Misty Hill#mistyhillsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI – frá réttu: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI – frá réttu: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI – frá röngu: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI – frá röngu: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-86-90-92-96 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 3 umferðir slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 8-4-2-14-12-8 lykkjur jafnt yfir = 88-88-88-104-104-104 lykkjur. Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja. Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Byrjið fyrir miðju að aftan: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri), snúið stykkinu þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðrum merkiþræðinum, þegar stykkinu er snúið við myndast lítið gat – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræðinum eða nota aðferðina undir LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta merkiþræðinum. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin fyrstu 2 merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri), prjónið slétt að miðju að aftan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu við hvern merkiþráð = 136-136-136-152-152-152 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað hringinn yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Nú er einungis aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út 14-16-20-22-24-24 sinnum á fram- og bakstykki (7-8-10-11-12-12 sinnum á ermum). Aukið hefur verið út 20-22-26-28-30-30 sinnum á fram- og bakstykki og 13-14-16-17-18-18 sinnum á ermum ásamt útaukningu í hálsmáli. Nú eru 220-232-256-284-296-296 lykkjur í umferð. Stærð S, M, L, XXL og XXXL (útaukning í stærð XL er lokið): Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermar er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-3-2-0-1-5 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 23-25-28-28-31-35 sinnum á fram- og bakstykki og 13-14-16-17-18-18 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 232-244-264-284-300-316 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist ca 21-24-26-26-30-34 cm, mælt frá miðju að framan eftir stroffi í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 35-37-40-44-47-51 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið þær 35-37-40-44-47-51 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-204-220-240 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-16-15-17-16-14 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 200-212-228-252-272-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 46-48-52-54-56-56 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-64-68-72-74 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 4-3-2½-2½-1½-1 cm alls 4 sinnum = 48-52-56-60-64-66 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 18-15-14-14-11-7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af með sokkaprjónum 5,5. Ermin mælist ca 20-17-16-16-13-9 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistyhillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.