Annelise skrifaði:
Jeg er igang med en Small. Strikkefastheden er overholdt, men der mangler et nøgle garn. Jeg vil foreslå, at I ændre til 650 for størrelse Small. Det er ret dyrt i fragt, at skulle købe et enkelt ekstra nøgle.
18.01.2025 - 10:49
Hanne skrifaði:
Hej Lene, Der skal tages 2 ind (1 over hvert ærme) og 2 ud (1 over hvert stykke for og bag), så det går i nul og dermed = de 96. Men hvorfor denne øvelse aner jeg ikke 😂🙈
27.10.2024 - 19:04
Lene skrifaði:
Jeg forstår at man skal slå 96 masker op i str. S, men efter deling til raglan skal der tages 4 masker ud og alligevel er der kun 96 masker på pinden inden mønster begyndes? Og passer de øvrige tal for udtagninger så i resten af opskriften? På forhånd tak.
26.10.2024 - 06:01DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Jo, du feller 1 maske over hver erme og øker med 1 maske foran og bak. Maskeantallet blir det samme som ved halskanten, men med å felle/øke vil mønstret (A.1) bli likt på begge sider av raglanlinjene på plagget. mvh DROPS Design
28.10.2024 - 12:58
Precious Time#precioustimesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= lykkja með merki), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-96-104-104-112-112 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Prjónið stroff svona hringinn í 11-11-11-11-13-13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-5-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-34-34-36-36 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5,5. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt frá stroffi, þessar 2 lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið fyrstu umferð slétt þannig: Setjið 1. merkiþráðinn í byrjun umferðar, prjónið 16 lykkjur JAFNFRAMT því sem fækkað er um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, prjónið 32-32-36-36-40-40 lykkjur JAFNFRAMT sem aukið er út um 1-1-1-3-3-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, prjónið 32-32-36-36-40-40 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-1-3-3-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki) = 96-96-104-108-116-120 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 hringinn, en laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 19-21-22-23-25-25 sinnum = 248-264-280-292-316-320 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 4-4-4-4-4-6 sinnum til viðbótar = 264-280-296-308-332-344 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm frá merki eftir kant í hálsmáli – stillið af að síðasta umferðin sé annað hvort 2. eða 5. umferð í A.1 þannig að næsta umferð í mynstri sé prjónuð slétt. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 53-57-59-61-65-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-9-9-13-15-17 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 79-83-89-93-101-107 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 53-57-59-61-65-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-9-9-13-15-17 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 79-83-89-93-101-107 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-212-232-248 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í þær 7-9-9-13-15-17 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð í lykkju með merki og prjónið hringinn í mynstri A.1 eins og áður – stillið af að mynstrið haldi áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki, laskalykkjurnar eru ekki prjónaðar lengur í sléttprjóni og nýjar lykkjur undir ermi í hvorri hlið eru stilltar af við mynstur á fram- og bakstykki. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-54 cm frá merki mitt að framan – stillið af að síðasta umferð sé 3. eða 6. umferð í A.1. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-32-36-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 204-216-232-248-272-292 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-57-59-61-65-65 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-9-9-13-15-17 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-66-68-74-80-82 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af nýjum lykkjum undir ermi og látið merkið fylgja áfram með – umferðin byrjar hér. Lesið LEIÐBEININGAR ERMI og prjónið mynstur A.1 eins og áður – stillið af að mynstrið haldi áfram frá berustykki yfir á ermi, lykkja með merki í á að prjóna í sléttprjóni mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-4-4-3-2-2 cm alls 7-9-9-11-13-13 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-37-37-34-33 cm frá skiptingunni – stillið af að síðasta umferð sé 3. eða 6. umferð í A.1. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt/ 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-8-6-8-10-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-56-56-60-64-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-42-40-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #precioustimesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.