DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18810.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Rainbow

Sjal prjónað í garðaprjóni með stuttum umferðum og tón í tón röndum úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk

DROPS 177-8
DROPS Design: Mynstur z-791
Garnflokkur A + A + A eða D
-----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd efst: ca 160 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 101, hvítur
100 g litur 6205, ljós blár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125 g litur 07, ljós gráblár
100 g litur 08, gráblár
75 g litur 01, natur

Ef sjalið er prjónað með einum lit þá þarf ca 300 g DROPS Alpaca og 225 g DROPS Kid-Silk

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 26 umferðir með garðaprjóni með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 sólfjöður mælist ca 29 cm á hæð þar sem hún er breiðust og 101 cm á lengd meðfram sléttum kanti.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18810.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið þræðina bæði innan úr dokkunni og utan með dokkunni samtímis.

TÓN-Í-TÓN LITIR:
Allar sólfjaðrirnar eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir) – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR!
1. SÓLFJÖÐUR: 1 þráður Alpaca ljós blár + 2 þræðir Kid-Silk gráblár.
2. SÓLFJÖÐUR: 1 þráður Alpaca ljós blár + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár.
3. SÓLFJÖÐUR: 1 þráður Alpaca hvítur + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár.
4. SÓLFJÖÐUR: 1 þráður Alpaca hvítur + 2 þræðir Kid-Silk ljós gráblár.
5. SÓLFJÖÐUR: 1 þráður Alpaca hvítur + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár + 1 þráður Kid-Silk natur.
6. SÓLFJÖÐUR: 1 þráður Alpaca hvítur + 2 þræðir Kid-Silk natur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
----------------------------------------------------------

SJAL:
Byrjið efst með dekksta bláa litnum og prjónið sólfjaðrir tón-í-tón litum fram að síðustu sólfjöður í litnum natur.

SJAL:
Fitjið upp 152 lykkjur á hringprjóna 5,5 með 1 þræði Alpaca ljós blár + 2 þræðir Kid-Silk gráblár (= 3 þræðir). Prjónið 1. sólfjöður fram og til baka hringprjóna þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 152 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 148 lykkjur slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: Prjónið 144 lykkjur slétt.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: Prjónið 140 lykkjur slétt.
UMFERÐ 8: Prjónið slétt.

Haldið svona áfram með að prjóna yfir 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til 4 lykkjur eru eftir. Prjónið 2 umferðir slétt fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur og prjónið síðan 2 sléttar umferðir yfir allar 152 lykkjurnar = 1 sólfjöður.
Fellið laust af fyrstu 14 lykkjurnar í umferð, prjónið sléttar lykkjur út umferðina og fitjið laust upp 7 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar = 145 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið um lit fyrir næstu sólfjöður – sjá útskýringu að ofan í TÓN-Í-TÓN LITIR. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fitjið laust upp 7 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar = 152 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu *. Prjónið síðan sólfjaðrir alveg eins með því að endurtaka frá 1. umferð að * þar til alls 6 sólfjaðrir eru á sjali.
Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu, klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Pia Wettergren wrote:

Hvordan ser tørklædet ud i den anden ende? Forstår ikke helt...

13.04.2024 - 16:47

DROPS Design answered:

Hei Pia. Ser ut som det du ser på bildet, men med et parti som er et hakk lengre enn det lengste partiet vi ser på bildet (mørkest farge). mvh DROPS Design

15.04.2024 - 13:40

country flag Natalia wrote:

Czy w tym wzorze należy zastosować rzędy skrócone?

10.09.2023 - 15:17

DROPS Design answered:

Witaj Natalio, tak, ten szal jest wykonany metodą rzędów skróconych. Pozdrawiamy!

12.09.2023 - 08:36

country flag Natalia wrote:

Czy można w jakiś sposób powiększyć chustę tak, aby jej długość na górze była większa niż 160cm? :)

17.06.2023 - 02:12

DROPS Design answered:

Witaj Natalio, na wachlarz trzeba nabrać więcej niż 152 oczka. Pozdrawiamy!

18.06.2023 - 21:31

country flag Marlies Zeeman wrote:

Dit patroon is minsten 6 jaar oud en al die tijd staat het incompleet op de website. Er staat namelijk bij alle even naalden: 'brei alle steken recht'. Dit klopt feitelijk niet, want er zou uitgelegd moeten worden dat je elke verkorte toer steken op de naald achter laat. Dit is dus niet dezelfde manier van verkorte toeren breien zoals in het filmpje wordt uitgelegd. Dit is de eerste keer dat ik een klacht heb over een patroon van Drops Design...

06.09.2022 - 21:37

country flag LAGOUTTE CHANTAL wrote:

Bonjour, Puis je tricoter ce modèle avec des aiguilles droites ? Merci pour votre aide. Bien cordialement C. LAGOUTTE

04.07.2022 - 18:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lagoutte, tout à fait, nous utilisons ici une aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez donc utiliser des aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées (attention à votre tension). Retrouvez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

05.07.2022 - 09:03

country flag Edyta wrote:

Dzień dobry. Chciałam zapytać, czy ten szal, to prostokąt? Chciałam zrobić z jednego koloru. Pozdrawiam Edyta

05.04.2022 - 11:10

DROPS Design answered:

Witaj Edyto, nie jest to prostokąt. Oczywiście jak chcesz możesz go zrobić z jednego koloru. Pozdrawiamy!

05.04.2022 - 13:32

country flag Nathalie Castel wrote:

Bonjour Je voudrais savoir si les nouvelles je dois monter sur la pointe du chale ou sur la partie que nous avons rabattu les mailles. Merci d avanve

02.05.2021 - 18:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Castel, les 14 mailles sont rabattues en début de rang sur l'endroit et les 7 mailles sont montées en fin de rang sur l'endroit (les 7 premières avec la couleur de l'éventail précédent, les 7 suivantes avec la couleur du suivant). Bon tricot!

03.05.2021 - 09:03

country flag Manita wrote:

Moet het echt op rondbreinaald 5,5? Het ziet er zo grof uit. Ik lees graag reacties van personen die de omslagdoek volgens de voorschriften hebben gebreid betreft materiaal. Dank!

20.01.2021 - 17:04

country flag Raymonde Pilote wrote:

Bonjour concernant le raccourci est-ce que l’on le fait à partir des 4 premières mailles ou si c’est 2 au début du rang et 2 à la fin du rang

08.04.2019 - 03:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Raymonde Pilote! Vous commencez les rangs raccourcis toujours des le debut du rang sur l'endroit, sur l'envers vous tricotez sur le nombre de mailles de plus en plus petit. Suivez les explications et regardez le video ICI. Bon trciot!

08.04.2019 - 08:34

country flag Sara wrote:

Como quito los 4 puntos, serematan al principio.

04.03.2019 - 07:30

DROPS Design answered:

Hola Sara. Los 4 puntos se quedan en espera en la aguja cada vez que se trabaja una fila acortada. Se trabajan sobre todos los puntos al final de cada abanico. Mira el vídeo sobre las filas acortadas:

03.04.2019 - 00:33