Lilianne skrifaði:
Am not sure what to do at the increases where I have only 6 sts?
13.11.2023 - 02:51DROPS Design svaraði:
Dear Lilianne, could you specify which part you are working?
26.11.2023 - 23:37
Fatma KISRANE skrifaði:
Bonjour j ai une laine en acrylique qui peut se tricoter en 6 qu elle serait le nombre de mailles a faire pour tricoter la veste .sinon est ce que je peut la tricoter en XXXL avec l aiguille numero 6 je fais une taille L-XL MERCI
16.09.2023 - 06:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kirsrane, ce modèle se tricote sur la base d'un échantillon de 10 mailles x 14 rangs jersey = 10 x10 cm; c'est grâce à cet échantillon que vous obtiendrez les mesures du schéma correspondant à la taille choisie. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici - retrouvez également d'autres infos importantes relatives à l'utilisation d'une alternative ici. Bon tricot!
18.09.2023 - 08:06
Monica Johansson skrifaði:
När man stickar raglan står det att man skall öka 2 m före och och 2 m efter markören = 4 m emellan hur gör man på nästa varvs ökning fortfarande samma som på första med 4 m emellan Har kört fast tacksam för hjälp
18.10.2021 - 12:15DROPS Design svaraði:
Hei Monica. Start alltid 2 masker før merketråden, lag 1 kast om pinnen, strikk 4 masker (merketråden sitter midt i disse 4 maskene), lag 1 kast om pinnen (= 2 masker økt). Neste gang det skal økes starter du 2 masker før merketråden og det økes som tidligere. Merketrådene er hele tiden mellom de 2 sammen maskene. mvh DROPS Design
18.10.2021 - 13:35
CaptBumblebee skrifaði:
How is the hood closed? Is the cast on edge folded and sewn together?
24.10.2018 - 04:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs CaptBumblebee, that's correct, just fold cast on edge double and sew sts together to close the hood. Happy knitting!
24.10.2018 - 08:24
Ellisen skrifaði:
Love it! Warm for winter. Hope to see the pattern soon.
05.07.2017 - 19:16
Gabriela skrifaði:
Super edel und sportiv! Ein Keypiece ds hat bestimmt nicht jeder
01.07.2017 - 05:50
Sonja Buhr skrifaði:
Dit zal mijn 2de najaarsjas worden van Andes. Vorig jaar al heel blij met een jas van deze wol.
05.06.2017 - 21:59
Sharon Freshour skrifaði:
I love this sweater. I'm hoping its crochet. I'd love to see more crochet patterns.
02.06.2017 - 04:56
Mamieflo skrifaði:
Sans doute pas trop compliqué à tricoter et très joli manteau mais avec des aiguilles 8 ou 9 sans doute, je n'aime pas du tout tricoter la avec cesaiguilles. En plus il faut bien au moins 1 kg , une vingtaine de pelotes.
01.06.2017 - 22:15
Reine#reinejacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hettu, laskalínu og áferðamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Andes og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og venjuleg lykkja (þ.e.a.s. prjónið slétt eða brugðið eins og í A.1) þannig að það myndist gat. Aðrar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. MÆLING: Vegna þyngdar á garninu eru öll lengdarmál tekin þegar stykkinu er haldið uppi, annar verður flíkin of síð þegar hún er mátuð. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 20 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 2,8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca önnur hver og þriðja hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir síðustu 10 lykkjurnar á hvorri hlið (= kantur að framan). ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig (fækkið í umferð með sléttum lykkjum): Prjónið fyrstu lykkjuna í umferð slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 10 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 3 cm frá prjónamerki í kanti við miðju að framan. Fellið síðan af næstu 2 hnappagöt með ca 10 cm á milli hverra. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. HETTA: Fitjið upp 70 lykkjur á hringprjón 9 með 1 þræði Andes + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 fram og til baka með 3 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34 cm – lesið MÆLING, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-18-18-18-14-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 52-52-52-52-56-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í kant við miðju að framan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 til baka frá röngu þannig: Prjónið 15-15-15-15-16-16 lykkjur (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (passið uppá að prjónamerkið komi út á réttu), prjónið 6 lykkjur (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 10-10-10-10-12-12 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 6 lykkjur (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 15-15-15-15-16-16 lykkjur (= vinstra framstykki). BERUSTYKKI: Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur með 3 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-15-16-18-20-22 sinnum = 164-172-180-196-216-232 lykkjur í umferð. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, þegar stykkið mælist 3, 13 og 23 cm. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm frá öxl og niður – munið eftir MÆLING! Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 29-30-31-33-36-38 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 34-36-38-42-46-50 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið næstu 38-40-42-46-52-56 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 34-36-38-42-46-50 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 29-30-31-33-36-38 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-112-120-128-140-152 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt í 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið – látið síðan þessi prjónamerki fylgja með stykkinu. Haldið áfram með A.1 eins og áður með 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út ca í 12. hverri umferð (= 6. hverri umferð frá réttu) alls 7 sinnum í öllum stærðum = 132-140-148-156-168-180 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-56-58-59-60-60 cm frá skiptingu – munið eftir MÆLING, prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur áður en fellt er laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 83-86-89-92-95-97 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið 34-36-38-42-46-50 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-6-8-8-8-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-50-54-60 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir með A.1 er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í ca annarri hverri umferð alls 4-5-5-5-5-6 sinnum, fækkið síðan lykkjum í 12.-12.-6.-6.-4.-2. hverri umferð alls 4-4-6-7-9-10 sinnum = 22-24-24-26-26-28 lykkjur eftir. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-39-38-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brettið uppá uppfitjunarkant og saumið saman til að loka toppnum á hettu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #reinejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.