Vicky skrifaði:
Hi. I'm looking for some help. I'm struggling separating off for the sleeves. (Size M) I think the first 56 stitches (first 96 actually ) are patterned and part of the front (or back?) and not sleeves?
24.04.2018 - 16:28
Denise Bowen skrifaði:
I am looking for your size charts or some information about measurements for your sizes. Thank you very much.
05.04.2018 - 19:34DROPS Design svaraði:
Dear Denise, since each and every piece is different, differently stíled, and uses different ease, there is no one general size chart. However, you can see the measurements of each desing on the diagram below the pattern. Happy Crafting!
05.04.2018 - 23:23
Agnes Lagoutte skrifaði:
Bonjour ... Vous publiez beaucoup de modèles à travailler avec des aiguilles circulaires ... n'étant qualifiée avec cette méthode ... est-il possible de tricoter ces modèles avec des aiguilles traditionnelles ? Si oui ... est-il possible d'en voir les explications ? Merci d'avance .
28.02.2018 - 17:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lagoutte, vous trouverez ici quelques informations pour ajuster un tricot sur aiguilles droites. N'hésitez pas à essayer les aiguilles circulaires à l'aide de nos vidéos, beaucoup les ont finalement adoptées après avoir osé essayé. Bon tricot!
28.02.2018 - 17:48
Mona Aarvik skrifaði:
Strikket denne med Drops Safran. Nydelig kjole, veldig fornøyd med resultatet. Men heklet fastmasker to runder øverst i halsen da den ble for løs synes jeg.
31.07.2017 - 14:35
Gry skrifaði:
På bærestykket, etter økningene der det står: "neste omgang strikkes slik" ... strikk de første 52 maskene til erme, på begynnelsen av omgangen har jeg mønster, og ikke erme. Det med de 4 maskene som skal strikkes i mønster i hver side av for- og bakstykket virker også gresk. Er det feil i oppskriften? Kan det forklares bedre?
12.06.2017 - 08:30DROPS Design svaraði:
Det er helt ok at strikke de første masker på ryggen først, sætte de næste masker (ærmemasker) på en tråd, slå nye masker op (under ærmet), strikke forstykket, sætte ærme-maskerne i den anden side på en tråd og slå nye masker op under ærmet. Klip tråden Hvis du ikke får de 4 yderste masker i hver side til at gå op i det mønster du har strikket på bærestykket, så strikker du dem i glatstrik. Nu fortsætter du under BOL. God fornøjelse!
13.06.2017 - 13:47
Tuula skrifaði:
Drops Muskat värikartasta ja tarkemmin väri nro 14 , jonka itse määrittelisin tummaksi violetiksi/lilaksi . Miksi saan kuitenkin vaalean violetin väristä lankaa ? Lähinnä Muskat 04 harmaalla murrettuna . Olen ostanut 2 eri liikkeestä samalla lopputuloksella. Lanka on väriä 14 , mutta värikartan nro 14:n kanssa sillä ei ole mitään tekemistä.ja kyse ei ole PCni näytön värivirheestä.
01.03.2017 - 19:00
Lulù skrifaði:
Mi piacerebbe molto realizzarlo!! Delizioso!
05.01.2017 - 18:17
Aline skrifaði:
Prachtig!
22.12.2016 - 00:17
Chiara skrifaði:
Bello bello bello
18.12.2016 - 18:41
Franca skrifaði:
Carinissimo!
