DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Forest Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air í garðaprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-40
DROPS Design: Mynstur nr ai-015
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
400-450-450-500-550-600 gr litur nr 12, mosagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 4,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS HORNATALA NR 536: 4 stk í öllum stærðum

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónaðar slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN:
Það eru prjónaðar stuttar umferðir í kanti að framan svo kanturinn dragist ekki saman á hæðina. Prjónið í 10. hverri umf þannig – frá réttu: Prjónið 16-16-18-18-20-20 l (= hægri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. Snúið við og prjónið 16-16-18-18-20-20 l (= vinstri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 2 hnappagöt = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið fjórðu og þriðju síðustu kantlykkju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 31 og 41 cm
STÆRÐ M: 31 og 41 cm
STÆRÐ L: 32 og 42 cm
STÆRÐ XL: 32 og 42 cm
STÆRÐ XXL: 33 og 43 cm
STÆRÐ XXXL: 33 og 43 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 162-178-198-214-238-254 l (meðtaldar 16-16-18-18-20-20 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón (= kantur að framan), sléttprjón þar til eftir eru 16-16-18-18-20-20 l og endið á 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5, stykkið er nú prjónað til loka í garðaprjóni yfir allar l. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er prjónað þannig: Prjónið 41-45-51-55-61-65 l, fellið af næstu 6 l, prjónið 68-76-84-92-104-112 l, fellið af næstu 6 l, prjónið síðustu 41-45-51-55-61-65 l. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-76-84-92-104-112 l. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 2 l 1-1-2-3-5-6 sinnum og 1 l 0-3-4-5-6-7 sinnum = 64-66-68-70-72-74 l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af miðju 18-18-18-18-22-22 l fyrir hálsmáli = 23-24-25-26-25-26 l eftir á hvorri öxl. Hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 41-45-51-55-61-65 l. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 39-40-43-44-45-46 l. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af fyrstu 23-24-25-26-25-26 l frá röngu fyrir öxl = 16-16-18-18-20-20 l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið nú stuttar umferðir yfir 16-16-18-18-20-20 l þannig – með byrjun frá réttu: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 8-8-9-9-10-10 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l*, endurtakið frá *-* þar til kantur í hálsmáli mælist 7-7-8-8-9-9 cm þar sem hann er minnstur. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Fellið af fyrir öxl frá réttu og prjónið stuttar umferðir með byrjun frá röngu.

ERMI:
Ermin er prjónið í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3 ½-3½-3-2½-2-2 cm millibili 9-11-11-14-14-16 sinnum til viðbótar = 60-64-68-74-78-82 l. Þegar stykkið mælist 46-46-45-45-42-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af 6 l mitt undirermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-3-3-4-4 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum. Fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-54-54-55-55-56 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Vasarnir eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 20 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið 2 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið vasana niður ca fyrir miðju á framstykki í sléttprjóni og 5 cm frá neðri kanti (sjá mynd).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Else Hansen wrote:

Hej jeg kan ikke finde opskrif til sjalskraven til denne,har strikket det andet så håber i kan hjælpe

20.04.2024 - 09:50

DROPS Design answered:

Hej Else, jo du fortsætter med sjalskraven når du har lukket skuldermaskerne af. Det står på forstykket der hvor vi skriver. Fortsæt med forkortede pinde.... se her hvordan det ser ud: Hvordan sys halskanten sammen og fast til halsen bagpå Hvis du vil se flere videoer så klik på sjalskrave øverst på videoen :)

23.04.2024 - 13:20

country flag Helichryse wrote:

Dommage , je ne sais pas tricoter avec une aiguille circulaire .....\r\nPourquoi tous vos modèles sont ils réalisés ainsi ?

06.12.2019 - 19:12

country flag Pat Miller wrote:

Hello. How do I print the photo of the jacket for pattern Pattern no ai-015? I can print the rest of the pattern, but not the photo (which would be very helpful when I'm not near a pc). Thank you, Pat

04.08.2019 - 20:16

DROPS Design answered:

Hello Pat. You can print the photo by choosing the button Photo, just above the “Pattern instructions” line. Happy knitting!

