Sara skrifaði:
Jeg forstår ikke denne formulering “ luk af i beg af hver p fra siden: 3 m 1 gang, 2 m 1 gang og 1 m 2 gange.” Betyder det: luk 3 m af på 1. pind, 2 m af på 2. pind, 1 m på 3. og 1 m på 4.?
30.08.2024 - 16:20DROPS Design svaraði:
Hei Sara. Du skal felle av kun på begynnelsen av pinnen fra siden (der ermhullet skal være). Du feller først av 3 masker, strikk pinnen ut til front (husk fellingene midt foran), snu og strikk til siden, snu og fell 2 masker, strikk pinnen ut til front (husk fellingene midt foran), snu og strikk til siden, snu og fell 1 maske, strikk pinnen ut til front (husk fellingene midt foran), snu og strikk til siden, snu og fell 1 maske. Du har nå felt på begynnelsen av hver pinne fra siden: 3 masker 1 gang, 2 masker 1 gang og 1 maske 2 ganger. mvh DROPS Design
02.09.2024 - 10:44
Gea Murakas skrifaði:
Juhendis on kirjas, et kasvata silmusied teisel või kolmandal real? Kumb siis?
23.02.2023 - 10:04DROPS Design svaraði:
Tere Gea Murakas! Kasvatada tuleb kordamööda, kord 2. real siis järgmine kord 3. real, siis jälle 2. real, siis 3. real jne. Head kudumist!
27.03.2023 - 13:35
Renata skrifaði:
Non serve più. Ho capito. Grazie
24.11.2022 - 18:39
Renata skrifaði:
Cosa significa "verso il centro"? Significa verso l'alto? Le maglie di avvio del davanti corrispondono al bordo inferiore del la punta del gilet?
24.11.2022 - 16:41DROPS Design svaraði:
Buonasera Renata, abbiamo riformulato meglio alcuni passaggi: si intende verso il centro davanti del lavoro. Il lavoro inizia sulla parte inferiore del davanti. Buon lavoro!
24.11.2022 - 21:24
Gerdie skrifaði:
Bij de babyslofjes staat: TEGELIJKERTIJD na 1½ - 2 - 2½ (3) cm om de nld als volgt tot het werk klaar is... Wanneer is het werk klaar dan?
13.05.2021 - 11:44
Catalina skrifaði:
Hola! Estoy tejiendo el chaleco. Pronto comenzaré la espalda y no entendí cómo hacerla, ¿la comienzo desde los puntos abiertos de los dos delanteros? Estoy confundida. Espero atenta y muchas gracias
19.02.2021 - 22:12
Lisa skrifaði:
Merci beaucoup pour vos explications !!
21.04.2020 - 11:23
Lisa skrifaði:
Bonjour , je tricote la taille 6 mois du gilet sans manche et j'ai terminé le devant droit qui reste en attente . Aujourd'hui je viens de commencer le devant gauche . Je suppose qu'ensuite il faut tricoter le dos ?
20.04.2020 - 17:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Lisa, après le devant droit, vous tricotez effectivement le devant gauche comme le devant droit, mais en sens inverse (pour qu'ils soient tous les 2 en effet miroir), puis vous tricoterez le dos ainsi: les mailles du 1er devant, vous monterez les mailles de l'encolure et vous tricoterez les mailles de l'autre devant et continuerez ensuite le dos, de haut en bas (vous monterez les mailles des emmanchures). Bon tricot!
21.04.2020 - 10:03
Lisa skrifaði:
Bonjour Je trouve que vos explications ne sont pas assez claires . J'ai tricoté le devant droit , monté 2m puis 22m côté encolure, et là , j'avoue que je suis perdue ... Que dois-je faire maintenant ? Ce n'est pas très détaillé ! Merci pour votre réponse .
19.04.2020 - 16:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Lisa, je suis désolée, je ne comprends pas votre question, quelle taille tricotez-vous? Où en êtes-vous rendue exactement? Merci pour ces informations complémentaires qui seront utiles pour vous aider, à bientôt!
20.04.2020 - 10:32Heidrun skrifaði:
Ich würde die Weste gerne etwas kleiner stricken. Gibt es auch Maschenzahlen für Neugeborene?
27.08.2017 - 21:53DROPS Design svaraði:
Liebe Heidrun, hier finden Sie Anleitungen für Neugeborene (= 0-1 Monate (48/52 cm)). Viel Spaß beim stricken!