16.12.2016 - 10:30
Marie#mariedress |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki, gatamynstri og rúllukanti í hálsmáli, stykkið er prjónað ofan frá og niður úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-7 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 142 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 11,8. Í þessu dæmi þá er prjónuð ca 11. og 12. hver lykkja saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hliðar): Prjónið fram að brugðnu lykkjum á hlið, prjónið fyrstu 2 lykkjur brugðið saman, prjónið þar til 2 brugðnar lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur brugðið saman. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNIG (berustykki): Mismunandi er aukið út eftir stærðum. Stærð S, M og L: Aukið út um 1 lykkju við hvert merki. Stærð XL, XXL og XXXL: Aukið fyrst 2 lykkjur við hvert merki, síðan er aukið út um 1 lykkju við hvert merki. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið fram að fyrsta merki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á undan næsta merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (merkið er staðsett hér). Endurtakið á hinni hliðinni (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU ÞANNIG: Prjónið fram að fyrsta merki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (merkið er staðsett hér). Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). ATH: Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt! Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 138-142-148-154-162-168 lykkjur á hringprjóna 4 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= í skiptingu á milli sléttprjónuðu ermi og mynstri aftan á kjól). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 12-12-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir) = 126-130-134-140-148-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum. Prjónið mynstur þannig: * Prjónið A.1 alls 11-12-13-13-15-17 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, setjið eitt merki hér, prjónið 16-14-12-15-11-6 sléttar lykkjur (ermi), setjið eitt merki hér, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Nú eru 4 merki í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð (= umferð með stjörnu í A.1) byrjar útaukning við hvert af 4 merkjum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið út 1-1-1-2-2-2 lykkjur í annarri hverri umferð 11-14-16-4-5-6 sinnum og aukið um 1 lykkju í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð 4-4-4-18-20-23 sinnum. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 91-99-107-107-123-139 lykkjur á milli merkja við framstykki og bakstykki. Endurtakið síðan A.2 yfir hverja mynstureiningar A.1. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 274-298-318-348-388-430 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 15-17-18-18-20-22 cm frá uppfitjunarkanti og niður (meðtalinn rúllukantur í hálsmáli). Næsta umferð er prjónuð þannig: ATH: Í stærð S, M og L er prjónað í þessari umferð 4-4-3 lykkjur af mynstri A.2 í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Ef ekki er nægilegt pláss fyrir gatamynstur (bæði uppsláttur og úrtaka) eru prjónaðar sléttar lykkjur (í stað uppsláttar og úrtöku) yfir 4-4-3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónið fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur eins og áður og setjið á þráð, prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-69-73-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 52-56-61-69-73-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og setjið inn fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur sem settar voru á þráð á sama þráð (= 56-60-64-69-73-78 lykkjur á þræði) og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 178-194-210-234-266-302 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt merki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-6-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við merki). Passið uppá að umferðin byrji við annað merkið undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur þannig: Prjónið 8-8-8-6-6-7 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 9-10-11-13-15-17 sinnum, prjónið 17-17-17-13-13-15 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 9-10-11-13-15-17 sinnum, prjónið 9-9-9-7-7-8 lykkjur brugðið. Nú eru 18-18-18-14-14-16 lykkjur brugðið í hvorri hlið meðtöldum brugðnu lykkjunum í A.2. Þegar stykkið mælist 4 cm í öllum stærðum byrjar úrtaka í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hliðar)! Fellið af í 3.-3.-3.-4.-4.-3. hverri umferð alls 8-8-8-6-6-7 sinnum (= 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið) = 146-162-178-210-242-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-15 cm aukið út þannig: Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-9-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 lykkja brugðið (merkið er staðsett hér). Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-9-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 lykkja brugðið (merkið er staðsett hér) = 164-182-200-236-272-308 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. Haldið áfram með útaukningu, þ.e.a.s. aukið út til skiptis hvoru megin við brugðnu lykkjurnar, í 12. hverri umferð 7 sinnum til viðbótar = 290-322-354-418-482-546 lykkjur. Prjónið síðan með brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og A.2 yfir A.2 þar til stykkið mælist 60-60-60-61-61-61 cm, en passið uppá að prjónuð sé ein heil mynstureining til loka á hæðina. Prjónið brugðnu lykkjurnar eins og áður og prjónið A.3 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 470-522-574-678-782-886 lykkjur í umferð. Stykkið mælist alls 84-86-88-90-92-94 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið þræði. KANTUR Á ERMUM: Setjið til baka lykkjurnar af þræði á sokkaprjóna 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-12-14 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 64-68-74-81-85-92 lykkjur. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, hringinn á sokkaprjóna. Fellið af. Klippið frá og festið þræði. Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mariedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.