DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku merino garni!
Product image DROPS Nord yarn
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526

Soft Braid Vest

Prjónað vesti úr 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, v-hálsmáli, skáhallandi öxl og i-cord. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 264-6

#softbraidvest

DROPS Design: Mynstur no-097
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S – M – L – XL – XXL – XXXL

GARN:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350-400 gr litur 29, Marsipan
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150-150 gr litur 56, Marsipan

Eða notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350-400 gr litur 9036, Hveiti
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150-150 gr litur 56, Marsipan

TÖLUR:
DROPS TALA NR 629: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 27 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
26 lykkjur á breidd og 27 umferðir á hæð með A.1/A.4 og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
3 mynstureiningar (= 24 lykkjur) með A.1/A.4 = ca 9 cm á breidd.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku í köðlum):
Fækkið um 2 lykkjur í hverjum kaðli frá réttu þannig (6 lykkjur í kaðli verða 4 lykkjur sléttprjón):
Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 14 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 14 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið þar til 16 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um handveg):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 9 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 9 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-4 (á við um kant í handvegi):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum 2 lykkjum), prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (kantur að framan = 7 lykkjur):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4. og 5. lykkju frá kanti fyrir miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, síðan halda lykkjurnar áfram frá framstykki eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-5-5 cm, fellið síðan af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 9, 15 og 22 cm
S: 10, 17 og 24 cm
M: 11, 18 og 25 cm
L: 11, 18 og 26 cm
XL: 11, 18 og 26 cm
XXL: 12, 19 og 27 cm
XXXL: 13, 21 og 28 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka hvort fyrir sig.
Þegar axlalykkjurnar hafa verið felldar af, er prjónaður listi í kanti að framan. Axlasaumar saumaðir. Listi í kanti að framan saumaður saman (saumur = miðja að aftan), síðan er listi í kanti að framan saumaður við hálsmál aftan í hnakka. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum handveg og kantar í handveg prjónaðir.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 268-300-332-332-364-396-428 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Nord eða 1 þræði DROPS Alpaca saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord.
UMFERÐ 2 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm.

Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið frá réttu þannig (mynstrið á að passa fallega yfir stroffið):
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 7-8-9-9-10-11-12 sinnum, prjónið A.2, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (= í hlið á fram- og bakstykki), prjónið A.3, prjónið A.4 alls 6-7-8-8-9-10-11 sinnum, prjónið A.5 (= miðja að aftan), prjónið A.1 alls 7-8-9-9-10-11-12 sinnum, prjónið A.2, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (= í hlið á fram- og bakstykki), prjónið A.3, prjónið A.4 alls 7-8-9-9-10-11-12 sinnum, endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið mynstur fram og til baka svona með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.
Munið að fylgja prjónfestunni.

Þegar stykkið mælist 23-25-26-27-27-28-29 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 2-2-2-2-2-2-4 lykkjur hvoru megin við báða merkiþræðina með því að fækka um 2 lykkjur í hverjum af 1-1-1-1-1-1-2 köðlum næst merkiþræði – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 8-8-8-8-8-8-16 lykkjur færri) = 260-292-324-324-356-388-412 lykkjur.

Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki.

SKIPTING VIÐ HANDVEG:
Í næstu umferð (= ranga) skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, umferðin er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 63-71-79-79-87-95-95 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af næstu 10-10-10-10-10-10-22 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir næstu 114-130-146-146-162-178-178 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 10-10-10-10-10-10-22 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir síðustu 63-71-79-79-87-95-95 lykkjur (= hægra framstykki), ekki klippa þráðinn. Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 63-71-79-79-87-95-95 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður – ysta lykkjan við handveg er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmál og handveg, lestu því báða kaflana að neðan og fækkið lykkjum þannig:

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á eftir fyrstu 14 lykkjum í umferð (= 7 kantlykkjur að framan, 6 lykkjur í kaðli, 1 lykkja brugðið) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 12-12-12-12-12-18-18 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 4-4-4-4-4-6-6 sinnum (= 16-16-16-16-16-24-24 lykkjur færri fyrir v-hálsmál).

HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg á undan síðustu 9 lykkjum í umferð (= 1 lykkja brugðið, 6 lykkjur í kaðli , 1 lykkja brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 6-12-22-22-22-20-20 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 2-4-2-2-2-4-4 sinnum (= 8-16-24-24-24-24-24 lykkjur færri fyrir handveg).

