DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Svalbard

Prjónuð peysa með marglitu norrænu mynstri, garðaprjóni og kraga að framan í stroffprjóni úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-17
DROPS Design: Mynstur ai-088
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-400-400 g litur 03, perlugrár
150-200-200-250-250-250 g litur 01, natur
50-100-100-100-100-100 g litur 10, þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS STÁLTALA, Hringlaga (stál) NR 542: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
* Prjónið A.1 einu sinni á hæðina, síðan A.2 einu sinni á hæðina *, endurtakið frá *-* til loka. A.1 + A.2 mælist saman ca 43 cm á hæðina.

ÚRTAKA (á við um miðju að framan):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 185 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 4,9.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 5. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um kraga að framan):
Aukið út um 1 lykkju í lok hverrar brugðnu mynstureiningar (séð frá réttu) með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja í skiptingunni á milli slétt og brugðið. Prjónið þráðinn snúinn brugðið svo að ekki myndist gat.
Næsta skipti sem aukið er út, gerið það í lok hverrar sléttrar einingar og þráðurinn í bili er prjónaður snúinn slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti í kraga að framan (þegar flíkin er mátuð).
Fellið af frá réttu í brugðinni einingu. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 lykkjur brugðnar saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Efsta hnappagatið á að vera ca 18-19-20-21-22-23 cm frá öxl og niður, 3 næstu í annarri hverri brugðinni einingu (teljið út frá efsta hnappagati hvar fella á fyrir neðsta hnappagati).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Að lokum er kragi prjónaður að framan með því að prjóna upp lykkjur við miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 185-197-215-245-257-287 lykkjur á hringprjón 5 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 3 lykkjum slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff en eftir 5. hverja umferð er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (þetta er gert til að stroffið dragist ekki saman). Þegar stroffið mælist 15 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 38-38-44-50-50-56 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 147-159-171-195-207-231 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm (eftir A.1 er haldið áfram með A.2 alveg eins).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 32-35-37-42-44-50 lykkjur (= framstykki), fellið af 4-4-6-6-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 75-81-85-99-103-115 lykkjur (= bakstykki), fellið af 4-4-6-6-8-8 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 32-35-37-42-44-50 lykkjurnar (= framstykki). Framstykki og bakstykki eru prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 75-81-85-99-103-115 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-0-2-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-4-4-5 sinnum = 73-77-81-83-87-89 lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 13-13-13-15-15-15 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 29-31-33-33-35-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 32-35-37-42-44-50 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli við miðju að framan – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í stærð S + M + L þegar stykkið mælist 62-63-64 cm (lykkjum fækkar ekki einu sinni til viðbótar í öðrum stærðum). Eftir allar úrtökur/útaukningar fyrir handveg og hálsmáli eru 29-31-33-33-35-36 lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 36-36-36-48-48-48 lykkjur á sokkaprjón 5 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun stykkis (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið MYNSTUR hringinn eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-9 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi (aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju í umferð – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur). Aukið svona út með 3½-3-2½-3-2½-2 cm millibili alls 12-13-15-11-13-14 sinnum = 60-62-66-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-45-42-41-39 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 4-4-6-6-8-8 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 2-2-3-3-4-4 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-1-3-3-6 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar á hvorri hlið þar til stykkið mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum og fellið LAUST af þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumi axlasauma.

HÆGRI KRAGI AÐ FRAMAN
Byrjið frá réttu neðst niðri á hægra framstykki og prjónið upp ca 122 til 140 lykkjur meðfram framstykki að miðju aftan í hnakka á hringprjón 5 með litnum perlugrár (prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem auknar eru út lykkjur jafnt yfir til 149-155-161-167-173-179 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (með byrjun frá miðju aftan í hnakka): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni (frá réttu verða 3 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur sléttar lykkjur neðst niðri á framstykki og 3 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju aftan í hnakka).
Þegar kraginn að framan mælist 2 cm er sett 1 prjónamerki 38-38-38-44-44-50 lykkjur taldar frá miðju aftan í hnakka og niður. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu yfir þessar 38-38-38-44-44-50 lykkjur (= 6-6-6-7-7-8 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING (þetta er gert til að kraginn leggist fallega þegar hann er brotinn niður). Þegar kraginn að framan mælist 4 cm er aukið út alveg eins í hverri sléttri einingu (= 6-6-6-7-7-8 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri brugðinni einingu þegar kantkraginn að framan mælist 6-6-6-7-7-7 cm og í hverri sléttri einingu þegar kraginn að framan mælist 8-8-8-9-9-9 cm. JAFNFRAMT þegar kraginn að framan mælist 7-7-7-9-9-9 cm fellið af fyrir 4 HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Eftir alla útaukningu eru 173-179-185-195-201-211 lykkjur í umferð. Þegar kantkragi að framan mælist 9-9-9-11-11-11 cm fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KRAGI AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu við miðju aftan í hnakka og prjónið upp lykkjur alveg eins og í hægra kraga að framan. Prjónið eins hægri kragi að framan, nema spegilmynd, þ.e.a.s. fyrsta umferðin með stroffi er prjónuð frá röngu þannig (= frá neðst á framstykki): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur sléttar *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kraga að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið kragann saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana. Þegar kraginn er brotinn niður verða 4 lykkjur garðaprjón við miðju að aftan með 3 lykkjum slétt hvoru megin við þær.
Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og staðsetjið tölurnar. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með perlugráum
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu með perlugráum
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með natur
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með þoku
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja með natur
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt með natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman með natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = í þessari umferð eru prjónaðar 2 fyrstu lykkjurnar í A.1/A.2 í stað 1. lykkju í A.1/A.2 og 1 kantlykkja með garðaprjóni í lok umferðar (á við um umferð 41 í A.1 og umferð 29 og 51 í A.2).
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Maria wrote:

Ich habe eine Frage zu einer Anleitung von Drops design(Svalbard) Ich verstehe die Erklärung zur Reihe mit dem Pfeil der nach links zeigt nicht. Was genau bedeutet das? „In dieser Reihe die ersten 2 Maschen von A1/A2 statt die 1. Masche von A1/A2 stricken und am Ende der Reihe 1 Randmasche kraus rechts Stricken“. Fehlt da nicht ein Verb?

