Maria skrifaði:
Jättesnygg modell! En favorit i sommar!
23.01.2015 - 07:36
Petra skrifaði:
Mooie pas, mooie kleur, laat het voorjaar maar komen!
13.01.2015 - 20:35
Kris Couton skrifaði:
Hier zou ik direct aan willen beginnen , kan ik het patroon al ergens verkrijgen??
11.01.2015 - 19:15
Nicole skrifaði:
Dieses Jäckchen ist ein Traum!! Sobald die Anleitung online ist, werde ich die Wolle dazu bestellen.
21.12.2014 - 22:50Luz Delgaso Villanueva skrifaði:
Preciosa chompa, me encanta!!!!. Sus patrones son muy didácticos, he tejido con ellos y ha resultado un placer hacerlo. Los felicito. Me encantarìa que publicaran patrones de este tipo para niñas de 5 a 10 años. Gracias!!
20.12.2014 - 19:19
Diana Kerkhoven skrifaði:
Erg lief vestje. En nog een leuk kleurtje ook.
19.12.2014 - 19:54
Karin skrifaði:
Super, freue mich schon darauf dieses Modell zu stricken.
16.12.2014 - 07:14
José Serné skrifaði:
Dit is echt één van mijn favorieten. Prachtige kleur ook.
14.12.2014 - 21:24
Silke skrifaði:
Die mache ich nach Sie ist so leicht erinnert mich an Aqua Verspielt schön
11.12.2014 - 22:27
M.Carmen skrifaði:
Es precioso.
11.12.2014 - 17:00
Athena Cardigan#athenacardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með hringlaga berustykki, sléttprjóni, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING 1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að sleppa við göt. ÚTAUKNING 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 l í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett á milli þessa l). Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 l sléttprjón og prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sléttprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 51 cm. STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 35, 44 og 53 cm. STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 48 og 58 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 39, 49 og 59 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 101-105-109-113-117-121 l á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: (heldur áfram til loka): A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umf í mynstri eru aukið út um 12-16-18-18-20-20 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 = 113-121-127-131-137-141 l (Í 3. umf í A.1 er síðasta l á undan kantlykkju að framan prjónuð slétt). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir til baka á hringprjóna nr 4,5. Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir í 3. umf í garðaprjóni og 6-7-13-15-21-26 l í 9. umf í garðaprjóni (ATH: Aukið út um í einni umf frá réttu. Ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 129-138-150-156-168-177 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið alls 14-14-16-16-16-20 umf garðaprjón, stykkið mælist 7-7-8-8-8-9 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* (síðasta l á undan kantlykkju að framan er prjónuð slétt). Þegar stoffið mælist 2 cm er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan sl l í hverri br mynstureiningu í umf (= 40-43-47-49-53-56 l fleiri) = 169-181-197-205-221-233 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. Haldið áfram með 1 l sl, 3 l br. Endurtakið útaukningu á undan hverri sl l þegar stroffið mælist 4-4-4-5-6-6 cm = 209-224-244-254-274-289 l. Haldið áfram með 1 l sl, 4 l br þar til stroff mælist alls 6-6-6-7-8-8 cm. Prjónið 2 umf sléttprjón. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-11-11-15-21-28 l jafnt yfir = 217-235-255-269-295-317 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram með A.1 (í 3. umf í A.1 er síðasta l á undan kantlykkju að framan prjónuð í sléttprjóni). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-10-10-16-22-28 l jafnt yfir = 225-245-265-285-317-345 l. Haldið nú áfram með hringprjóna nr 5 þannig: Prjónið fyrstu 34-38-41-45-51-56 l (= framstykki), setið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 61-69-75-83-95-105 l (= bakstykki), setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið þær 34-38-41-45-51-56 l (= framstykki) sem eftir eru. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 145-161-173-189-213-233 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11-10-9-8-7-6 cm = 137-153-165-181-205-225 l. Þegar stykkið mælist 18-17-16-15-14-13 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 2! (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2-2½-3-3-3½-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 157-173-185-201-225-245 l. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm aukið út um 10-8-11-10-14-8 l jafnt yfir = 167-181-196-211-239-253 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 48-50-54-56-60-64 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði yfir á hringprjón/sokkaprjón nr 5 og fitjið upp 8 nýjar l undir ermi = 56-58-62-64-68-72 l. Prjónið 4 umf garðaprjón, haldið síðan áfram í sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýrra l undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki LESIÐ ÚRTAKA AÐ OFAN! Endurtakið úrtöku með 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili 7-8-9-9-11-12 sinnum til viðbótar = 40-40-42-44-44-46 l. Þegar ermin mælist 35-35-35-34-34-34 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, prjónið áfram A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og aukið út um 1-1-3-3-3-3 l jafnt yfir = 41-41-45-47-47-49 l. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið síðan af, ermin mælist ca 39-39-39-38-38-38 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #athenacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.