DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Chevron Delight

Peysa prjónuð ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-6
DROPS Design: Mynstur bs-118
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-400-450-500-550-600 g litur 1306, púður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir sléttprjón verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 10,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 10. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með prjónamerki við miðju að framan/miðja að aftan og í hvorri hlið á ermi (þ.e.a.s. hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki, á undan 3. og 6. prjónamerki og á eftir 2. og 5. prjónamerki).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ATH: Misjafnt er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og kemur fram í útskýringu.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og miðju undir ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkju færri)

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, * prjónið 2 lykkju slétt saman *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), * takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 4 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 124-124-132-132-148-148 lykkjur á hringprjóna 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 6 umferð GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 4. umferð er aukið út um 12-12-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 136-136-152-152-172-172 lykkjur. Endurtakið útaukningu í 6. umferð = 148-148-172-172-196-196 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjóna 3 og prjónið næstu umferð frá vinstri öxl að aftan þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 30-30-36-36-42-42 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar 6 lykkjur), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið lykkjur eins og A.2 (= miðja að aftan), prjónið A.3 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar 6 lykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið A.1 yfir næstu 12 lykkjur (= 2 mynstureiningar 6 lykkjur), prjónið A.2 (= 1 lykkja), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju (= 13 lykkjur á hægri ermi á milli 2. og 3. prjónamerkis), prjónið A.1 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið lykkju eins og A.2 (= miðja að framan), prjónið A.3 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 lykkjur, setjið 5. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið A.2 (= 1 lykkja), prjónið A.3 yfir næstu 12 lykkjur, setjið 6. prjónamerki á undan næstu lykkju (= 13 lykkjur á vinstri ermi á milli 5. og 6. prjónamerkis).
Nú eru 6 prjónamerki í stykki.

Haldið svona áfram með mynstur (A.1-A.3 er endurtekið til loka). JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir að prjónamerkin eru sett í byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út í hverri umferð alls 6-12-10-22-18-30 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 28-28-30-28-34-32 sinnum (= alls 34-40-40-50-52-62 sinnum).
ERMI:
Aukið út í hverri umferð alls 0-3-4-2-0-0 sinnum, í annarri hverri umferð alls 29-32-33-37-40-41 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 1-0-0-0-2-3 sinnum (= alls 30-35-37-39-42-44 sinnum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið mælist stykkið ca 20-22-23-25-28-30 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). Nú eru 64-70-76-86-94-104 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (= 129-141-153-173-189-209 lykkjur á fram- og bakstykki meðtaldar lykkjur með prjónamerki í) og 73-83-87-91-97-101 lykkjur á hvorri ermi = 404-448-480-528-572-620 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið eins og áður fram að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna eins og áður (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), setjið næstu 73-83-87-91-97-101 lykkjur (þ.e.a.s. lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður fram að 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju eins og áður (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 5. prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), setjið næstu 73-83-87-91-97-101 lykkjurnar (þ.e.a.s. lykkjur á milli 5. og 6. prjónamerkis) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi og setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja = 270-294-330-370-402-442 lykkjur í umferð. Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Færið umferðina til svo að byrjunin verði mitt undir ermi í hægri hlið á stykki þegar flíkin er mátuð (þ.e.a.s. flytjið yfir næstu lykkjur á hægri prjón án þess að prjóna þeim fyrst). Prjónamerkin fylgja nú með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur eins og áður – ATH: Nýjar lykkjur undir ermi í hvorri hlið eru prjónaðar inn í mynstur, passið uppá að mynstrið speglist undir ermi (þ.e.a.s. hvoru megin við prjónamerki). JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með 1. og 4. prjónamerki alveg eins og áður og fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 4 lykkjur fleiri og 4 lykkjur færri. Þegar aukið er svona út og lykkjum er fækkað þá heldur lykkjufjöldinn áfram að vera sá sami.

Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu undir ermi – passið uppá að næsta umferð sé útauknings-/úrtöku umferð, fækkið nú um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki undir hvorri ermi (útaukningar að framan og að aftan halda áfram eins og áður) – LESIÐ ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur fleiri og 8 lykkjur færri.
Fækkið og aukið svona með 4-4-4-3-3-3 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 258-282-318-354-386-426 lykkjur. Prjónið síðan eins og áður með 4 úrtökur og 4 útaukningar í annarri hverri umferð.

