DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Marie

Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki, gatamynstri og upprúlluðum kanti í hálsi, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-7
DROPS Design: Mynstur r-715
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-650-700-750-850-900 g litur 60, ljós ísblár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 fyrir kanta með garðaprjóni/kanta á ermum – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 142 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 11,8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 11. og 12. hver lykkja saman.

ÚRTAKA (á við um hliðar):
Prjónið fram að brugðnu lykkjum á hlið, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar brugðið saman, prjónið þar til 2 brugðnar lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur brugðið saman. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð).

ÚTAUKNIG (berustykki):
Mismunandi er aukið út eftir stærðum.
Stærð S, M og L: Aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki.
Stærð XL, XXL og XXXL: Aukið fyrst 2 lykkjur við hvert prjónamerki, síðan er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki.
AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG:
Prjónið fram að fyrsta prjónamerki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki er staðsett hér).
Endurtakið á hinni hliðinni (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð).
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU ÞANNIG:
Prjónið fram að fyrsta prjónamerki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki er staðsett hér). Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð).
ATH: Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt! Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 138-142-148-154-162-168 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= í skiptingu á milli sléttprjónuðu ermi og mynstri aftan á kjól). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 12-12-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA (jafnt yfir) = 126-130-134-140-148-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum. Prjónið mynstur þannig: * Prjónið A.1 alls 11-12-13-13-15-17 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 16-14-12-15-11-6 sléttar lykkjur (ermi), setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Nú eru 4 prjónamerki í stykkið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umferð (= umferð með stjörnu í A.1) byrjar útaukning við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út 1-1-1-2-2-2 lykkjur í annarri hverri umferð 11-14-16-4-5-6 sinnum og aukið um 1 lykkju í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð 4-4-4-18-20-23 sinnum. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 91-99-107-107-123-139 lykkjur á milli prjónamerkja við framstykki og bakstykki. Endurtakið síðan A.2 yfir hverja mynstureiningar A.1. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 274-298-318-348-388-430 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 15-17-18-18-20-22 cm frá uppfitjunarkanti og niður (meðtalinn upprúllaður kantur í hálsi).
Næsta umferð er prjónuð þannig:
ATH: Í stærð S, M og L er prjónað í þessari umferð 4-4-3 lykkjur af mynstri A.2 í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Ef ekki er nægilegt pláss fyrir gatamynstur (bæði uppsláttur og úrtaka) eru prjónaðar sléttar lykkjur (í stað uppsláttar og úrtöku) yfir 4-4-3 lykkjur í hvorri hlið.
Prjónið fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur og setjið á þráð, prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-69-73-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-56-61-69-73-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og setjið inn fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur sem settar voru á þráð á sama þráð (= 56-60-64-69-73-78 lykkjur á þræði) og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 178-194-210-234-266-302 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-6-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Passið uppá að umferðin byrji við annað prjónamerkið undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið mynstur þannig: Prjónið 8-8-8-6-6-7 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 9-10-11-13-15-17 sinnum, prjónið 17-17-17-13-13-15 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 9-10-11-13-15-17 sinnum, prjónið 9-9-9-7-7-8 lykkjur brugðið. Nú eru 18-18-18-14-14-16 lykkjur brugðið í hvorri hlið meðtöldum brugðnu lykkjunum í A.2. Þegar stykkið mælist 4 cm í öllum stærðum byrjar úrtaka í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (á við um hliðar)! Fellið af í 3.-3.-3.-4.-4.-3. hverri umferð alls 8-8-8-6-6-7 sinnum (= 2 lykkjur brugðið á hvorri hlið) = 146-162-178-210-242-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-15 cm aukið út þannig:
Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-9-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 lykkja brugðið (prjónamerki er staðsett hér). Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-9-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 lykkja brugðið (prjónamerki er staðsett hér) = 164-182-200-236-272-308 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. Haldið áfram með útaukningar, þ.e.a.s. aukið út til skiptis hvoru megin við brugðnu lykkjurnar, í 12. hverri umferð 7 sinnum til viðbótar = 290-322-354-418-482-546 lykkjur.
Prjónið síðan með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og A.2 yfir A.2 þar til stykkið mælist 60-60-60-61-61-61 cm,
en passið uppá að prjónuð sé ein heil mynstureining til loka á hæðina.
Prjónið brugðnu lykkjurnar eins og áður og prjónið A.3 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 470-522-574-678-782-886 lykkjur í umferð. Stykkið mælist alls 84-86-88-90-92-94 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMUM:
Setjið til baka lykkjurnar af þræði á sokkaprjóna 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-12-12-14 nýju lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 64-68-74-81-85-92 lykkjur. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, hringinn á sokkaprjóna. Fellið af. Klippið frá og festið enda.
Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.03.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI:.Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 91-99-107-107-123-139 lykkjur á milli prjónamerkja við framstykki og bakstykki....Prjónið fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur og setjið á band, prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-69-73-78 lykkjur á band fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-56-61-69-73-78 lykkjur á band fyrir ermi og setjið inn fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur sem settar voru á band á sama band (= 56-60-64-69-73-78 lykkjur á bandi) og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónstefna
symbols = í þessari umferð byrjar útaukning í mynstureiningum með sléttum lykkjum á hvorri öxl – sjá útskýringu í uppskrift!
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag ADRIANA wrote:

