mailles des diagrammes comme elles se présentent (pour conserver le motif, vu sur l'endroit) et les autres mailles à l'envers (jersey envers, sur l'envers). Bon tricot!

23.03.2023 - 09:58

country flag Jardé wrote:

Bonjour, je suis arrivée au niveau de la rehausse et je suis coincée. Première question : le dos est il bien le premier côté du tour que l'on tricote ? ( ce n'est pas spécifié dans les instructions ) Deuxième question : j'ai bien 23 mailles pour le devant et le dos et il faut commencer le tour après les 11 premières mailles. ... Mais 23 est un nombre impair. On place le marqueur dans la 12 ème maille ? Merci infiniment de votre aide.

06.03.2023 - 03:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jardé, vous commencez bien par le dos lorsque vous tricotez l'empiècement; comptez les 11 premières mailles après la maille du milieu dos (elle sera tricotée au premier rang sur l'envers: 36 m sur l'endroit puis 73 m sur l'envers, soit 36 m de chaque côté de cette maille du nombre 'impair'). Bon tricot!

06.03.2023 - 10:42

country flag Jardé wrote:

Bonjour, au niveau du raglan il faut diminuer 6 fois tous les 4 tours puis 8 fois tous les 2 tours. Cela fait-il bien 40 tours au total ? Merci beaucoup par avance.

18.02.2023 - 01:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jardé, tout à fait. Bon tricot!

20.02.2023 - 09:08

country flag Dea wrote:

Un'altra cosa, sempre per l'alzata, quando dice " inserire un segnapunti nella maglia successiva sul ferro (centro dietro) e lavorare 36 (taglia più piccola) maglie dopo il segnapunti...intende che quella col segno non viene conteggiata?

28.08.2021 - 14:26

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, si intende dopo il segnapunti. Buon lavoro!

29.08.2021 - 22:42

country flag Dea wrote:

Buongiorno, dove inizia il giro dopo che uno ha fatto l'alzata? Nella spiegazione dice nello stesso punto di prima , quindi 16 maglie verso destra rispetto al segnapunti sul dietro, in sostanza invece che all'inizio del dietro , si parte in mezzo al diagramma della treccia?

28.08.2021 - 14:22

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, dopo l'alzata il giro inizia all'altezza del segnapunti al centro dietro. Buon lavoro!

29.08.2021 - 22:42

country flag Rosanne wrote:

Of moet de laatste zin van de instructie voor de Verhoging misschien zijn: “ De naald begint nu op dezelfde plaats als hiervoor, dus 16 steken richting de rechterkant VANAF (in plaats van OP) de markeerdraad midden achter.”? Dan beginnen de 33 steken net in de kabel rechts achter en lopen precies over het middenachtergedeelte. Klopt dit?

09.02.2020 - 17:08

DROPS Design answered:

Dag Rosanne,

De naald moet je inderdaad beginnen bij waar je was voordat je begon met de verhoging, dus het zou inderdaad zo kunnen zijn dat de minderingen over het voor- en achterpand gemaakt moeten worden.

10.02.2020 - 23:37

country flag Rosanne wrote:

Dank! Nog een laatste vraag: van waar gerekend begint men met de 33 volgende steken. M.a.w. Waar moeten de 16 steken 2 aan 2 recht samen geplaatst worden? Zijn deze 16 steken midden boven de mouwen of midden voor en midden achter? Heel hartelijk dank voor uw hulp.

09.02.2020 - 16:54

DROPS Design answered:

Dag Rosanne,

Het was even puzzelen, maar ik denk dat het de bedoeling is dat je eerst 23 steken breit (in plaats van 33) en dan de volgende 16 steken 2 aan 2 samen breit, deze 16 steken zijn de 12 steken van de raglan, 2 steken van de mouw en nog 12 steken van de raglan. Dit herhaal je vervolgens nog een keer. Dus niet 2 aan 2 samenbreien op de voor- en achterpanden, maar over de raglan- en mouwsteken. Er zit dus denk ik een foutje in het patroon en ik zal dit even doorgeven aan design ter controle

10.02.2020 - 23:31

country flag Rosanne wrote:

Dank u wel. Als ik de verhoging heb gemaakt moet ik 4 steken minderen over elk van de A2 en A3. Echter: dit is tevens de 9e naald van A2 en A3, en moet ik de kabels maken. Hoe combineer ik dit? Waar plaats ik de minderingen?

06.02.2020 - 16:12

DROPS Design answered:

Dag Rosanne,

Het idee is dat je aan het einde van de kabels, dus vlak voordat je de hals rand maakt en klaar bent met de kabels, 4 steken boven elke kabel mindert. Dit doe je door 4 keer 2 steken samen te breien.

09.02.2020 - 11:10