18.12.2023 - 16:10

DROPS Design answered:

Liebe Maria, am Ende von diesen Reihen (mit dem Pfeil) wiederholen Sie das Diagram bis 3 Maschen übrig sind, dann stricken Sie die 2 ersten Maschen vom A.1 bzw A.2 und 1 Randmasche Krausrechts. Viel Spaß beim stricken!

19.12.2023 - 08:14

country flag Kerstin Strömwall wrote:

Undrar om jag kan får diagrammet i en pdf-fil så att jag kan lägga in den mitt program KnitCompanion? Måste förstora mönstret då jag ser dåligt. Har köpt Air-garn så jag vill börja sticka snarast! Tacksam för svar./Kerstin Strömwall

25.12.2022 - 19:04

country flag Kerstin Strömwall wrote:

Är framkanten enfärgad eller hur randar man den? Blir inte bra med aviga på räta på rätsidan. Tänkte sticka enfärgad eller randig nedifrån och upp och sy på den efteråt. Kan man göra det? Dessutom sticka bålen på rundsticka med steek i mitten och klippa. Snyggare mönsterstickning då som i norska tröjor. Gör så även för ärmen. Är det OK?

25.09.2022 - 09:04

DROPS Design answered:

Hei Kerstin. Stolpen strikkes i 1 farge, perlegrå. Man strikker opp masker fra retten innenfor 1 kantmaske, deretter strikkes det 1 pinne rett fra vrangen, så 1 pinne rett fra retten. Deretter starter man å strikke 3 rett / 3 vrang. Du kan strikke stolpen nedenifra og opp og sy den på tilslutt, bare tilpass den (blir litt anderledes stolpe enn hva du ser på bildet). Du kan fint strikke rundt og klippe opp. Ermene strikkes rundt, men når arbeidet måler 46-45-45-42-41-39 cm felles de midterste maskene og ermene strikkes frem og tilbake i ca 4-5-5-8-9-11 cm. mvh DROPS Design

26.09.2022 - 11:46

country flag Dagmar wrote:

Braucht man wirklich nur so wenig Wolle??

13.01.2022 - 17:31

DROPS Design answered:

Liebe Dagmar, 1 Knäuel DROPS Air ist 50 g und ca 150 Meter - sollte Ihre Maschenprobe (in der Breite sowie in der Höhe) stimmen, dann stimmt auch die Garnmenge. Viel Spaß beim stricken!

14.01.2022 - 09:12

country flag Diane wrote:

Merci beaucoup Drops. C'est beaucoup plus clair. De ce que je peux constater en ce moment c'est un merveilleux modèle. J'ai eu beaucoup de plaisirs à le monter.

06.04.2021 - 14:16

country flag Diane wrote:

Modèle 181-17 En ce qui concerne le col et les augmentations afin que le col tombe bien: les augmentations entre deux mailles se font-elles à tous les rangs aller-retour ou aux deux rangs? Ou aux deux cm comme l'a mentionnée une autre correspondante?

04.04.2021 - 20:50

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, vous augmentez - sur l'endroit - à 2 cm puis à 4 cm puis à 6-6-6-7-7-7 cm et enfin à 8-8-8-9-9-9 cm. !bon tricot!

06.04.2021 - 13:56

country flag Danièle Berry wrote:

Merci pour votre réponse, j'ai encore une question, je suis vos instructions pour les augmentations mais cela fait quand meme des trous ????

10.02.2021 - 18:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berry, vous augmentez pour le col/la bordure devant en relevant le fil du rang précédent, entre 2 mailles comme par ex dans cette vidéo - si vous n'aimez pas le résultat, vous pouvez essayer en tricotant 2 fois la même maille. Bon tricot!

11.02.2021 - 06:31

country flag Danièle Berry wrote:

Bonjour, je ne comprends pas les explications pour faire la bordure devant droit et col, si j'augmente comme vous l'indiquer je n'ai plus mes cotes 3 mailles envers et 3 mailles endroit car j'augmente 6 fois tous les deux centimetres est ce normal ?

09.02.2021 - 14:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berry, effectivement, dans les côtes du col (= les 6 à 8 sections en côtes du haut, selon la taille), vous allez augmenter d'abord à 3 m end/4 m env, puis à 4 m end/4 m env, puis à 4 m end/5 m env, puis à 5 m end/5 m env mais les côtes de la bordure du devant (les autres mailles jusqu'aux 3 m point mousse en bas) se tricotent toujours en côtes 3 m end/3 m env jusqu'à la fin. Bon tricot!

09.02.2021 - 16:06

country flag Veerle wrote:

Moet toer 43 wel gewoon bij het begin beginnen ? Klopt het dan nog wel ?

05.02.2021 - 18:48

country flag Veerle wrote:

Toer 41 bedoel ik !

05.02.2021 - 15:30