Ciao. Sto lavorando la taglia M, ma alla fine degli aumenti dello sprone mi risultano 300 maglie e non 298. Sono 96+96 (motivo A2 * 12 davanti e dietro) +8 (4*2 maglie legaccio alla fine dei motivi) + 50 *2 (punti a maglia rasata) = 96+96+8+50+50=300. Dove ho sbagliato? Grazie mille

24.02.2019 - 23:18

DROPS Design answered:

Buongiorno Adriana. Dopo gli aumenti, le maglie sono: 96 m per il diag A2, 2 m rov, segno, 50 m dir, segno, 1 m rov, 96 m per il diag A2, 2 m rov, segno, 50 m dir, segno, 1 m rov, in tutto 298 m. Molto probabilmente c'è 1 m in più prima dei diagrammi A2. Buon lavoro!

25.02.2019 - 14:56

country flag Christina wrote:

Hallo liebes Drops Team, ich bin mit dem Rapport A1 mit allen Zunahmen fertig, Gr. M 298 Maschen. Laut Anleitung, soll ich je 60 M für die Ärmel und je 89 M im Muster stricken. Ich habe aber je 50 M für die Ärmel und 99 M je Mustersatz. Ist meine Aufteilung falsch oder hat sich ein Fehler in der Anleitung eingeschlichen? Danke und VG

11.08.2018 - 13:15

DROPS Design answered:

Liebe Christina, entschulding für die späte Antwort, Anleitung wird hier korrigiert, danke für Ihren Geduld. Viel Spaß beim stricken!

18.03.2019 - 09:25

country flag Christina wrote:

Hallo, ich grüble über die Raglanlinie. In der Anleitung steht, bis 1 Masche vor Markierer, 1 Umschlag, 1 rechts, dann bis eine Masche vor dem nächsten Markierer. Beim ersten Markierer sind aber zwei linke Maschen. Stricke ich die letzte linke Masche vor dem ersten Markierer dann rechts ab? VG Christina

07.08.2018 - 08:07

DROPS Design answered:

Liebe Christina, Sie stricken bis zum ersten Markierer (= nach den 2 M li), dann Markierer, 1 M re, 1 Umschlag, dann rechts stricken bis 1 M vor dem nächsten Markierer übrig ist (=Ende der Ärmel), 1 Umschlag, 1 M re, Markierer, 1 M li. Viel Spaß beim stricken!

07.08.2018 - 09:30

country flag Shadé Sidihakis wrote:

Hee, nog een vraagje: Er staat dat ik de eerste 52 steken op een hulpdraad moet zetten voor de mouw, maar de eerste paar steken zijn niet de rechte steken voor de mouw maar steken in het patroon. Hoe moet ik verder?

