DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rosendal Jumper

Peysa með hringlaga berustykki og marglitu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S-XXXL.

DROPS 181-2
DROPS Design: Mynstur me-112
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki B)
600-650-700-800-850-950 g litur 32, dökk bleikur
100-150-150-150-150-200 g litur 08, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 07, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 5,8. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka):
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan).
Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-15 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-42-45-45 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-70-75-75 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-84-90 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 87-90-93-99-102-105 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-15-17-16-18-15 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 102-105-110-115-120-120 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er nú hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er prjónað A.1 hringinn (= 17-21-22-23-24-24 mynstureiningar 6-5-5-5-5-5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 238-294-308-322-336-384 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan.
Prjónið síðan A.2 hringinn, en í fyrstu umferð (merktri með ör-1 í A.2) er aukið út um 28-14-14-28-42-22 lykkjur jafnt yfir = 266-308-322-350-378-406 lykkjur. Haldið áfram með A.2 (= 19-22-23-25-27-29 mynstureiningar 14 lykkjur).
Í umferð merktri með ör-2 í A.2 er aukið út um 16-2-20-28-24-16 lykkjur jafnt yfir = 282-310-342-378-402-422 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð með dökk bleikur þannig: 42-46-49-55-61-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-91-97-109-121-129 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-45-48-54-60-64 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 182-198-214-238-262-286 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum dökk bleikur og aukið jafnframt út um 10-6-14-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 192-204-228-240-264-288 lykkjur. Prjónið síðan A.3 (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar 12 lykkjur).
Í umferð merktri með ör-3 í A.3 er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 204-216-240-252-276-300 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (= 34-36-40-42-46-50 mynstureiningar 6 lykkjur). Haldið áfram með A.4 þar til stykkið mælist ca 22-23-24-24-24-24 cm frá skiptingum fyrir ermar – stillið af að prjónaðar séu 2 til 4 umferðir með litnum dökk bleikur á eftir umferð með “doppum” – JAFNFRAMT er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í síðustu umferð = 216-228-252-264-288-312 lykkjur.
Prjónið nú A.5 hringinn (= 18-19-21-22-24-26 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum dökk bleikur þar sem aukið er út um 42-42-48-48-54-60 lykkjur jafnt yfir = 258-270-300-312-342-372 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 5 cm. Þá er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-64-74-80-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-10-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum dökk bleikur = 66-72-84-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerki og prjónið A.3 hringinn (= 5½-6-7-7½-7½-8 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með A.4 alveg eins, nema passið að doppurnar verði á sama stað yfir A.3 eins og á fram- og bakstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið svona alls 9-12-18-18-18-21 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Í 8. hverri umferð, í L + XL: Í 5. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 48-48-48-54-54-54 lykkjur. Prjónið síðan A.4 þar til stykkið mælist ca 36-36-35-34-32-31 cm frá skiptingu – passið uppá að prjónaðar verði 2-4 umferðir með litnum dökk bleikur á eftir umferð með “doppum”. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-41-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2018
Leiðrétting undir UPPHÆKKUN aftan við hnakka
Yfirfarið á vefsvæði: 09.02.2018
ERMI:...Byrjið umferðina við prjónamerki og prjónið A.3 hringinn (= 5½-6-7-7½-7½-8 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með A.4 alveg eins, nema passið að doppurnar verði á sama stað yfir A.3 eins og á fram- og bakstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.10.2018
FRAM- OG BAKSTYKKI:... = 258-270-300-312-342-372 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5...

Mynstur

symbols = dökk bleikur
symbols = ljós bleikur
symbols = ljós brúnn
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með dökk bleikum, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = aukið út hér
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rosendal Jumper

Ildiko, Germany

181-2 Rosendal Jumper

Kat, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Mariona wrote:

Hola! Las indicaciones dicen que el resorte del cuello y el de la cintura/puños es 1d/2r, sin embargo, en la foto me parecen distintos. ¿Cintura y puños no son en 2d/1r?

16.11.2021 - 08:56

country flag Patricia Fuchs wrote:

Ja, es bleibt mir nichts anderes übrig, als es einfach zu kalkulieren und zu probieren, bis ich zufrieden bin :-) Leider habt Ihr mit dieser Maschenprobe nicht sehr viel Auswahl. Es wäre im Allgemeinen super, wenn Ihr mehr Anleitungen für Männerpullover hättet. Ansonsten seid Ihr meistens die besten!!!!! Und Kompliment zu Drops Sky! Tolles Garn!

