DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10318.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Winter Wine

Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu og stroffi. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 164-20

#winterwinesweater

DROPS Design: Mynstur nr ai-017
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 07, rúbínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða sú stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10318.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 2 l hvoru megin við hverja laskalínu þannig (= 16 l fleiri):
Aukið út á undan 4 l sléttprjón og prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan í og framan í lykkjubogann), 2 l sléttprjón = 2 l fleiri.
Aukið út á eftir prjónamerki og 2 l sléttprjón þannig: Prjónið 2 l sl í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann og framan í lykkjubogann) = 2 l fleiri.

Aukið út um 1 l hvoru megin við hverja laskalínu þannig (= 8 l fleiri):
Aukið út á undan 2 l sléttprjón og prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf svo ekki myndist gat!

ÚTAUKNING:
Aukið út á undan 2 l sléttprjón og prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf svo ekki myndist gat!

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring, ofan frá og niður á hringprjóna. Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 64-72-76-84-88-92 l á hringprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br). Prjónið stroff í 4 cm, prjónið nú 1 umf sl þar sem aukið er út um 8-8-8-12-24-32 l jafnt yfir = 72-80-84-96-112-124 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú þannig (frá miðju að aftan) 11-13-14-17-21-24 l sl (= hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki, 14 l sl (= ermi), setjið eitt prjónamerki, 22-26-28-34-42-48 l sl (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, 14 l sl (= ermi), setjið eitt prjónamerki, 11-13-14-17-21-24 l sl (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning til LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf alls 2-3-4-4-5-6 sinnum. Síðan er aukin út 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf alls 18-18-18-19-19-19 sinnum = 248-272-292-312-344-372 l. Stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 33-37-40-44-50-55 l (= hálft bakstykki) setjið næstu 58-62-66-68-72-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 66-74-80-88-100-110 l (= framstykki), setjið næstu 58-62-66-68-72-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið 33-37-40-44-50-55 l sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 148-164-176-192-216-236 l í umf. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 4-4½-5-5½-6-6½ cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 136-152-164-180-204-224 l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 8 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 148-164-176-192-216-236 l. Stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm fellið laust af þannig: * Fellið af 4 l (2 l sl + 2 l br), sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-*.

ERMI:
Ermin er prjónuð í sléttprjóni, hringinn á sokkaprjóna. Það eru 58-62-66-68-72-76 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5 og fitjið upp 8 l undir ermi = 66-70-74-76-80-84 l. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT er sett prjónamerki mitt á milli nýju l undir ermi (þ.e.a.s 4 l hvoru megin við prjónamerki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili 12-14-14-15-15-17 sinnum til viðbótar = 40-40-44-44-48-48 l. Þegar ermin mælist 44-43-43-42-42-41 cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) yfir allar l. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar ermin mælist 48-47-47-46-46-45 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 164-20

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (93)

country flag Anita Bergund skrifaði:

Jeg vurderer å strikke genser winter wine og har lest oppskriften på forhånd. Denne genseren har ikke noe beskrivelse om den skal strikkes med forkortede pinner for å få en høyere nakke, slik at det blir en rundere hals. Ser sånn ut på bildet synes jeg. Er det en mangel i oppskriften?

16.02.2025 - 18:53

DROPS Design svaraði:

Hej Anita, nej den her genser er ikke strikket med forkortede pinde :)

18.02.2025 - 12:08

country flag Esther skrifaði:

Beginnen met het lijf. Ga ik nu minderen en meerderen in de 8 steken (na 4st markeerder) die ik als nieuw onder de mouw heb opgezet? Het zijn dus 4 st voor en 4 st na de markeerder. Maar als ik daar totaal 3 x1 st wil minderen houd ik geen st over om te meerderen. Hoe nu verder, graag uitleg svp

13.11.2024 - 15:49

DROPS Design svaraði:

Dag Esther,

De markeerder zit er alleen om het midden onder de mouw aan te geven en je mindert aan beide kanten van midden onder de mouw, dus aan beide kanten van de markeerder. Als je verder de mouw aan het breien bent, brei je steeds tricotsteek in de rondte en horen die 4 steken aan beide kanten gewoon bij de mouw. Dus gewoon minderen zoals beschreven.

13.11.2024 - 19:37

country flag Esther Van Dort skrifaði:

Meerderen voor de raglan, voor de markeerder: Voor de laatste 2 st van de markeerder, meerder ik dan of 1 meerderen, 1 r, 1 meerderen, 1 r? En na de markeerder eerst 2 rbreien en dan meerderen 2x? Ik wil niet meerderen met omslag maar het tussen liggend draad tussen 2 steken gebruiken Alvast bedankt

15.10.2024 - 21:00

DROPS Design svaraði:

Dag Esther,

4 steken voor de markeerder brei je als volgt: brei 2 recht in de volgende 2 steken. (dus in elk van de volgende 2 steken brei je 2 recht door in de voorste en achterste lus van de steek te breien), dan 2 steken recht. Nu ben je bij de markeerder. Direct na de markeerder brei je eerst 2 steken recht. Dan brei je weer 2 recht in de volgende 2 steken (dus in elk van de volgende 2 steken brei je 2 recht door in de voorste en achterste lus van de steek te breien).