04.08.2019 - 21:38

country flag Ille Wiklund wrote:

Tänkte sticka denna i Alaska eller Nepal. Hur mycket garn behöver jag då?

01.03.2019 - 10:46

DROPS Design answered:

Hei Ille. Det kommer an på hvilken størrelse du skal strikke. Om du fyller inn "Air", og garnmengden i din størrelse i garnkalkulator her vil du få opp alle alternativer med ny garnmengde (Alaska og Nepal vil begge komme opp). God fornøyelse

04.03.2019 - 11:42

country flag Barbara wrote:

Dzien dobry, chcialam spytac o zamykanie oczek w rekawie. Kiedy piszecie" Nastepnie zamknac 2 o. z kazdej strony,az dlugosc rekawa osiagnie 53-54-54-55-56cm. Zamknac 3 o.na poczatku 2 nast. rzedow(...)" Czy mam rozumiec, ze powtarzam zamkniecie 2 o z kazdej strony, w kazdym rzedzie, az do 54 cm dlugosci rekawa? Czy jest to jednorazowe zamkniecie 2 oczek z kazdzej strony rzedu? Dziekuje za odpowiedz. Pozdrawiam

07.01.2019 - 23:27

DROPS Design answered:

Witaj Barbaro! Powtarzasz zamykanie 2. o z każdej strony (kilka razy), w każdym rzędzie, aż do 54 cm długości rękawa. Lekko zmodyfikujemy to w opisie, aby było bardziej czytelne. Pozdrawiamy!

08.01.2019 - 17:54

country flag Anke wrote:

Ich verstehe nicht ganz, wie der Kragen entsteht. Passiert das automatisch wenn ich die kurzen Reihen stricke? Ich muss keine Machen aufnehmen?

21.10.2018 - 09:29

DROPS Design answered:

Liebe Anke, bei den Schalkragen werden keine neuen Maschen anschlagen: nachdem Sie die Maschen für den Schulter abgekettet haben, sind es 16-20 M (siehe Größe), über diese 16-20 M stricken Sie verkürzten Reihen (mit einer Hinreihe angangen): 2 Reihen über 8-10 M, 2 Reihen über alle Maschen bis der Kragen 7-9 cm an der kürzsten Seite mißt. Viel Spaß beim stricken!

22.10.2018 - 09:06

country flag Judith Williams wrote:

When knitting the main part of the garment in stocking stitch and the front bands in garter stitch, the instructions say to work short rows in the bands every 10th row. Does this continue with this when you change to working all stitches in garter stitch?

07.12.2016 - 19:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williams, the short rows have to be worked only when you are working in stocking st at the same time to compensate height difference between stocking st and garter st. When working in garter st, short rows are not necessary. Happy knitting!

08.12.2016 - 08:42

country flag Michele wrote:

Where are the instructions for the collar. Instructions for the back don't tell how to finish it and make the collar or are the front pieces of the collar for the back too? Thank you.

03.10.2016 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Michelle, the shawl collar is worked at the end of front pieces (when working short rows), you will then sew shawl collar first tog (from left and right front pieces) then sew the collar along neckline on back piece. Happy knitting!

03.10.2016 - 15:53

country flag Susanna wrote:

Hur blir den här, stickad i bomull t ex Paris?

16.05.2016 - 10:00

DROPS Design answered:

Hej Susanna. Jeg tror den vil blive meget tung / haengende. For denne jakke i Paris i f.eks. den mindste str skal du bruge 800 gr og 1200 gr for den störste.

17.05.2016 - 11:55

country flag Karin Robberd wrote:

Ik snap de mouwkop niet. Ik brei maat L. Er staat: kant 3 × 2 steken af, dan 3 × 1. En dan staat er Kant dan 2 steken af aan elke kant tot het werk 54 cm meet. Moet dat dan in 1× of in elke naald of in elke tweede naald? Ik vermoed het laatste maar dat staat er niet.

18.02.2016 - 20:57

DROPS Design answered:

Hoi Karin. Je kant 2 st af aan elke kant van het werk (dus aan het begin van elke naald) tot het werk 54 cm meet.

24.02.2016 - 17:01