Agnes skrifaði:
Jag skall virka an kappa/kofta efter ett engelskt mönster. Vad ska jag välja för garn när det står Sport Weight Yarn och ett nystan med en 3:a? Virknål 3,5 mm.
24.09.2014 - 15:42DROPS Design svaraði:
Det modsvarer DROPS garner i garngruppe A: https://www.garnstudio.com/lang/se/visgarn_oversikt_alt.php
29.09.2014 - 10:08
Beda. skrifaði:
52 M: 13 x 4.(2 re, 2 l =4)
17.09.2014 - 12:57
Kristina skrifaði:
Hallo, die Aufteilung des Bundmusters ist mit dem Maschenanschlag für Größe XS nicht konform. Ich starte mit 2 re, 2 li, und am Ende der 4. Nadel habe ich 2 re. Ich bitte um schnellstmögliche Antwort
17.09.2014 - 10:35DROPS Design svaraði:
Sie schlagen ja 52 M an, das ist durch 4 teilbar und daher dürfte es beim Muster 2 M re, 2 M li im Wechsel (= Mustersatz von 4 M) kein Problem geben, Sie müssten am Ende der 4. Nadel 2 M li haben.
17.09.2014 - 19:02
Mary Lou skrifaði:
Since Karisma is a sport weight yarn, And the yarn says to use US size 6 and 8. How can the US size 3 and 4 Work on this sweater?
20.08.2014 - 22:23DROPS Design svaraði:
Dear Mary Lou, this pattern is worked on the basis of the tension of 22 sts x 30 rows in stockinette sts = 10 x 10 cm [4’’ x 4’’], adjust the needle if necessary. Happy knitting!
21.08.2014 - 11:41
Mary Lou skrifaði:
Since Karisma is a sport weight yarn, And the yarn says to use US size 6 and 8. How can the US size 3 and 4 Work on this sweater?
20.08.2014 - 22:20Ulla skrifaði:
Karisma is DK
20.08.2014 - 19:16
Mary Lou skrifaði:
Is Karisma a sport weight yarn? Seems like size 3 and 4 is small For that yarn
20.08.2014 - 16:46Jill skrifaði:
I am making the biggest size, so I have 108 stitches, minus the 17 I have cast off for the stomach, which makes 91 stitches. I calculate the total number of cast off stitches in the shaping is 60, which only leaves 31 stitches, according to the pattern I should have 41. Is there an error, or am I reading the stitch cast offs incorrectly?
10.08.2014 - 08:39Jill svaraði:
Oh, so sorry, my maths was wrong! Stitches worked out perfectly :)
10.08.2014 - 09:04
Natalie skrifaði:
Habe 11 maschen berücksichtigt - bzw. nochmal verglichen - dürfte passen :) danke nochmal für die info - und kompliment zu den schönen ideen mit hoffentlich vielen neuen anleitungen!
11.01.2014 - 11:34
Natalie skrifaði:
? bitte um konkrete info bzw. vergleich mit dem grauen norweger weil hier sind auch 17! maschen und nicht 11 - 11 stimmt sicher nicht für s bei den beinchen ... auch nicht bei diesem modell?
11.01.2014 - 00:58
Nordic Paws |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð jólapeysa / hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Karisma með norrænu mynstri. Stærð XS-M
DROPS 102-42 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá hálsmáli og niður. PEYSA FYRIR HUND: Fitjið upp 52-72-92 lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 6-8-10 cm (= hálsmál). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 3,5 (sokkaprjónar fyrir minnstu stærðina), prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 8-12-16 lykkjur jafnt yfir = 60-84-108 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: Stærð XS: M.1, M.3 og M.5 Stærð S: M.1, M.2, M.3, M.4 og M.5. Stærð M: M.1, M.2 x 2 , M.3, M.4 og M.5 x 2. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-14-18 cm (frá uppfitjunarkanti) skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Fellið af 1 lykkju, setjið 11-11-23 lykkjur á þráð (= magastykki), fellið af 1 lykkju, síðan er haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir þær 47-71-83 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). Þegar stykkið mælist alls 16-22-28 cm (op mælist ca 6-8-10 cm) setjið lykkjur á þráð. Setjið til baka lykkjur af þræði frá magastykki aftur á prjóninn og prjónið mynstur jafnt langt og á bakstykki yfir þessar lykkjur. Setjið allar lykkjur aftur á sama prjón og fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið á milli maga- og bakstykkis = 60-84-108 lykkjur. Prjónið mynstur til loka, haldið síðan áfram með litnum rauður að loka máli. Þegar stykkið mælist 19-27-35 cm eru felldar af 9-13-17 lykkjur mitt undir magastykki. Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka – jafnframt er fellt af í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1-2-3 sinnum, 1 lykkja 8-9-10 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 21-31-41 lykkjur eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 27-37-47 cm. FRÁGANGUR: Setjið þær lykkjur sem eftir eru á stuttan hringprjón nr 3, prjónið að auki upp lykkjur í kringum affellingarkantinn þannig að það verða ca 84-108-140 lykkjur á prjóni. Prjónið stroff í 2½-3-3 cm, fellið laust af. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Prjónið upp ca 36-44-52 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum rauður í kringum allt opið fyrir annan framfótinn. Prjónið stroffprjón í 3-4-6 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. Brettið hálsmálið niður tvöfalt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 102-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.