29.08.2017 - 09:24
Honey Suckle#honeysuckleset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vafningsvesti / vesti og sokkar fyrir börn í garðaprjóni og hekluðum kanti úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 21-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um framstykki): Aukið út í annarri hverri og 3. hverri umferð þannig: Prjónið * 1 umferð án útaukninga, 1 umferð með útaukningu við miðju að framan, 2 umferðir án útaukninga, 1 umferð með útaukningu við miðju að framan *, endurtakið frá *-*. Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í ystu lykkju við miðju að framan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er á öðru framstykkinu, prjónað upp að öxl. Síðan er hitt framstykkið prjónað og svo eru bæði framstykkin sett saman og prjónað er niður yfir bakstykkið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 26-30-34 (37-41) lykkjur á prjón 3 með litnum ljós gulur DROPS Baby Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í umferð 2 er aukið út um 1 nýja lykkju við miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu við miðju að framan til skiptis í annarri og 3. hverri umferð alls 18-19-24 (28-30) sinnum = 44-49-58 (65-71) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 10 umferðir slétt. Stykkið mælist ca 11-12-15 (17-18) cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan með því að prjóna 2 síðustu lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í hverri umferð (þ.e.a.s. í lok umferðar frá réttu og í byrjun á umferð frá röngu): alls 0-0-11 (19-21) sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í lok umferðar frá réttu): alls 28-29-25 (21-23) sinnum (nú hefur fækkað um 28-29-36 (40-44) lykkjur). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-19 (20-21) cm fækkið lykkjum fyrir handveg, fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hlið: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 9-13-15 (18-20) lykkjur á prjóni fyrir öxl, prjónið áfram. Þegar stykkið mælist 25-27-29 (31-33) cm setjið 1 prjónamerki = mitt á öxl. Prjónið síðan niður yfir bakstykki – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál, endurtakið útaukningu í lok næstu umferðar við hálsmál = 13-17-19 (22-24) lykkjur. Setjið allar lykkjur á þráð – fyrsta umferð þegar prjónað er áfram á bakstykki kemur nú til með að byrja frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt – stillið af þegar fyrsta umferð er prjónuð áfram á bakstykki sé prjónuð frá réttu. BAKSTYKKI: Prjónið inn annað framstykki á prjóninn (prjónið frá handveg og inn að hálsmáli), fitjið upp 12-12-16 (16-20) nýjar lykkjur (= aftan í hnakka) og prjónið inn hitt framstykkið á prjóninn (prjónið frá hálsmáli og út að handvegi) = 38-46-54 (60-68) lykkjur. NÚ ER STYKKIÐ MÆLT frá PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6½-7½-8½ (9½-10½) cm fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá hvorri hlið fyrir handveg: 1 lykkja 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni = 52-60-68 (74-82) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 25-27-29 (31-33) cm – brjótið stykkið saman við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykkið og bakstykkið séu jafn löng – fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma kant í kant yst í lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með litnum gulur með heklunál 2 í kringum allt opið á vestinu (ekki er heklað meðfram neðri kanti) þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, *3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 2 lykkjur / 4 umferðir garðaprjón, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, þegar komið er að horni á framstykki er hekluð snúra þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkju í ca 25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju í hornið aftur á framstykki, haldið áfram að hekla kantinn í kringum hálsinn á vestinu fram að horni á hinu framstykkinu, heklið snúru eins og á fyrra horni og heklið síðan að neðri kanti. Heklið á sama hátt í kringum báða handvegina. Heklið síðan 1 snúru sem er eins og í hvoru horni innan við saum á hægri hlið og utan með saum á vinstri hlið – passið uppá að snúran verði í sömu hæð og hornin á framstykki. ---------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkurinn er prjónaður fram og til baka frá miðju að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á prjóna nr 2,5 með 2 þráðum í litnum gulur DROPS Baby Merino. Takið frá annan þráðinn og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6-6-7 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt er fækkað um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkja. Í næstu umferð er umferð yfir hæl prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið síðustu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð (ofan á fæti). Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm sléttprjón yfir hællykkjur 10-12-12 (12) lykkjur. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin við hæl = 54-60-64 (74) lykkjur á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm í sléttprjóni í hverri umferð yfir allar lykkjur jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og enda stykkis og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkju. Fellið af og saumið saman undir fæti og upp að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk á sama hátt. SNÚRA: Klippið 3 þræði í litnum ljós gulur DROPS Baby Merino ca 1 metra, tvinnið þá fast saman, leggið þræðina saman tvöfalt og látið þá snúast aftur saman, hnýtið hnút á báða enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á sokknum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant efst á sokknum með heklunál nr 2 með litnum ljós gulur DROPS Baby Merino þannig: Heklið 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju hoppið yfir ½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju á sokknum *, endurtakið frá *-* og endið á 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #honeysuckleset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.