Fabienne wrote:
Bonjour, j'aimerais faire ce modèle mais sans kid silk est-ce que cela change beaucoup les explications (dimensions, nb de mailles, etc). Merci d'avance
29.04.2022 - 18:28DROPS Design answered:
Bonjour Fabienne, vous pouvez ne pas utiliser Kid-Silk mais il vous faudra alors utiliser 1 autre fil du groupe A pour conserver la même tension de 17 m x 22 rangs jersey - utilisez notre convertisseur pour voir les différentes possibilités; ou bien il vous faudrait tout recalculer le modèle pour l'adapter avec la nouvelle tension. Bon tricot!
02.05.2022 - 07:52Loredana wrote:
Buongiorno, ho disfatto la manica perché nel ricominciarla seguendo il diagramma A2 non combacia il motivo. Sulle 6 maglie che riprendo da sotto la manica inizio con A2a oppure A2a inizia su A1? Inoltre cosa si intende per mettere un segnapunti al centro sotto la manica? Lo metto fra le 6 maglie (quindi 3 maglie, segnapunti, 3 maglie) oppure prima o dopo le 6 maglie? Poi devo diminunire 8 maglie o 16? Secondo me c’è un errore, sul testo. Diminuz. e gettati come si gestiscono?
14.02.2022 - 09:59DROPS Design answered:
Buonasera Loredana, il giro inizia al centro sotto la manica, al centro delle 6 maglie avviate, quindi 3 maglie, segnapunti e altre 3 maglie. Per le diminuzioni, ad esempio per la taglia S deve diminuire 16 maglie. Buon lavoro!
14.02.2022 - 19:32Liselott Olsson wrote:
Jag förstår inte riktigt hur jag ska sticka ärmen. Man ska lägga alla maskor och plocka upp 8 nya maskor, varvet börjar mitt i dessa. Men vilket varv ska börja där. Får det inte att stämma med tidigare stickat mönster. Mönstret är 77 m första varvet och då har man ju stickat förbi där varvet ska börja.
19.11.2021 - 22:15DROPS Design answered:
Hei Liselott. Hvilken str strikker du? Når du har strikket opp de maskene under ermet og satt 1 merketråd midt under ermet, klipp tråden og start neste omgang ved merketråden/midt under ermet. Videre strikkes det x-antall masker glattstrikk, A.2A (du starter med A.2 der A.1 sluttet i den størrelsen du strikker), A.2B over de neste x-antall maskene, A.2C (= 5 masker) og x-antall masker glattstrikk, fortsett mønstret slik. mvh DROPS Design
23.11.2021 - 09:38Susanne Mathiasen wrote:
Hej, Jeg kan ikke finde mål på de enkelte størrelser, hvilket jo er en forudsætning for valg af størrelse. Kan I hjælpe med det?
17.03.2021 - 16:47DROPS Design answered:
Hej Susanne, målene på de enkelte størrelser finder du i måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
18.03.2021 - 10:24Maria wrote:
Buongiorno. sono arrivata a lavorare il corpo al punto della diminuzione-1, non mi trovo. Ho 212 maglie devo diminuire 2 maglie ogni 4 cm x 3 volte. non arrivo a 200 maglie come da istruzioni. Dove sbaglio? Grazie
29.03.2019 - 09:39Carina wrote:
Is dit patroon beschikbaar voor gewone naalden ipv rondbreinaalden.
07.01.2019 - 21:17Margherita wrote:
Buongiorno, lo scollo a legaccio rende la scollatura poco elastica e scomoda da infilare. Per ottenere maggiore elasticità e morbidezza, quali alternative posso usare? L’avvio tubolare può andare bene anche in tecnica top down oppure devo aumentare il numero dei punti? Grazie!
18.12.2018 - 19:46DROPS Design answered:
Buongiorno Margherita. Può lavorare un bordo a coste 1 m dir (o dir ritorto) / 1 m rov. Può avviare le maglie con il metodo che preferisce. Buon lavoro!
19.12.2018 - 08:43Sabina wrote:
Thank you for your answer , very helpful.I have another question- as I'm knitting in size S what is the first row out of the 12 in the A 2 pattern I should start to continue sleeve with in A2 pattern?