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 46-50-51-55-58-63 cm mælt meðfram miðjulykkju (þ.e.a.s. við 1. og 4. prjónamerki), en endið þannig að næsta umferð sé útauknings-/úrtöku umferð. Stykkið mælist nú ca 56-60-61-65-69-74 cm mælt frá öxl og niður þar sem það er lengst. Klippið frá.
Setjið fyrstu 65-71-80-89-97-107 lykkjur (= hálft framstykki, meðtaldar miðjulykkjur) á þráð og síðustu 64-70-79-88-96-106 lykkjur (= hálft bakstykki) á sama þráð. Prjónið nú svona yfir þær 129-141-159-177-193-213 lykkjur sem eftir eru á prjóni (þ.e.a.s. frá eftir 4. prjónamerki til og með lykkju með 1. prjónamerki í = vinstri hlið á peysu, frá miðju að framan og við miðju að aftan):
UMFERÐ 1 (= rétta): Fellið af 2 fyrstu lykkjurnar, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki eins og áður (= 2 lykkjur færri), prjónið mynstur umferð út eins og áður = 2 lykkjur færri í byrjun hverrar umferðar við miðju að framan og 2 lykkjur færri í hlið á peysu (= alls 4 lykkjur færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Fellið af 2 fyrstu lykkjurnar, prjónið mynstur út umferðina eins og áður = 2 lykkju færri í byrjun á umferð við miðju að aftan.
UMFERÐ 3: Fellið af 2 fyrstu lykkjurnar, prjónið mynstur út umferðina eins og áður = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að framan.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og 2. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að aftan.
UMFERÐ 5: Prjónið eins og 3. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að framan.
UMFERÐ 6: Prjónið eins og 2. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að aftan.
UMFERÐ 7: Prjónið eins og 1. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að framan og 2 lykkjur færri á hlið á peysu (= alls 4 lykkjur færri).
UMFERÐ 8: Prjónið eins og 2. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að aftan.
UMFERÐ 9: Prjónið eins og 3. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að framan.
UMFERÐ 10: Prjónið eins og 2. umferð = 2 lykkjur færri í byrjun umferðar við miðju að aftan.

Endurtakið umferð 1-10 þar til eftir eru 5 lykkjur á prjóni og fellið af. Setjið til baka lykkjurnar af þræði á prjóninn og prjónið alveg eins (= hægri hlið á peysu, frá miðju að aftan að miðju að framan)

ERMI:
Setjið lykkjurnar af þræði í hægri hlið á stykki (þegar flíkin er mátuð) á stutta hringprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-12-12-12-12 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-89-99-103-109-113 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju lykkjanna. Prjónamerkið fylgir nú með stykkinu. Haldið áfram með A.1/A.2 eins og áður, en lykkjurnar sem ekki ganga upp í mynstri undir ermi eru prjónaðar slétt í umferð í garðaprjóni og brugðnar í umferð með brugðnum lykkjum.
Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Fækkið svona alls 15-20-25-24-27-26 sinnum í S: Í 6. hverri umferð, í M: Í 5. hverri umferð, Í L + XL: Í 3. hverri umferð og í XXL + XXXL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð = 49-49-49-55-55-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-33-31-30-26-25 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. flíkina og prjónið að óskaðri lengd), skiptið yfir í sokkaprjóna 2,5. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af. Ermin mælist ca 36-35-33-32-28-27 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt, en haldið áfram með A.2/A.3 eins og áður.

KANTUR NEÐAN Á FRAM- OG BAKSTYKKI MEÐ GARÐAPRJÓN:
Prjónið upp lykkjur fyrir kant innan við 1 lykkju meðfram öllum neðri kanti á peysunni. Prjónið upp ca 240-260-290-332-364-406 lykkjur jafnt yfir frá réttu á hringprjóna 2,5. Passið uppá að kanturinn dragi ekki fram- og bakstykkið saman! Ef það gerist þá þarf að prjóna upp fleiri lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3 og fellið af.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Iwona wrote:

Rozm M.Po 3cm po oddzieleniu na rekawy mam wykonac ZAMYKANIE-2,czyli w sumie zamykam 8 oczek i dodaje 4 oczka. Takie zamykanie mam wykonac kolejny raz za ok. 4cm. Jak mam przerabiac przez te 4cm ( tj. ok 12 okrazen ) ? Czy na ten fragment 4 cm wracam do ZAMYKANIA - 1 ( 4o.zamkniete i 4o dodane ) ? Z gory bardzo dziekuje za odpowiedz.

