Martine Somville skrifaði:
Dans le modèle 159-11, le diagramme comporte les rangs endroits, dois-je faire les rgs envers comme les mailles se présentent? Je suppose mais pas certaine. Merçi
12.07.2015 - 20:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Somville, les diagrammes montrent tous les rangs des points fantaisie, vus sur l'endroit, c'est-à-dire qu'1 case = 1 m x 1 rang. Sur l'envers, tricotez les mailles comme indiqué dans les diagrammes. Bon tricot!
27.07.2015 - 10:23
Mena skrifaði:
Bellissimo
15.05.2015 - 18:54
Sandrine skrifaði:
Pour le raglan vous dites diminuer tout les 2 rangs sur l'endroit ça ne fait pas 4 rangs ?
24.03.2015 - 10:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, quand on augmente tous les 4 rangs, on va augmenter tous les 2 rangs sur l'endroit ainsi : *1 rang sur l'endroit avec augmentation, 1 rang sur l'env, 1 rang sur l'end, 1 rang sur l'env* et on répète de *-*. Bon tricot!
24.03.2015 - 10:47
Sussi Beck skrifaði:
Hej. Forkanten trækker sig sammen så jeg ville strikke forkortede pinde over den, har i et bud på hvor mange pinde skal der være imellem?
12.03.2015 - 08:02DROPS Design svaraði:
Hej Sussi, det er lidt svaert at sige, det er afhaengigt af hvor stramt du strikker. Jeg ville strikke de forkortede pinne og saa eventuelt gentage undervejs, hvis det er nödvendigt. Og saa skrive op ved hvilken höjde/p du strikkede dem saa du kan gentage paa den anden side. God fornöjelse.
13.03.2015 - 15:46
Renate Gisbertz skrifaði:
Ein sehr schönes Teil, wie ein verspieltes Mieder
14.02.2015 - 15:30
Annie skrifaði:
Cardigan très bien travaillé avec une petite basque très féminin
13.01.2015 - 18:33
Opale skrifaði:
J'aime beaucoup l association torsades et points ajourés la base est également bien !
19.12.2014 - 05:45
Merethe skrifaði:
Fin og anderledes.
17.12.2014 - 12:27
Martina skrifaði:
Schön verspielt :-)
12.12.2014 - 22:01
Tove B Nielsen skrifaði:
En sommarkofta jag gärna skulle göra!
11.12.2014 - 23:30
White Romance Cardigan#whiteromancecardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri, stuttum ermum og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-11 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ M: 10, 19, 27, 36, 44 og 52 cm. STÆRÐ L: 10, 19, 28, 37, 46 og 54 cm. STÆRÐ XL: 10, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXL: 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XXXL: 10, 19, 27, 36, 44, 52 og 60 cm. (ATH: fellið af fyrir síðasta hnappagatinu rétt áður en hálsmálið byrjar þannig að það sitji eins hátt og mögulegt er). LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.7 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.7: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 2 l á undan A.7: 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 351-387-423-471-531-591 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A þar til 10 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 5 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 183-201-219-243-273-303 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.2 og endið á 5 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka – ATH: Í 7. umf í mynstri er síðasta l prjónuð á undan kanti að framan slétt. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 187-199-223-247-271-307 l (fækkið /aukið ekki út yfir kant að framan). Prjónið 1 umf br til baka (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Setjið 1 prjónamerki 50-52-58-64-70-79 l inn frá hvorri hlið (= 87-95-107-119-131-149 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan, A.3 (= 11 l), A.4 (= 20 l), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.5 þar til 37 l eru eftir á prjóni, 1 l sléttprjón, A.6 (= 20 l), A.3 (= 11 l) og 5 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-6-6-7-7-7 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 203-215-239-263-287-323 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-36-38-38-40-40 cm. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 49-51-57-62-68-77 l eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið 85-93-105-115-127-145 l (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið næstu 49-51-57-62-68-77 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 144-156-156-168-168-180 l á hringprjóna nr 2,5 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A. Þegar A.1A hefur verið prjónað eru 72-78-78-84-84-90 l á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón. JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af miðju 10-10-10-12-12-12 l mitt undir ermi = 62-68-68-72-72-78 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 307-331-355-383-407-455 l. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu og síðustu l á báðum ermum (= 4 prjónamerki). Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur eins og áður á fram- og bakstykki JAFNFRAMT er A.5 einnig prjónað á ermum (ör í mynstri á að passa við miðju á ermi, byrjið í sömu umf í mynstri eins og á fram- og bakstykki). Að auki er A.7 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í). Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf fram og til baka byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 4-5-5-7-7-8 sinnum = 275-291-315-327-351-391 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eins og áður. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 4-10-4-6-10-10 l jafnt yfir í 1. umf (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) =271-281-311-321-341-381 l. Prjónið 2 umf slétt (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Nú byrjar hringlaga berustykkið og fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur, prjónið mynstur eftir A.8 þar til 6 l eru eftir á prjóni, endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.9 prjónað í stað A.8 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 167-173-191-197-209-233 l á prjóni. Prjónið nú A.10 í stað A.9 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir A.10 er prjónuð upphækkun að aftan í hnakka frá réttu þannig: Prjónið sl þar til 20-20-22-22-24-24 l eru eftir. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 20-20-22-22-24-24 l í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 36-36-40-40-44-44 l. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 36-36-40-40-44-44 l í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 52-52-58-58-64-64 l. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 52-52-58-58-64-64 l í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 68-68-76-76-84-84 l. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 68-68-76-76-84-84 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5, byrjið frá röngu og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (byrjið á umf 2 í A.2). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 21-23-23-25-25-29 l jafnt yfir = 146-150-168-172-184-204 l. Eftir A.2 er fellt laust af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whiteromancecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.