Canyon Twist Cardigan#canyontwistcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-8-7-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-129-129-137-143-145-153 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Fiesta – fitjið e.t.v. upp með ítalskri uppfitjun – sjá myndböndin okkar. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið/1 lykkja slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir og prjónið kant að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir og prjónið kant að framan með i-cord. Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm – endið eftir umferð frá röngu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í aðra hliðina, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 8 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við 3 lykkjur, þessar 3 lykkjur eru núna kallaðar laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. Teljið 22-24-24-24-26-26-26 lykkjur (= framstykki), Setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 3-3-3-3-3-3-3 lykkjur (= laskalykkjur/A.1), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 17-17-17-21-21-21-25 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 3-3-3-3-3-3-3 lykkjur (= laskalykkjur/A.1), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 31-35-35-35-37-39-39 (= bakstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 3-3-3-3-3-3-3 lykkjur (= laskalykkjur/A.1), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 17-17-17-21-21-21-25 lykkjur (= ermi), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 3-3-3-3-3-3-3 lykkjur (= laskalykkjur/A.1), setjið 8. merki á undan næstu lykkju, það eru 22-24-24-24-26-26-26 lykkjur á eftir síðasta merki (= framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þannig: LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1 yfir laskalykkjurnar. Jafnframt er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar/A.1 (= 8 lykkjur fleiri) – að auki er aukið út um 0-0-0-0-0-2-3 lykkjur jafnt yfir á hvoru framstykki og 0-0-0-0-0-4-6 lykkjur jafnt yfir á bakstykki = 129-137-137-145-151-161-173 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1 - munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar/A.1 (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 19-25-27-21-24-30-29 sinnum (= 40-52-56-44-50-62-60 umferðir prjónaðar) = 281-337-353-313-343-401-405 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar/A.1 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón og A.1, aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 5. merki og á eftir 4. og 8. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og A.1. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 3-1-1-5-4-2-3 sinnum (= 12-4-4-20-16-8-12 umferðir prjónaðar = 3-1-1-5-4-2-3 sinnum útaukning á ermum og 6-2-2-10-8-4-6 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 317-349-365-373-391-425-441 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 26-28-30-32-33-35-36 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 23-27-29-27-29-33-33 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón og A.1 án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-23-23-24-25-26 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykkjum/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 44-48-50-52-57-62-66 lykkjur eins og áður, setjið næstu 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-97-101-105-113-125-133 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-48-50-52-57-62-66 lykkjur í sléttprjóni og prjónið kant að framan eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 207-223-239-255-281-303-327 lykkjur. Prjónið kanta að framan eins og áður og sléttprjón þar til stykkið mælist 43-46-48-48-50-52-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 48-52-56-60-70-72-76 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = = 255-275-295-315-349-375-403 lykkjur. Prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-50-52-53-55-57-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 51-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-16-20-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 71-79-87-91-95-101-105 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 4-2½-2-2-2-1½-1½ cm alls 7-11-13-14-13-15-16 sinnum = 53-53-57-59-63-65-67 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 31-31-31-31-31-30-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 13-15-15-15-15-17-17 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-68-72-74-78-82-84 lykkjur. Þegar stroffið mælist 11-11-11-12-12-13-13 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-42-43-43-43-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #canyontwistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.