Charlotte Cowan skrifaði:
For Love You No. 7 cotton yarn, would you use the amount given for both yarns in pattern? Thank you. Confused because different weights given for both alpaca and kid silk though are combined together on knitting needles. I want to only use the cotton yarn.
09.02.2017 - 17:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cowan, you can use DROPS loves you 7 instead of Baby Alpaca Silk and instead of Kid-Silk (all yarns group A), so that you will have to work with 2 threads of Cotton instead of 1 thread each quality, and with 1 thread when working with Kid-Silk only. Remember that different yarns with different textures, will give the garment different looks. Read more about alternative here. Happy knitting!
10.02.2017 - 09:11
Charlotte Cowan skrifaði:
I want to substitute
09.02.2017 - 16:56
Devleeschouwer skrifaði:
Quelle classe !
30.12.2016 - 18:04
Barbara Sullivan skrifaði:
Pretty romantic cardigan for mild summer days.
20.12.2016 - 22:48
Maire Ritson skrifaði:
Ilus!
14.12.2016 - 11:48
Seaside Dream Cardigan#seasidedreamcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Peysa prjónuð ofan frá og niður með laskalínu, ¾ ermum, gatamynstri og bylgjukanti úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 6 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,75. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 8. og 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.1 endar mismunandi eftir stærð. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan A.1 og prjónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki, prjónið A.1 og aukið út um 2 lykkjur eins og sýnt er í mynsturteikningu, prjónamerki, 1lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati í fyrstu umferð frá réttu eftir garðaprjón í hálsmáli. Næstu 6-6-6-6-7-7 eru felld af með ca 8-8-9-9-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-80-88-92-104 lykkjur (meðtaldar 3 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur frá réttu og aukið út um 8-8-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1. JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 84-88-92-100-108-120 lykkjur á prjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 14-15-16-18-20-23 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur brugðið (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 28-30-32-36-40-46 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur brugðið (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki, 14-15-16-18-20-23 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og A.1 á milli prjónamerkja á hvorri ermi. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri – ATH: Útaukning á ermum eru skrifaðar inn í A.1). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 20-22-24-26-29-30 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð er útaukningu fyrir laskalínu lokið og það eru 244-264-284-308-340-360 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-31 cm frá öxl og niður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 37-40-43-47-52-56 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki), prjónið næstu 68-74-80-88-98-106 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki) og prjónið þær 37-40-43-47-52-56 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-182-198-218-238 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 142-154-170-186-206-226 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 154-166-182-198-218-238 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4 þegar stykkið mælist 33-33-33-33-33-34 cm frá skiptingu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af – Mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 51-55-59-63-69-71 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjunum undir ermi = 57-61-67-71-77-81 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu – umferðin byrjar hér. Prjónið síðan þannig: 0-2-1-3-2-0 lykkjur sléttprjón, A.2A (= 4 lykkjur – byrjið á A.2 þar sem A.1 endaði í þinni stærð), A.2B yfir næstu 48-48-56-56-64-72 lykkjur (= 6-6-7-7-8-9 mynstureiningar 8 l), A.2C (= 5 lykkjur) og 0-2-1-3-2-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið svona alls 8-10-12-13-15-17 sinnum í S: Í 4. hverri umferð, í M: Í 3. hverri umferð, í L + XL: Í annarri hverri umferð, í XXL + XXXL: Í hverri umferð = 41-41-43-45-47-47 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að það passi með fjölda úrtöku og útaukningu í mynstri. Þegar stykkið mælist 18-16-15-14-12-11 cm frá skiptingu undir ermi (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) er skipt yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið aftur yfir á sokkaprjóna 5. Takið frá 1 þráð BabyAlpaca Silk og prjónið 1 umferð slétt með 2 þráðum Kid-Silk. Hver lykkja samanstendur nú af 2 lykkjum þar sem prjónað er með 2 þráðum = 82-82-86-90-94-94 lykkjur. Takið frá 1 þráð Kid-Silk og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: * Prjónið í fyrstu af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið aðra af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 123-123-129-135-141-141 lykkjur á prjóni. Prjónið 5 umferðir slétt. Fellið síðan af þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Setjið lykkjur af þræði í hini hliðinni á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið á sama hátt og fyrri ermi. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. BYLGJUKANTUR VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN MEÐFRAM VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu efst við háls á vinstra framstykki (þegar flíkin er mátuð). Notið heklunál 5 og 2 þræði Kid-Silk og prjónið upp 1 lykkju í aðra hverja sléttu lykkju innan við kantlykkjur að neðan meðfram miðju að framan – setjið næstu lykkjur jafnóðum inn á hringprjón 5. Nú eru 2 lykkjur í hverri lykkju þar sem prjónað er með 2 þráðum = ca 116 til 138 lykkju. Takið frá 1 þráð Kid-Silk og prjónið með 1 þræði Kid-Silk frá röngu þannig: Prjónið ystu lykkjuna slétt (prjónið í gegnum báðar lykkjurnar), * prjónið aðra af þeim 2 fyrstu/næstu lykkjum brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið hina af 2 fyrstu/næstu lykkjum brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina, en endið með 1 lykkju slétt í síðustu lykkju (prjónið í gegnum báðar lykkjur) = ca 170 til 204 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið síðan af frá réttu þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. BYGLJUKANTUR VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN MEÐFRAM HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og meðfram vinstra framstykki, nema byrjið á að prjóna upp lykkjur frá réttu neðst niðri á hægra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seasidedreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.