DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Evergreen

Peysa með hringlaga berustykki, klukkuprjóni og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.

DROPS 180-11
DROPS Design: Mynstur z-800
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-500-550-600-650 g litur 7233, gulgrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð og 20 lykkjur með klukkuprjóni verði 10 cm á breidd.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 2,5 – fyrir kanta með garðaprjóni og fyrsti hluti á berustykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 140 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 7. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 7. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 8-8-9-9-10-11 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-18-18-20-22 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-27-27-30-33 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-36-36-40-44 lykkjur brugðið. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-8-9-9-10-11 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við (munið eftir að herða á þræði í hvert skipti sem snúið er við) þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 64-64-72-72-80-88 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI:
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið (stingið inn hægri prjón í lykkjuna á vinstri prjóni frá hægri að vinstri), prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 108-116-122-128-134-140 lykkjur á hringprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-8-12-16-20 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 110-120-130-140-150-160 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Haldið eftir lykkjum á hringprjón 2,5. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru prjónað sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan er aukið út um 110-120-130-140-150-160 lykkjur jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri lykkju á prjóni = 220-240-260-280-300-320 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón, en í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan er næsta umferð prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
Þegar prjónaðar hafa verið 4-4-4-6-6-6 umferðir stroff er síðan prjónað KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI– sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan er skipt yfir á hringprjón 3. Haldið áfram í klukkuprjóni.
Þegar stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (passið uppá að síðasta umferð sé 2. umferð í klukkuprjóni) og prjónið næstu umferð þannig: * Prjónið uppslátt og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 112-132-140-152-168-176 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 332-372-400-432-468-496 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: 49-54-57-63-70-76 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 68-78-86-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= á hlið undir ermi), prjónið 98-108-114-126-140-152 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 68-78-86-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 49-54-57-63-70-76 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er prjónað A.1 yfir miðju 4 lykkjurnar í hvorri hlið, þ.e.a.s. byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, prjónið A.1, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hlið, prjónið A.1 og prjónið sléttprjón út umferðina = 4 lykkjur fleiri. Haldið svona áfram í sléttprjóni og A.1 í hvorri hlið, þ.e.a.s. það verður ein gataumferð í hvorri hlið á fram- og bakstykki og aukið er út um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð. Þegar stykkið mælist 37 cm frá skiptingu eru ca 324-344-360-384-416-444 lykkjur í umferð (ef prjónfestan passar á hæðina jafngildir það 28 útauknings umferðum í hvorri hlið).
Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 68-78-86-90-94-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-17-20-21-22-22 sinnum = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt er fellt af. Ermin mælist ca 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FORMUN:
Til að fá jafna áferð á mynstri í klukkuprjóni er allt stykkið bleytt í lokin. Pressið vatnið varlega úr (án þess að vinda stykkið). Leggið síðan stykkið flatt í rétt form eftir máli og látið þorna.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Nicole wrote:

Hallo zusammen, ich habe angefangen 7 cm gestrickt. Die 6 Reihen kraus am Kragen legen sich auf die Vorderseite um. Ist das normal, geht das durchs Tragen weg? Bin schon am Überlegen alles nochmal aufzuziehen und gleich als rechts/links-Bündchen zu machen . Herzlichen Dank vorab und viele Grüße, Nicole

09.03.2024 - 09:14

DROPS Design answered:

Libe Nicole, ie können den Pullover danach mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Kragen nicht mehr rollen.

11.03.2024 - 07:49

country flag Desvignes Victoria wrote:

J'ai besoin de faire la taille XXXL mais pour l'empiècement je dois augmenter de 176 mailles à intervalles réguliers en partant de 320 mailles pour en obtenir 476. La division ne donne pas un nombre entier: 1.81 . Je fais comment?

15.03.2021 - 17:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desvignes, cette leçon explique comment répartir des augmentations à intervalles réguliers en fonction du nombre de mailles/de diminutions et du résultat, comment arrondir, etc... Bon tricot!