Eftir alla úrtöku eru 39-39-39-39-47-47-47 lykkjur í umferð (= 4-4-4-4-5-5-5 kaðlar við kant að framan og 1 lykkja í garðaprjóni að hlið). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 46-49-51-53-55-57-59 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú eru lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, byrjið frá röngu, þ.e.a.s. frá handveg, setjið ystu 8 lykkjur á þráð 4-4-4-4-5-5-5 sinnum – ATH: Til að þurfa ekki að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn = 32-32-32-32-40-40-40 lykkjur á þræði og 7 kantlykkjur að framan eftir á prjóni.
Ekki klippa þráðinn, heldur prjónið fram og til baka yfir 7 kantlykkjur að framan eins og áður þar til listi í kanti að framan mælist ca 7-7-7-7-7-10-10 cm frá öxl, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 63-71-79-79-87-95-95 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður – ysta lykkja við handveg er prjónuð í garðaprjóni – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli, lestu báða kaflana að neðan og fækkið lykkjum þannig:

HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg á eftir síðustu 9 lykkjum í umferð (= 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja brugðið, 6 lykkjur í kaðli, 1 lykkja brugðið) – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 6-12-22-22-22-20-20 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 2-4-2-2-2-4-4 sinnum (= 8-16-24-24-24-24-24 lykkjur færri fyrir handveg).

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á undan síðustu 14 lykkjum í umferð (= 1 lykkja brugðið, 6 lykkjur í kaðli, 7 kantlykkjur að framan) – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 12-12-12-12-12-18-18 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 4-4-4-4-4-6-6 sinnum (= 16-16-16-16-16-24-24 lykkjur færri fyrir v-hálsmál).

Eftir alla úrtöku eru 39-39-39-39-47-47-47 lykkjur í umferð (= 4-4-4-4-5-5-5 kaðlar við kant að framan og 1 lykkja í garðaprjóni að hlið). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 46-49-51-53-55-57-59 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú eru lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, byrjið frá réttu, þ.e.a.s. frá handveg, setjið ystu 8 lykkjur á þráð 4-4-4-4-5-5-5 sinnum – ATH: Til að þurfa ekki að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn = 32-32-32-32-40-40-40 lykkjur á þræði og 7 kantlykkjur að framan eftir á prjóni.
Ekki klippa þráðinn, heldur prjónið fram og til baka yfir 7 kantlykkjur að framan eins og áður þar til listi í kanti að framan mælist ca 7-7-7-7-7-10-10 cm frá öxl, fellið af.

BAKSTYKKI:
= 114-130-146-146-162-178-178 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 6-12-22-22-22-20-20 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 2-4-2-2-2-4-4 sinnum = 98-98-98-98-114-130-130 lykkjur.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 46-49-51-53-55-57-59 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að fækka lykkjum fyrir hálsmáli JAFNFRAMT sem lykkjur eru settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, lestu báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram.

HÁLSMÁL:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur í hvern af 4-4-4-4-4-6-6 miðju köðlum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 8-8-8-8-8-12-12 lykkjur færri). Í næstu umferð eru felldar af miðju 22-22-22-22-22-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 34-34-34-34-42-42-42 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum.

ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-49-51-53-55-57-59 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á framstykkjum, þ.e.a.s. byrjið frá handvegi, setjið ystu 8 lykkjur á þráð 4-4-4-4-5-5-5 sinnum = 32-32-32-32-40-40-40 lykkjur á þræði. Klippið þráðinn.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Setjið til baka lykkjur frá annarri skáhallandi öxlinni á prjóna 3,5, prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum samtímis um 8-8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 24-24-24-24-30-30-30 lykkjur (til að koma í veg fyrir göt þar sem lykkjurnar eru settar á þráðinn er þráðurinn tekinn upp á milli 2 lykkja og prjónaður snúinn slétt saman með fyrstu lykkju í næstu umferð). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu.
Endurtakið á hvorri öxl.
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn þannig að það verða 2 umferðir brugðið (séð frá réttu) að hvorri annarri fyrir miðu ofan á öxl.
Saumið lista í kanti að framan saman innan við affellingarkantinn (saumur = miðja að aftan). Saumið lista í kanti að framan við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstra framstykki.

KANTAR Í HANDVEGI:
Setjið 1 merki neðst í handveg og 1 merki í axlasauminn.
Byrjið neðst í handvegi, notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp ca 104-112-112-120-128-136-144 lykkjur í kringum handveg innan við 1 lykkju (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 8) – stillið af að það séu jafn margar lykkjur í hvorri hlið á milli 2 merkja og stillið af þannig að það verður 1 lykkja slétt hvoru megin við bæði merkin (stroff = 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið).
Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff, en í annarri hverri umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 2 merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-4. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm og stroffið gangi jafnt upp með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 264-6
Diagram for DROPS 264-6

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softbraidvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.