YM skrifaði:
Que ce passe-t-il, la plupart des modèles que j'aime et que je veux réaliser n'ont pas d'explication dont celui-ci. Pourriez-vous nous dire c'est pour quand les explications. Merci!
11.07.2017 - 15:15
Magnin skrifaði:
J aime le Jaccard et ici le motif est bien valorisé par ce rouge
09.07.2017 - 14:01
Greta Hanssen skrifaði:
Kjempefin!! Venter spent på om mønsteret kommer snart:)
07.07.2017 - 09:02
Pia Kroeze skrifaði:
Wat een mooi patroon; mijn handen jeuken om eraan te beginnen.
03.07.2017 - 14:03
Nanci Cartwright skrifaði:
Now THIS is the Nordic fair isle cardigan, hat and mitts I want to make. I definitely can't wait for these patterns to be published.
30.06.2017 - 23:50
Ingunn Boge skrifaði:
Denne var kjempelekker, med nydelige farge kombinasjoner. Fikk lyst til å strikke den med en gang!!!
26.06.2017 - 14:32
Kate skrifaði:
Mycket fin väntar på mönster
25.06.2017 - 23:41
Marietta Vennebörger skrifaði:
Sehr schöne Jacke die ich gerne nachstricken würde
25.06.2017 - 17:49
Karin skrifaði:
Nice elegant updated patterning on this latest Nordic cardigan, plus matching hat and mittens. See also me-112 (matching swing fit sweater/jumper/pullover).
17.06.2017 - 00:28
Chelin skrifaði:
Beautiful! The sweater, hat and mittens. I'm so nervous to try multi color designs. Should there be videos based on this particular pattern, I will try it. What talent and so much work in designing.
14.06.2017 - 22:37
Rosendal#rosendalset |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Peysu með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Húfu og vettlingum með marglitu norrænu mynstri. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 181-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um peysu): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 16 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 5,86. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. UPPHÆKKUN (á við um aftan á peysu): Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-15 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-42-45-45 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-70-75-75 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.8. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.9 til A.13. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi á peysu): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 26. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 25. og 26. hver lykkja slétt saman. HNAPPAGAT (á við um peysu): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjum slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm, fellið síðan af 7-7-7-7-8-8 næstu hnappagöt með ca 7½-8-8-8½-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-107-110-116-119-122 lykkjur (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan á hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 8 kantlykkjur að framan), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkjur slétt og endið með A.2 (= 8 kantlykkjur að framan). Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan - sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 15-15-17-16-18-15 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 119-122-127-132-137-137 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður (uppslættir frá fyrri umferð eru prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat). Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.3A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-21-22-23-24-24 mynstureiningar 6-5-5-5-5-5 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með A.2 (= 8 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 255-311-325-339-353-401 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er útaukningsumferð (merkt með ör-1 í A.4A) og er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.4A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út 28-14-14-28-42-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4B (= 1 lykkja) og endið með A.2 (= 8 lykkjur) = 283-325-339-367-395-423 lykkjur. Nú er pláss fyrir 19-22-23-25-27-29 mynstureiningar A.4A (14 lykkjur). Haldið áfram með A.4A/A.4B með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Í umferð merktri með ör-2 í A.4A er aukið út um 16-2-20-28-24-16 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 299-327-359-395-419-439 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er síðasta umferðin prjónuð frá réttu og stykkið mælist ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu með litnum dökk bleikur þannig: Haldið áfram með A.2 yfir kant að framan, prjónið 42-46-49-55-61-65 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-91-97-109-121-129 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-46-49-55-61-65 lykkjur brugðið og haldið áfram með A.1 yfir kant að framan (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 199-215-231-255-279-303 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu með litnum dökk bleikur þannig: Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan, prjónið sléttprjón þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út um 10-6-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með A.2 yfir kant að framan = 209-221-233-257-281-305 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Haldið áfram með A.2 yfir kant að framan. Prjónið A.5B (= 1 lykkja), prjónið A.5A þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16-17-18-20-22-24 mynstureiningar 12 lykkjur – ATH: Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og endið með A.1 yfir kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-3 í A.5A yfir 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 221-233-245-269-293-317 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan, prjónið A.6A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni (= 34-36-38-42-46-50 mynstureiningar 6 lykkjur), prjónið A.6B (= 1 lykkja) og haldið áfram með A.2 yfir kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið A.6 þar til stykkið mælist ca 22-23-24-24-24-24 cm frá skiptingu fyrir ermum – stillið af að prjónaðar séu 3 eða 5 umferðir með dökk bleikur á eftir einni umferð með “doppum”. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan, prjónið A.7A þar til 9 umferðir eru eftir á prjóni (= 17-18-19-21-23-25 mynstureiningar 12 lykkjur), prjónið A.7B (= 1 lykkja) og endið með A.2 yfir kant að framan. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu með litnum dökk bleikur þar sem auknar eru út 42-48-48-54-60-66 lykkjur jafnt yfir = 263-281-293-323-353-383 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: A.1 yfir kant að framan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með A.2 yfir kant að framan. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-64-74-80-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum dökk bleikur = 66-72-84-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerki og prjónið A.5 hringinn (= 5½-6-7-7½-7½-8 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með A.4 alveg eins, nema passið að doppurnar verði á sama stað yfir A.5 eins og á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið svona alls 9-12-18-18-18-21 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Í 8. hverri umferð, í L + XL: Í 5. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 48-48-48-54-54-54 lykkjur. Prjónið síðan A.4 þar til stykkið mælist ca 36-36-35-34-32-31 cm frá skiptingu – passið uppá að prjónaðar verði 2-4 umferðir með litnum dökk bleikur á eftir umferð með “doppum”. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-41-40-39-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 104-112 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 100-110 lykkjur. Prjónið A.8 hringinn (= 10-11 mynstureiningar 10 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir útaukningum í A.8 eru 140-154 lykkjur og 10-11 mynstureiningar 14 lykkjur. Í umferð merktri með ör-1 í A.8 er fækkað um 16-18 lykkjur jafnt yfir = 124-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.8 er fækkað um 16-16 lykkjur jafnt yfir = 108-120 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-3 í A.8 er fækkað um 24 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum = 84-96 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 17-18 cm. Prjónið síðan sléttprjón með dökk bleikur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.8 er fækkað um 20-28 lykkjur jafnt yfir = 64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-20 cm er prjónað þannig: * Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur og fækkað um 16-17 lykkjur jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, en í hverri umferð þar sem lykkjum er fækkað, er prjónuð 1 lykkja færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar saman = 16-17 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-9 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 21-22 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stoffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir 12. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) = 52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.9 (= 26 lykkjur), síðan A.10 (= 26 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið upp að 3 svörtu ferningunum í mynsturteikningu er A.11 prjónað yfir þessar 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður í A.9 og A.10. Þegar A.11 hefur verið prjónað til og með umferð 13 (merkt með þríhyrning í mynsturteikningu) og aukið hefur verið út 5 sinnum hvoru megin við op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu, eru 13 þumalfingurs lykkjurnar settar á þráð, prjónið út umferðina = 49 lykkjur. Síðasta umferð í A.9 er prjónuð þannig: Prjónið 19 fyrstu lykkjur í A.9. Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði, prjónið 4 síðustu lykkjur í A.9 og haldið áfram með A.10 yfir þær 26 lykkjur sem eftir eru = 52 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.12 yfir fyrstu 26 lykkjur og haldið áfram með A.10 yfir næstu 26 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir allar úrtökur eru 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Setjið til baka 13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 9 lykkjur aftan við þumal (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjunum sem fitjaðar voru upp og 3 lykkjur hvoru megin við þær) = 22 lykkjur. Haldið áfram með A.11 hringinn og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir allar úrtöku eru 8 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið alveg eins og vinstri vettlingur þar til stroffið hefur verið prjónað til loka og auknar hafa verið út 52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.10 (= 26 lykkjur), síðan A.13 (= 26 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónað hefur verið upp að 3 svörtu ferningunum í mynsturteikninu er prjónað A.11 yfir þessar 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður í A.10 og A.13. Þegar A.11 hefur verið prjónað til og með umferð 13 (merkt með þríhyrning í mynsturteikningu) og aukið hefur verið út 5 sinnum hvoru megin við op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu, setjið 13 lykkjur fyrir op fyrir þumal á þráð, prjónið út umferðina = 49 lykkjur. Síðasta umferð í A.13 er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.10 yfir fyrstu 26 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.13, fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði og prjónið 19 lykkjur sem eftir eru í A.13 = 52 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.10 yfir fyrstu 26 lykkjur og prjónið A.12 yfir næstu 26 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir allar úrtökur eru 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm ofan frá og niður. Prjónið þumal alveg eins og á vinstri vettlingi. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosendalset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.