16.03.2021 - 08:25

country flag Winnie Albrecht wrote:

Maschenprobe stimmte, Genau nach Anleitung gestrickt, Leider eine furchtbare Passform, der Pullover sieht nur im Stehen gut aus. Sobald ich sitze oder mich bewege rutscht alles hoch. Schade um die Arbeit

06.01.2020 - 19:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Albrecht, Ihr Strickstück Ihrem DROPS Laden bitte zeigen (auch mal im Foto), gerne bekommen Sie dann persönnliche Hilfe. Viel Spaß beim stricken!

07.01.2020 - 09:14

country flag De Lee Gina wrote:

Evergreen by DROPS Design Gebreide trui met ronde pas, Valse patentsteek en A-lijn, van boven naar beneden gebreid. Maten S - XXXL. Het werk wordt gebreid in DROPS Alpaca. Hoe kan ik dit bestellen in maat M met het nodige materiaal ?

30.01.2019 - 10:18

DROPS Design answered:

Dag De Lee Gina,

Voor maat M heb je 450 g Alpaca van kleur 7233, geel/groen nodig. Deze kun je bijvoorbeeld bestellen via een van onze verkooppunten

30.01.2019 - 16:12

country flag Nanna Thune Andersen wrote:

Hejsa Hvordan downloader jeg denne opskrift? Evergreen Mvh Nanna

22.12.2018 - 14:53

DROPS Design answered:

Hei Nanna. Vi har dessverre ikke noen downloadfunksjon på vår side, da må du kopiere og så lagre den selv, eventuelt ta en screen shot. Vi har en funksjon for å printe den ut om du ønsker det. God fornøyelse

02.01.2019 - 10:06

country flag Bettina Baudach wrote:

Hallo liebes Dropsteam, ich finde das Modell ganz toll, bekomme aber nicht einen so großen Ausschnitt wie auf dem Foto. Müssen mehr Maschen aufgenommen werden? Meine Maschenprobe war korrekt.

29.07.2018 - 17:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Badach, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollen Sie die genaue Maßen wie in der Maßskizze bekommen. Beachten Sie, daß Sie auch beim stricken immer noch die gleiche Maschenprobe haben. Viel Spaß beim stricken!

31.07.2018 - 09:20

country flag Ingrid Cardinaels wrote:

Dit is mijn eerste trui breien van boven naar beneden. Is er een filmpje over het breien met een half achterpand. Ik vind wel filmpjes over raglan mouwen, maar niet dit soort mouw. Ik zit nu vast in de pas bij de laatste meerdering.

27.03.2018 - 13:38

DROPS Design answered:

Hallo Ingrid, Bedoel je de meerderingen die je maakt voordat de steken verdeeld worden voor mouwen en lijf? Je kunt dan zien bij 'Tip voor meerderen'. De meerderingen maak je door een omslag te maken.

02.04.2018 - 14:37

country flag Nicole wrote:

Hallo liebes Drops-Team Ich habe im PAtent einen Fehler entdeckt und nun die beiden betreffenden Maschen „fallenlassen“. Aber ich kann sie jetzt doch nicht mehr richtig hochholen. Habt ihr dafür auch ein Video? Lieben Dank

08.01.2018 - 21:40

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, vielleicht kann Ihnen dieses Video helfen. Viel Spaß beim stricken!

09.01.2018 - 09:37

country flag Christine Roderick wrote:

Love this and your 2 beautiful models. Ordering my yarn today

18.12.2017 - 14:53

country flag Sylvie Deschenes wrote:

Combien de balle de laine je dois acheter si je veux faire la grandeur moyenne avec drops alpaca uni

07.12.2017 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deschenes, en taille M, il vous faudra 450 g DROPS Alpaca / 50 g la pelote Alpaca = 9 pelotes. Bon tricot!

07.12.2017 - 15:21