14.12.2018 - 13:08

country flag Patricia Fuchs wrote:

Ich stricke mit Nadeln 6, nehme Drops Sky zweifädig und komme dabei auf eine (gewaschene) Maschenprobe von 14x22. Für das Halsbündchen habe ich nun 76 M angeschlagen. Für einen Tipp, wieviele Maschen ich nun hinten als Erhöhung (Herrenpullover) stricken muss, wäre ich dankbar. Aber ich verstehe natürlich, dass Sie nicht für jede Anfrage Zeit haben.

14.12.2018 - 12:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, leider können wir Ihnen nicht hier weiterhelfen - vielleicht können Sie die Breite jede verkürzte/verlängerte Reihe in diesem Modell kalkulieren und dann mit Ihrer Maschenprobe anpassen? Die Maschenprobe sollen Sie auch sicher in der Höhe mit kalkulieren. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2018 - 12:50

country flag Patricia Fuchs wrote:

Wie berechnet man im Allgemeinen die Erhöhung im Nacken (ich stricke mit Drops Sky doppelfädig, also eine komplett andere Maschenprobe). Gibt es dafür eine Formel? Wie kommen Sie von 102 Maschen auf 12-24-36-48 usw.?? Wie berechnet man das, ganz allgemein? Ich habe mir schon sehr viele Drops-Anleitungen angesehen und egal, was ich dividiere, ich komme nicht dahinter.

14.12.2018 - 01:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpasse, am besten suchen Sie ein Modell mit Ihrer Maschenprobe und eine Erhöhung - Ihr DROPS Laden kann Ihnen in solchen Fällen weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2018 - 08:47

country flag Tamsin Growden wrote:

I've now finished the jumper but I've a lot of wool left over. I knitted the medium and it came out the correct size but I've got 2 full balls of dark rose and 1 full ball of light beige left. I'm used to having some wool remaining but this seems excessive!

11.04.2018 - 01:46

country flag Tamsin Growden wrote:

I'm just starting the sleeves on the jumper. Re the body there's no instruction to change to 3.5 mm needles for the rib even though the stitiches have been increased to allow for this. I used 3.5mm and cast off with 4mm needle and this looks right. I see that there's been an amendment to use chart A3 instead of A5 but 2 plain rows in rose need to be worked (to give a total of 3 rows between patt rows) before starting A3 to keep the pattern the same as the body.

22.03.2018 - 16:47

country flag Angela Bachels wrote:

Fehler: 1. Nackenerhöhung unvollständig beschrieben. 2. 7te Zunahme in A.1 zu stark, muss auf Reihen 23 und 28 aufgeteilt werden 3. Rumpfteil, letzte Zunahme vor dem Abschlussbund viel zu stark, selbst die Hälfte ist zuviel

13.01.2018 - 08:41

country flag Henriëtte wrote:

Moet de boordsteek van het lijf ook niet met naalden 3,5? Moet je de mouw niet beginnen met A3 (bovenaan mouw), i.p.v. met A5 zoals beschreven?

19.11.2017 - 12:46

DROPS Design answered:

Hallo Henriëtte, Dit patroon is zo ontworpen dat je de boordsteek van het lijf in dezelfde naadl breit als de rest van het lijf. Als je de boord wat meer wilt laten aansluiten kun je er natuurlijk voor kiezen om een kleinere naald te gebruiken. Wat de mouw betreft denk ik dat je gelijk hebt om met A3 te beginnen. Ik geef het even door aan de ontwerpafdeling om te controleren.

06.02.2018 - 17:26

country flag Jana Hermann wrote:

Dobrý deň. Zdá sa mi, že v návode tak anglickom ako aj českom je chyba v časti rukáv. Podľa fotiek modelu by tam mal byť vzor A3 (korešponduje s trupom) a nie, ako je uvedené, A5. A5 je viditeľný len v spodnej časti trupu. Prosím, je môj postreh správny? Vopred ďakujem za odpoveď. Jana

02.11.2017 - 21:26

country flag Antje Heinzmann wrote:

Warum gibt es diese Anleitung nicht mehr in einem Heft zu kaufen, sondern nur noch im Internet?

10.09.2017 - 17:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Heinzmann, die Nachfrage nach Hefte war zu gering, weil die Kundinnen sich die Anleitung lieber direkt selber ausdrücken. Viel Spaß beim stricken!

11.09.2017 - 09:02