31.08.2023 - 12:49

DROPS Design answered:

Witaj Iwono, jest dokładnie jak piszesz, czyli na ten fragment 4 cm wracasz do ZAMYKANIA - 1 ( 4 zamknięte oczka i 4 dodane oczka). Miłej pracy nad robótką!

31.08.2023 - 20:50

country flag Anne wrote:

Fro Drop Design 177-6 I understand for the raglan increase there is an increase of 8 stitches each round, either side of 1st and 4th marker, before 3rd and 6th and after 2nd and 5th. If you do this 40 times (size M) you have increased 320 stitches, add this to the original 148 = 468 stitches NOT 448 as stated in the pattern. Please explain how this works.

11.07.2023 - 01:32

DROPS Design answered:

Hi Anne, The increases for raglan are different on the body and sleeves. In size M you increase a total of 40 times on the body (= 160 stitches) and 35 times on the sleeves (= 140 stitches). 148 + 160 + 140 = 448 stitches. Happy knitting!

11.07.2023 - 07:09

country flag Birgit Schlüter wrote:

Hej. Efter deling af arbejdet, hvor kroppen skal strikkes, fortsættes med at tage ind/ud, på hver 2.omg. Hvilken forskel er der på det færdige resultat, hvis der fortsættes med ind/udtagning på hver omgang? Vh. Birgit

20.04.2023 - 10:02

country flag Annelies Rennert wrote:

Noch eine Frage, da mein lochmuster im zickt zack nicht stimmt, muss das Diagramm immer fortlaufend gestrickt werden. Also A1, A2, A3 UND WIEDER A1, A2, A3 bis die Runde um ist, oder? Finde auch keine Erklärung dazu

21.06.2022 - 21:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, also die Diagramme werden wie zuvor weitergestrickt, dh vor der Markierung in der Mitte Rücken- und Vorderteil stricken Sie A.1, dann A.2 über die mittlere Masche und A.3 nach der Markierung bis zur Ärmel, bei der 1. Ärmel wiederholen Sie A.1 und enden Sie mit A.2 über die letzte Masche und bei der 2. stricken Sie A.1 dann wiederholen Sie A.3. Viel Spaß beim stricken!

22.06.2022 - 08:20

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, habe 17 cm erreicht und bin oben beim Diagramm angelangt. Es fehlen aber an jeden Teil ca. 17 MA. MUSS ICH MIT DEM DIAGRAMM wieder von unten anfangen? Das Zickzack lochmuster sieht bei mir anders aus. 1 Kästchen eine MA, wieso bei Vorderseite rechts RR links stricken. Wäre doch z.b. am Anfang keine 5 Reihen sondern 10. Da sind es bis zum Ende des Diagramm 100 Reigen und keine 50.

21.06.2022 - 20:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, 1 Kästchen im Diagram = 1 Masche x 1 Runde/Reihe, so beginnen Sie mit 5 Runden rechts, 1 Runde links, 1 Runde rechts, 1 Runde links (= 2 krausrippen), 4 Runden rechts usw... wenn die Diagramme fertig sind, werden sie vom Anfang an wiederholt. Am Ende Rumpfteil (wenn die Seiten separat gestrickt werden) stricken Sie dann in Hin- und Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!

22.06.2022 - 08:12

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, jetzt habe ich alles wieder aufgerebbelt. Meine Frage, beidseitig 1. Und 4. Markierungsfaden zunehmen verstehe ich. Vor dem 3. Und 6. Und nach dem 2. Und 5. Markierungsfaden habe ich keinen Plan. Sie schreiben am Ende Rumpfteil Arbeit teilen in 2 und stricken Mitte Vorderteil bis Mitte rückenteil. Das verstehe ich nicht, da muss ich doch zusammnähen. Ich habe es mir einfacher vorgestellt. LG.