02.03.2018 - 20:18DROPS Design answered:
Dear Sabina, if you stopped the pattern, where the diagram says, for each size, you can start pattern A.2 at the first row. Otherwise knit the row which continues the pattern where you laft it off when separating the stitches. Happy Knitting!
04.03.2018 - 18:28Sabina Dyli wrote:
Hi . For the sleeves, can you explain whether the last five rows need to be knitted in knit stitch or as per pattern *knit yarn over knit *? Thanks
28.02.2018 - 22:00DROPS Design answered:
Dear Mrs Dyli, work first 5 rounds in stockinette st (= K all rounds) then bind off with yarn overs: *bind off 1 st, make 1 YO, bind off YO* - see video below - repeat from *-*. Happy knitting!
01.03.2018 - 08:53
Seaside Dream |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Peysa prjónuð ofan frá og niður með laskalínu, ¾ ermum, gatamynstri og bylgjukanti úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-28 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,75. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 8. og 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 endar mismunandi eftir stærð. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 1 lykkju á undan A.1 og prjónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki, prjónið A.1 og aukið út um 2 lykkjur eins og sýnt er í mynsturteikningu, prjónamerki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir brugðið svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 70-74-74-82-86-98 lykkjur á stutta hringprjóna 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 8-8-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 78-82-86-94-102-114 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5 og prjónið næstu umferð þannig: 14-15-16-18-20-23 sléttar lykkjur, setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur slétt (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 28-30-32-36-40-46 sléttar lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur slétt (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki, 14-15-16-18-20-23 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan sléttprjón og A.1 á milli prjónamerkja á hvorri ermi. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri – ATH: Útaukningar á ermum eru teiknaðar inn í A.1). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-22-24-26-29-30 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð eru útaukningar fyrir laskalínu lokið og það eru 238-258-278-302-334-354 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-31 cm frá öxl og niður. Næsta umferð er prjónuð þannig: 34-37-40-44-49-53 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= hæri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki), prjónið næstu 68-74-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki) og prjónið þær 34-37-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-176-192-212-232 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 148-160-176-192-212-232 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4 þegar stykkið mælist 33-33-33-33-33-34 cm frá skiptingu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 5 og fellið af – Það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 51-55-59-63-69-71 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-8-10 lykkjunum undir ermi = 57-61-67-71-77-81 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu – umferðin byrjar hér. Prjónið síðan þannig: 0-2-1-3 2-0 lykkjur sléttprjón, A.2A (= 4 lykkjur – byrjið á A.2 þar sem A.1 endaði í þinni stærð), A.2B yfir næstu 48-48-56-56-64-72 lykkjur (= 6-6-7-7-8-9 mynstureiningar 8 l), A.2C (= 5 lykkjur) og 0-2-1-3-2-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið svona alls 8-10-12-13-15-17 sinnum í S: Í 4. hverri umferð, í M: Í 3. hverri umferð, í L + XL: Í annarri hverri umferð, í XXL + XXXL: Í hverri umferð = 41-41-43-45-47-47 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að það passi með fjölda úrtöku og útaukninga í mynstri. Þegar stykkið mælist 18-16-15-14-12-11 cm frá skiptingu undir ermi (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) er skipt yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið aftur yfir á sokkaprjóna 5. Takið frá 1 þráð BabyAlpaca Silk og prjónið 1 umferð slétt með 2 þráðum Kid-Silk. Hver lykkja samanstendur nú af 2 lykkjum þar sem prjónað er með 2 þráðum = 82-82-86-90-94-94 lykkjur. Takið frá 1 þráð Kid-Silk og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: * Prjónið í fyrstu af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið aðra af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 123-123-129-135-141-141 lykkjur á prjóni. Prjónið 5 umferðir slétt. Fellið síðan af þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Setjið lykkjur af þræði í hinni hlið á stykki á stutta hringprjóna 5 og prjónið alveg eins og fyrri ermi. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Maria wrote:
Elimino la domanda di prima. sbagliavo i conti. grazie
29.03.2019 - 09:50