19.10.2024 - 10:58

country flag Silke skrifaði:

Der Pullover ist wunderschön geworden. Ich habe die Originalwolle verwendet, es ging ganz fix und er passt wie angegossen.

21.09.2024 - 15:46

country flag Mrs Downs skrifaði:

I would like to know where I can find the step by step video of the Winter Wine jumper. I’m sure I’ve seen one

14.06.2024 - 18:55

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Down, all the relevant videos for this pattren can be found if you click on teh "Videos" sign at the top op the pattern, just below the title line. Happy Knitting!

15.06.2024 - 00:36

country flag Nathalie ROQUES skrifaði:

Je suis bien embêtée pour le début de ce pull car, en montant 64 m (taille S), ça me fait un tour de cou de 30 cm qui est bien sûr beaucoup trop petit pour passer ma tête ! Je vois pourtant que ça correspond aux mesures notées sur le patron (15cm à plat). Alors que, d'après les photos, le col a l'aire plutôt large. Il y a vraiment quelque chose que je n'ai pas compris ! Pouvez-vous m'aider ?

08.03.2023 - 15:14

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Rocques, pensez à bien vérifier votre tension, vous devez avoir 17 m x 22 rangs jersey = 10 x 10 cm avec les aiguilles les plus grosses, avec les plus petites, on compte en général 18 m = 10 cm de large, soit environ 36 cm de circonférence, ce qui doit suffire à passer la tête si votre rang de montage est suffisamment souple, vous pouvez utiliser une aiguille d'une taille au-dessus si besoin, soit juste pour le montage, soit pour le reste aussi (en fonction de votre tension). Bon tricot!

08.03.2023 - 15:28

country flag Alcalde skrifaði:

Pouvez vous m expliquer pour le modèle "winter wine" comment faire pour rabattre 4 m( 2 m endroit +2 m envers) 1 jeté rabattre 1 jeté

18.02.2023 - 08:47

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Alcade, vous devez procéder ainsi, rabattez les 4 mailles suivantes (autrement dit 2 mailles endroit et 2 mailles envers), puis faites 1 jeté, rabattez ce jeté comme une maille normale. Et répétez cette séquence, autrement dit, vous rabattez avec 1 jeté après chaque 4ème maille. Cette vidéo montre comment rabattre avec des jetés. Bon tricot!

20.02.2023 - 09:16

country flag Pia Liukku skrifaði:

Hei. Jos 4 merkin molemmin puolin kavennetaan/lisätään yksi silmukka eli 8 silmukkaa yhteensä 3 kertaa niin miksi lisättyjä silmukoita on yhteensä vain 12 vähemmän/enemmän vyötärö kavennuksen/lisäyksen jälkeen? T. Pia

04.09.2022 - 19:03

country flag Pia Liukku skrifaði:

Hei. Mihin kohtaan merkit kavennuksia varten tulevat ja montako niitä on yhteensä.? Tämä ei selviä minulle ohjeesta.

23.08.2022 - 11:59

DROPS Design svaraði:

Merkit kiinnitetään työhön näin (samalla kun kerroksen silmukat neulotaan): Neulo seuraavasti (keskeltä takaa alkaen): 11-13-14-17-21-24 s oikein (= puolikas takakappale), kiinnitä 1 merkki tähän, 14 s oikein (= hiha), kiinnitä 1 merkki tähän, 22-26-28-34-42-48 s oikein (= etukappale), kiinnitä 1 merkki tähän, 14 s oikein (= hiha), kiinnitä 1 merkki tähän, 11-13-14-17-21-24 s oikein (= puolikas takakappale). Eli merkkejä on yhteensä 4 kpl ja ne ovat raglanlinjojen kohdalla.

24.08.2022 - 17:19

country flag Sally Schreiber skrifaði:

My question regards the armhole measurement. In the instructions for a size M the length from the 'shoulder' to the bottom of the raglan (where the armhole begins) is 23 cm. Based on the specified row gauge, 23 cm is achieved when measuring from the neck cast on and not from the shoulder. The diagram also indicates that the 23 cm is from the cast on. I thought that 'from the shoulder' would mean from the bottom of the neck ribbing, but this appears to be wrong. Can you clarify please?

22.01.2022 - 13:45

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Schreiber, correct the 23 cm are measured from the shoulder to the bottom of armhole, when working raglan you will decrease a total of 3 times (2 sts) on every other row + 18 times (1 stitch) on every other row = 21 times in total x 2 = 42 rows; if your tension is right with 22 rows = 10 cm, yoke should measure approx. 19 cm from after neck edge. Hope it will help, happy knitting!

24.01.2022 - 08:48