Stone Veil Cardigan#stoneveilcardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, köðlum, tvöföldu perluprjóni og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Mynsturteikningin er endurtekin yfir umferðir með oddatölu á hæðina. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og næstu 5 lykkjur í mynstri A.1. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu 5 lykkjur af þessum 7 lykkjum í mynstri A.1, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur saman (slétt saman eða brugðið saman eftir hvað passar í mynstri), 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt/brugðið (eftir hvað passar í mynstri), svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 7-7-7-8-8-7-9 cm frá kanti í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-9-7½-8-8 cm á milli hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli mynsturs og stroffs á fram- og bakstykki. Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykkjum prjónuð. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram annarri öxlinni frá bakstykki. Síðan er prjónað niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur prjónaður í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-25-27-27-29-29-29 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og aukið út í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir (mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið), aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1), aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-13-14-14-16-16-16 sinnum (= 26-26-28-28-32-32-32 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 77-77-83-83-93-93-93 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan A.1 með 3 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið – Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 12-11-11-9-12-8-5 cm mælt frá merki yst meðfram handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 með 3 lykkjur brugðið í hvorri hlið (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-3-3-6-4-9-13 sinnum (= 2-6-6-12-8-18-26 umferðir prjónaðar) = 79-83-89-95-101-111-119 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-14-15-16-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju, að auki eru prjónaðar upp 3 lykkjur niður á við meðfram hlið á bakstykki = 29-29-31-31-35-35-35 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið og aukið jafnframt út 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 34-34-37-37-40-40-40 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.2, 9-9-9-9-10-10-10 lykkjur brugðið, A.2, prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur slétt, A.2, 9-9-9-9-10-10-10 lykkjur slétt, A.2, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Prjónið umferð 2 og 3 þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, stykkið mælist ca 8 cm (næsta umferð er frá réttu). Nú á að auka út fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.4, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið afgang af A.4, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur, A.1, 3 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.4, þ.e.a.s. aukið er út fyrir hálsmáli á undan 3 lykkjum í sléttprjóni að hálsmáli. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 40-40-43-43-46-46-46 lykkjur. Í fyrstu umferð frá röngu á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli, eru fitjaðar upp 13-13-14-14-15-15-15 nýjar lykkjur í lok umferðar = 53-53-57-57-61-61-61 lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, haldið áfram með mynstur sem þegar er byrjað út umferðina. Prjónið svona þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan með i-cord, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, prjónið A.3, A.5, A.3, prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): 3 lykkjur brugðið, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur slétt, prjónið A.3, A.5, A.3, prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið síðan UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 22-21-24-23-24-20-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, nú er aukið út í hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir að hlið, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-4-6-6-11-16 sinnum (= 6-10-8-12-12-22-32 umferðir prjónaðar – athugið að það eru auknar út fleiri lykkjur á framstykki en á bakstykki þar sem kaðlarnir draga stykkið saman) = 56-58-61-63-67-72-77 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 25-26-28-29-30-31-32 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu, en stillið af að endað sá á sama stað í A.1 og á bakstykki þannig að mynstrið passi þegar stykkin eru sett saman (ysta lykkjan í hlið á bakstykki og framstykki verða báðar að vera annað hvort sléttar eða brugðnar). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: ATH: Byrjið 3 lykkjum niður á bakstykki, prjónið upp 3 lykkjur meðfram hlið á bakstykki, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 29-29-31-31-35-35-35 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið og aukið jafnframt út 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 34-34-37-37-40-40-40 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, A.6, prjónið 9-9-9-9-10-10-10 lykkjur brugðið, A.6, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, A.6, 9-9-9-9-10-10-10 lykkjur slétt, A.6, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur slétt, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 3 lykkjur brugðið. Prjónið umferð 2 og 3 þar til A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, stykkið mælist ca 8 cm (næsta umferð er frá réttu). Nú á að auka út fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, prjónið A.7 yfir lykkjur í A.6, prjónið A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið síðustu 3 lykkjur í A.8. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.8, þ.e.a.s. aukið er út á undan 3 lykkjum í sléttprjóni við hálsmál. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 40-40-43-43-46-46-46 lykkjur. Í fyrstu umferð frá réttu á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli, fitjið upp 13-13-14-14-15-15-15 nýjar lykkjur í lok umferðar = 53-53-57-57-61-61-61 lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið mynstur sem þegar er byrjað út umferðina. A.8 hefur nú verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur slétt, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, prjónið A.7, A.9, A.7, prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur brugðið, 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur slétt, prjónið A.7, A.9, A.7, prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur slétt, 3-3-5-5-7-7-7 lykkjur A.1, 3 lykkjur brugðið. Prjónið síðan UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 22-21-24-23-24-20-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, nú er aukið út í hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1) Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-4-6-6-11-16 sinnum (= 6-10-8-12-12-22-32 umferðir prjónaðar) = 56-58-61-63-67-72-77 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 25-26-28-29-30-31-32 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu, en stillið af að endað sá á sama og á vinstra framstykki. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur frá hægra framstykki og prjónið þannig: Prjónið fyrstu 53-55-58-60-64-69-74 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður (það eru 3 lykkjur eftir), prjónið síðustu 3 lykkjur í A.1, fitjið upp 1-1-1-3-3-3-5 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið fyrir miðju undir ermi), haldið áfram með A.1 yfir allar 79-83-89-95-101-111-119 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 1-1-1-3-3-3-5 nýjar lykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið fyrstu 3 lykkjur frá vinstra framstykki í A.1 og prjónið þær 53-55-58-60-64-69-74 lykkjur sem eftir eru á vinstra framstykki eins og áður = 193-201-213-227-241-261-283 lykkjur í umferð. Héðan er nú mælt! Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur eins og áður (nýjar lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar í A.1). Prjónið þar til stykkið mælist 28-29-29-29-30-30-31 cm frá handvegi. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 14-14-18-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð (það er engin aukning yfir framkantana – stillið útaukninguna þannig að 6 af útauknu lykkjunum séu staðsettar með 1 lykkju aukinni í miðju hvers kaðals á framstykkinu, hinar 8-8-12-16-18-20-22 lykkjurnar eru auknar yfir A.1 á bakstykkinu) = 207-215-231-249-265-287-311 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4-4-4-5-5-6-6 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg - miðja ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6 til 7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 56-58-62-70-72-78-82 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið A.1 fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt frá miðju undir ermi þar til 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur eru eftir á undan merki ofan á öxl, prjónið A.1 yfir næstu 16-16-20-20-20-24-24 lykkjur, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 20-20-24-24-24-28-28 lykkjur, lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 4-4-4-6-6-6-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 4-4-4-6-6-6-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 5 og 6. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12-14-14-16-16-18-24 sinnum (= 6-7-7-8-8-9-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 6 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi), lykkjurnar eru prjónaðar inn í A.1. Setjið 1 merki í miðjulykkju fyrir miðju undir ermi, merkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkið fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað A.1 hringinn yfir allar lykkjur JANFFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 4-4-5-7-7-7-8 sinnum í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½-1½ cm = 44-46-48-50-52-56-58 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-48-47-47-45-45-46 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í umferð 1 = 54-56-58-60-62-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-6-6 cm fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Ermin mælist ca 51-52-51-52-50-51-52 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu fyrir miðju að framan og prjónið upp ca 93-93-101-101-105-105-105 lykkjur í kringum hálsmál innan við ystu lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1, passið uppá að það sé prjónuð upp 1 lykkja í hvora af ystu 2 lykkjum í kanti að framan og 2 lykkjur í hverja af næstu 5 lykkjum í kanti að framan (til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragi saman kant að framan). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið síðustu 2 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið síðustu 2 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Haldið svona áfram með kant í hálsmáli, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælis 4-4-5-5-6-6-6 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stoneveilcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.