20.06.2018 - 21:08

DROPS Design answered:

Dag Shadé, Je hebt inderdaad gelijk dat de rechte steken op de hulpdraad moeten staan voor de mouw en niet de steken in patroon. Momenteel wordt het patroon gecontroleerd door het design-team en hopelijk komt er spoedig een antwoord in de vorm van een correctie.

25.06.2018 - 10:32

country flag Shadé Sidihakis wrote:

Ik heb een vraagje. Nadat ik A1 heb afgemaakt, hoor ik te beginnen aan A2 en dan elke 4e naald 1 steek te meerderen bij de markeerders. Dat zou betekenen dat ik 16 naalden zou moeten breien, maar A2 is maar 8 naalden hoog. Moet ik A2 in de hoogte herhalen of ben ik ergens de fout in gegaan?

10.06.2018 - 22:15

DROPS Design answered:

Dag Shadé, Klopt! A.2 herhaal je steeds in de hoogte. Dit is het patroon dat bijna over de hele lengte van de jurk steeds herhaald wordt.

12.06.2018 - 10:23

country flag Vicky wrote:

Hi. With regards to my query on 26/04 - do you have an update yet please? I'm really keen to continue with my knitting. Thanks.

05.06.2018 - 15:56

DROPS Design answered:

Dear Vicky, Yes the sleeves do not have the lace pattern. You knit the lace pattern (A.2) in the back and front when you separate sleeves from front and back. Happy Knitting!

03.09.2018 - 15:43

country flag Sabine Krämer wrote:

Da fehlen immer noch die 4 zunahmen in jeder 4 Zen runde bevor ich A2 beginne

04.06.2018 - 15:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Krämer, die Zunahmen werden nur über die Ärmel gearbeitet, nicht über die Maschen für Vorder- und Rückenteil = 16 M (Größe S) + (1 Zunahme x 11 Mal in jeder 2. Runde + 1 Zunahme x 4 M in jeder 4. Runde x 2 (Anfang und Ende von Ärmel) = 16 + 22 + 8 = 46 M für jeden Ärmel - und wenn A.1 1 Mal in der Höhe gestrickt wird haben Sie 88 M für je Vorder- und Rückenteil. Wenn die Zunahmen für die Ärmel fertig sind haben Sie: 88x2 + 46x2 + 6 li. M = 274 M. Viel Spaß beim stricken

04.06.2018 - 16:02

country flag Susi Krämer wrote:

Die Anleitung stimmt nicht A1wurde komplett gestrickt und mit 11zunahmen Und dann in jeder 4ten runde 4 mal zunehmen das reicht für A2 nicht Anleitung korigieren

03.06.2018 - 14:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Krämer, wenn A.1 1x in der Höhe gestrickt wird, haben Sie 8 M in jedem A.1. Jetzt A.2 (= 8 M) über jedes A.1 stricken. Viel Spaß beim stricken!

04.06.2018 - 10:05

country flag Martina wrote:

Selbes Problem wie Vicky (Englisch): Ich denke, man müsste nach allen Zunahmen in der Passee die ersten 96 Maschen im Muster weiterstricken und dann 50 Maschen für die Ärmel stilllegen (Gr. M). Falls ich falsch liege, wo liegt mein Denkfehler?

28.04.2018 - 19:58

DROPS Design answered:

Liebe Martina, die Frage wurde unser Design-Team weitergeleitet, sie werden die Anleitung so bald wie möglich überprüfen. Danke im voraus für Ihren Geduld.

30.04.2018 - 10:07

country flag Vicky wrote:

Hi. I'm looking for some help. I'm struggling separating off for the sleeves. (Size M) I think the first 56 stitches (first 96 actually ) are patterned and part of the front (or back?) and not sleeves?

26.04.2018 - 11:00

DROPS Design answered:

Dear Vicky, thanks for your feedback, our Design Team will have a look. Thank you very much in advance for your patience.

26.04.2018 - 13:16