DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5929.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Children 27-8

#prairiefairyjumper

DROPS Design: Mynstur nr li-008-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
250-250-300-350-400 gr litur nr 0619, beige
100-100-100-100-150 gr litur nr 0100, natur
50-50-50-50-50 gr litur nr 6273, kirsuber
50-50-50-50-50 gr litur nr 2923, gulur
50-50-50-50-50 gr litur nr 9018, sægrænn
50-50-50-50-50 gr litur nr 7219, pistasía

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykki verði rétt er mjög mikilvægt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5929.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef mynstrið herpist saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3 með litnum beige.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miða að aftan). Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3-3-4-4-5 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 78-84-90-98-105 l. Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, snúið við, haldið áfram með að prjóna 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 48-48-64-64-80 l, snúið við og prjóni 1 umf slétt aftur fram að miðju. Prjónið síðan mynsturteikningu A.1 (= 13-14-15-14-15 mynstureiningar á breiddina) – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á lengri hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 208-224-240-252-270 l á prjóni. Prjónið 0-1-2-0-1 cm með beige. Stykkið mælist nú ca 15-16-17-17-18 cm fyrir miðju að framan (án stroffs í hálsmáli). Stykkið er síðan prjónað með litnum beige og sléttprjóni. Fyrst er prjónuð 1 umf JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-4-12-10 l jafnt yfir = 212-228-244-264-280 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-37-39 l, setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 62-66-70-74-78 l (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 31-33-35-37-39 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýju 6 l sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (4 l fleiri). Aukið út með 7-9-10-12-13 cm millibili alls 3 sinnum = 148-156-164-172-180 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-23-26-29-32 cm. Prjónið A.2. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 16 l jafnt yfir = 164-172-180-188-196 l. Prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4, fitjið að auki upp 6 l mitt undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt í þessa l) = 50-54-58-64-68 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku með 4½-3½-4-3-3½ cm millibili alls 5-7-7-10-10 sinnum = 40-40-44-44-48 l. Þegar ermin mælist 18-23-27-30-34 cm, prjónið A.2, skiptið síðan yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

natur = natur
beige = beige
kirsuber = kirsuber
sægrænn = sægrænn
gulur = gulur
pistasía = pistasía
sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
Diagram for DROPS Children 27-8
Diagram for DROPS Children 27-8

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Maria Burgos skrifaði:

Muchas gracias por los modelos me parecen geniales e hice varios. Lastima que en Argentina no tenemos Drops. Saludos!

23.02.2025 - 16:31

country flag Barbara skrifaði:

Ich würde diesen Pullover gerne mit dem Garn Nepal stricken. Gibt es dazu eine Umrechnung? Das Kind trägt Größe 122/128 und für die ältere Schwester habe ich den Pullover „Oktober Dream“in S gestrickt. Der hat ja ein ähnliches Muster. Ich habe noch Wolle übrig und würde etwas dazu kaufen und diesen Pullover stricken. Würde es passen, wenn ich mit dem dickeren Garn nach den Angaben für die Größe 110/116 stricke. Ich bin dankbar für jeden Tipp. Herzliche Grüße, Barbara

18.02.2025 - 21:40

DROPS Design svaraði:

Liebe Barbara, hier finden Sie Pullover für 122/128, von oben nach unten gestrickt und mit einer Rundpasse und einer Wolle der Garngruppe C (wie Nepal), das kann Ihnen vielleicht helfen, dieses Modell anzupassen. Sonnst können Sie auch je nach Ihrer eigenen Maschenprobe die Anleitung umrechnen. Viel Spaß beim Stricken!

19.02.2025 - 07:45

country flag Renate skrifaði:

Ich habe den Kunderpulli für meine Enkelin gestrickt. Das Originalgarn lief leicht durch die Finger. Die Anleitung war perfekt, so dass das Ergebnis wirklich sehr gelungen ist. Gern stricke ich jetzt noch einen Pulli für mich. Danke

17.01.2025 - 21:03

country flag Tina skrifaði:

Hvad betyder 14 rapporter?

19.11.2024 - 12:20

DROPS Design svaraði:

Hej Tina. Det är en upprepning av diagrammet 14 gånger på bredden, du kan läsa mer om det här. Mvh DROPS Design

19.11.2024 - 14:38

country flag Miriam skrifaði:

Ich stricke Größe 12 Jahre, die Passe ist fast fertig, als nächstes kommt die Runde in der die Maschen für die Ärmel (je 62) stillgelegt werden. Ich verstehe nicht was damit gemeint ist, dass ich 6 Maschen (unterm Arm) neu anschlagen soll. Was ist hier gemeint, wie geht das? Danke für Tipps!

07.10.2024 - 22:55

DROPS Design svaraði:

Liebe Miriam, schauen Sie mal diese Lektion, ab Bild 9 zeigen wir wie man die Verteilung bearbeitet und wie diese Maschen unter die Ärmel angeschlagen werden (siehe auch Video / Lektion). Viel Spaß beim Stricken!

08.10.2024 - 07:41

country flag Carine skrifaði:

When you say to do an elevation at the back do you mean we have to do German short rows?

13.09.2024 - 16:58

DROPS Design svaraði:

Dear Carine, the elevation of the back is done with short rows, the pattern does not specify what type of short rows. We generally suggest thightening the yarn when turning and/or picking up the thread before the next stitch and knit together with the last stitch, but you can also use German short rows, if that is what you prefer. Happy Knitting!

15.09.2024 - 02:20

country flag Pernille Nattestad skrifaði:

Hejsa Jeg er ved at strikke trøjen og indtil videre passer alt. Nu er jeg så nået til det sidste stykke i bærestykket. Her står der, at jeg skal tage ind 3 gange pr 12 cm. Men det færdige arbejde skal kun måle 29 cm. Kan det være, at I mener pr 12 omgang?

25.10.2023 - 18:18

DROPS Design svaraði:

Hej Pernille, mener du udtagningen i siden? Her tager du ud 3. - 15. og 28. cm :)

26.10.2023 - 14:03

country flag Carol skrifaði:

When measuring the yoke (largest size), I have 22 cm after finishing the last increase row, and still have four rows and another cm before dividing for the sleeves and body. Please, should I be measuring from the Fair Isle pattersn or from the 5cm of rib?

26.08.2023 - 07:47

DROPS Design svaraði:

Dear Carol, you measure after the 5cm of rib, after you change to 4mm needles. You also need to measure from the mid-front, since the back is slightly higher due to the elevation at the back of the neck. Happy knitting!

28.08.2023 - 00:25

country flag Eva Nordström skrifaði:

Mönster A1 och A2 visas inte i beskrivningen längre, vad har hänt?

15.07.2022 - 19:47

DROPS Design svaraði:

Hej Eva, jo begge diagrammer ligger nederst i opskriften :)

02.08.2022 - 14:23

country flag Steffy Gaibor skrifaði:

Hola quiero empezar hacer este modelo, pero tengo una duda sobre como hacer una elevación de la parte de espalda, espero me puedan ayudar. Gracias

30.08.2021 - 03:24