13.06.2022 - 12:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, beidseitig von 1. und 4. Markierungsfäden sind Mitte-Vorder- + Rückenteil, dann nehmen Sie für die Ärmel zu: nach 2. + vor 3. Mark. = 1. Ärmel + nach 5. + vor 6. = 2. Ärmel. Schauen Sie mal die gestrichte Linie in Diagonale bei der Maßskizze = Wenn Rumpfteil dieses Form hat, wird man nicht mehr in Runden stricken sondern jedes Teil separat stricken, von der Mitte vorne bis Mitte Rückenteil und gleichzeitig Maschen abketten (keine Naht), es passiert ab 46 bis 63 cm unter RUMPFTEIL. Kann das Ihnen besser helfen?

13.06.2022 - 16:19

country flag Annelies Rennert wrote:

Muss ich nach dem Diagramm 1 gesehen über 6 MA 2X zusammen stricken dann umschlag, 3x, dann 1MA rechts und jetzt über 12 MA 2x zusammen stricken und dann wieder eine rechts? Muss ich links und rechts vom eingelegten markierungsfaden zunehmen? Wieso gibt es Rückseiten.? Habe nur als ich angefangen habe 5x rechts gestrickt. Bitte nochmal um Hilfe, wenn es nicht klappt höre ich auf. LG. Annelies Rennert

10.06.2022 - 15:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, könnten Sie uns bitte sagen, welches Teil Sie gerade stricken, so können wir zusammen prüfen und helfen. Am Ende Rumpfteil teilen Sie die Arbeit in 2 und stricken Sie jede Hälfte (von der Mitte Vorderteil bis der Mitte Rückenteil) in Reihen um die Seiten "flach" zu bekommen. Viel Spaß beim stricken!

13.06.2022 - 08:22

country flag Annelies Rennert wrote:

Gestrickt., dann lt. Diagramm die linken. Also nur wie man es sieht. Am spitze Ausschnitt sind auch auf einem Stück von der Mittelmasche links und rechts Löcher dann hört es auf. Bitte nochmal um Hilfe und Info. Danke

09.06.2022 - 14:41

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, danke schon mal für Ihre Nachricht, vorhergehende. Ich komme nicht klar obwohl ich schon viele schöne Sachen gestrickt habe. " 1. Markierungsfaden an der nächsten masche anbringen, das könnte noch klar sein. 2. Markierungsfaden vor der nächsten Masche anbringen? Was verstehe ich darunter? Wie nehme ich dann zu? Mfg. Annelies Rennert

03.06.2022 - 21:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, es wird Markierungsfaden in den Maschen und zwischen den Maschen eingesetzt: der 1. wird in die mittlere Masche am Rückenteil, der 2. und 3. sind zwischen Maschen eingesetzt (= Ärmel), der 4. wird in die mittlere Masche am Vordderteil, und der 5. und 6. sind zwischen Maschen eingesetzt (= Ärmel). Die Raglanzunahmen werden bei den Markierungsfäden gestrickt - siehe RAGLANZUNAHMEN. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

07.06.2022 - 08:11

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallo, bin gerade am Anfang von anleitung g drops 177-6. Ich stosse auf eine Unklarheit ich Wechsel jetzt zur nadelstärke 3. "Wie folgt ab linker Schulter des Rückens stricken. Dann 36 Ma , 6 Rapporte a 6 MA , Markuerungsfaden anbringen und dann = hintere Mitte. Das ist mir unklar. Wenn ich vom Rücken die linke Schulter stricke so komme ich doch nicht auf die hintere Mitte.

01.06.2022 - 19:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, die Runden beginnen ganz am Anfang von Rückenteil, dh nach der linken Schulter (wenn man den Pullover trägt), so stricken Sie 36 M A.1 + A.2 (hintere Mitte) + 36 M A.3 (= Rückenteil), 12 M A.1, A.2 (= re. Ärmel), 36 M A.1 + A.2 (hintere vorne) + 36 M A.3 und 12 M A.1, A.2 (= li. Ärmel) - kann das Ihnen mehr helfen? Viel Spaß beim stricken!

02.06.2022 - 08:43