Frida Engwall skrifaði:
Nu har jag suttit och försökt förstå färgerna i mönstret/diagrammet och tittat på bilden här på sidan. Det måste vara så att det är fel "beteckning" på ljus gammelrosa i mönstret? På sidan 5 under "diagram explanations" är ljus gammelrosa helt ifylld ruta med vit prick. Men om man tittar i mönstret är det en ruta med en mindre ruta i? Det är nämligen så att "ruta med mindre ruta inuti" inte finns med alls under diagram explanations på sida 5....
05.12.2015 - 00:09DROPS Design svaraði:
Hej. Du har helt rätt, tack för info! Felet är nu rättat. Mvh DROPS Design
15.12.2015 - 07:53
Maiken skrifaði:
Kommer der en opskrift på modellen uden knapper??
27.06.2015 - 14:13DROPS Design svaraði:
Hej. Ja modell u-761 utan knappar kommer att läggas ut så fort den är översatt och korrekturläst. Mvh DROPS Design
29.06.2015 - 13:22
Cecilie Thomassen skrifaði:
På bilde ser det ut som om bunnfarven er grå, men i oppskriften står det at det skal være lys beige. Stemmer dette?
19.06.2015 - 23:19DROPS Design svaraði:
Hei Cecilie. Farven er korrekt, det er nok lyset paa billedet. Du kan altid skifte til graa hvis du selv synes det vil vaere paenere.
23.06.2015 - 12:28Denise Soletto skrifaði:
Simplesmente maravilhoso. Não vejo a hora de poder tricota-lo.
18.06.2015 - 18:09
Gabi skrifaði:
Prachtige kleuren en patroon. Hip chic sportief en geschikt voor iedere leeftijd denk ik zo. Mooi
17.06.2015 - 11:52
Ellis skrifaði:
Love the colours, makes it friendly, and is challenging to knit
08.06.2015 - 21:28
Nathalex skrifaði:
Superbe, je craque !
03.06.2015 - 12:09
Gabriele Singer skrifaði:
Tolles fair isle design und sehr schöner zarter Schnitt. Die Farben in dieser Kombination unterstreichen das noch...
02.06.2015 - 22:08
Jelena skrifaði:
Bare så søt ;)
31.05.2015 - 14:41
Anna skrifaði:
So happy to see more fair isle designs as that is what I'm into at the moment. Love the colours in this one, the stripes and the design on the yoke.
31.05.2015 - 12:56
Sweet As Candy Cardigan#sweetascandycardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með hringlaga hálsmáli og marglitum mynsturbekk. Stærð S - XXXL
DROPS 165-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning A.1 er endurtekin upp að handveg bæði á fram- og bakstykki og ermum. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kant að framan): Í þeim umf þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er prjónað með lit í röndum eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38, 46 og 54 cm STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm STÆRÐ XXL: 2, 9, 17, 24, 32, 39, 47, 54 og 62 cm STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 57 og 64 cm LEIÐBEININGAR-2: Til þess að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 232-252-272-296-332-360 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur DROPS Karisma. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og 2 l sl á hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl frá réttu þar sem fækkað er um 45-49-53-57-65-69 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 187-203-219-239-267-291 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (1. umf = ranga), en 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni til loka – LESIÐ LEIÐBEININGAR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm í allar stærðir eru sett 2 prjónamerki 49-53-57-62-69-75 l inn frá hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3-3-4½-4½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum í hvorri hlið = 171-187-203-223-255-279 l – ATH: Stillið úrtökuna af þannig að lykkjum er fækkað í einni umf með litnum ljós beige. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3½-4-4-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 187-203-219-239-267-291 l. Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – stillið af að prjónuð sé 1 eða 2 umf með litnum silfur bleikur á eftir 1 umf með “doppum" og að síðasta umf sé prjónuð frá röngu, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 45-49-53-57-64-70 l (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 81-89-97-105-119-131 l (= bakstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg og prjónið næstu 45-49-53-57-64-70 l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl þar sem fækkað er um 12-12-14-12-14-14 l jafnt yfir = 48-48-50-52-54-54 l á prjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-13-13-14-14-16 sinnum = 70-74-76-80-82-86 l. Prjónið þar til ermin mælist 46-46-45-45-44-44 cm – stillið af þannig að prjónaðar verði jafnmargar umf með litnum ljós beige og á fram- og bakstykki (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umf sl þar sem miðju 8-8-8-10-10-10 l undir ermi eru felldar af = 62-66-68-70-72-76 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 295-319-339-359-391-423 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum silfur bleikur (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem fækkað er um 8-8-10-12-14-16 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 287-311-329-347-377-407 l á prjóni – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 6 l eru eftir á prjóni (veljið mynstur fyrir rétta stærð og byrjið umf merkta með ör í réttri stærð), prjónið fyrstu l í A.2 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 36-40-42-48-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 251-271-287-299-327-351 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 40-40-44-48-52-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 211-231-243-251-275-295 l á prjóni. Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 40-44-44-52-52-60 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 171-187-199-199-223-235 l á prjóni. Í umf merktri með ör 4 í mynstri er fækkað um 48-60-60-60-64-68 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 123-127-139-139-159-167 l á prjóni. Þegar A.2 er lokið mælist stykkið ca 53-55-57-59-61-63 cm upp að öxl. UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA: Til þess að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum silfur bleikur og prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 12-12-14-14-15-15 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-30-30 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-36-40-40-44-44 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-48-52-52-58-58 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-72-76-76-86-86 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 84-84-88-88-100-100 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 96-96-100-100-114-114 l br til baka. Snúið við og prjónið út umf. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem fækkað er um 27-31-31-31-43-51 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 96-96-108-108-116-116 l á prjóni. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu) – ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í hægri kant að framan og þegar hálsmálið mælist ca 1½-2 cm. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br í stroffi og sl yfir garðaprjóns l í kanti að framan. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetascandycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.