Jenny skrifaði:
Muss ich die Maschenprobe mit der 4,5er Nadel oder mit der 3er Nadel machen?
28.11.2024 - 17:07DROPS Design svaraði:
Liebe Jenny, Maschenprobe wird mit der grösseren Nadel gestrickt, hier Nr 3,5. Viel Spaß beim Stricken!
29.11.2024 - 08:14
Britt-Marie Abrahamsson skrifaði:
Hej, det gäller ärmen.\r\nSka man mäta från axeln efter att man stickat ärmkullen klart tills man börjarmed mönster? Isf. är det 4cm vid axeln och 2 cm vid armhålet. \r\nMvh \r\nBritt-Marie Abrahamsson
19.11.2024 - 11:20
Anne-Mona Kambestad skrifaði:
Hei jeg forstår ikke økningen i begynnelsen av bakre stykke. Hvordan kan 17 økninger gi 34 pinner strikket? Skal man ikke øke på hver pinne?
18.11.2024 - 13:32DROPS Design svaraði:
Hei Anne-Mona, Du skal strikke både 2. og 3. pinne x 17. Det blir 2 pinner x 17 = 34 pinner totalt. God fornøyelse!
19.11.2024 - 10:53
Adrianna skrifaði:
Gdy mam używać dwóch kolorów tła to powinnam nabrać raz oczko jednego koloru tła raz drugiego koloru tła czy połączyć włóczki jasne i nabierać jedno oczko nitką splecioną z dwóch nitek?
16.11.2024 - 22:12DROPS Design svaraði:
Witaj Adrianno, sweter jest przerabiany 2 nitkami razem. Kolor tła to kolor ecru. Nabierasz oczka włóczką Baby Merino biały i Kid-Silk ecru razem (nitka , którą przerabiasz składa się z 2 nitek). Pozdrawiamy!
18.11.2024 - 08:42
Sophie skrifaði:
Ich habe das Muster nun einmal auf dem Rücken gestrickt. Ich komme auf ca. 10.5 cm. Zwischen den Mustern sind auf dem trage Bild auch Spalten mit der Grundfarbe. Wie lang sind diese?
10.11.2024 - 19:05DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, siehe unter MUSTER, es sind je nach der Grösse 4 oder 5 cm zwischen den Diagrammen. Viel Spaß. beim Stricken!
11.11.2024 - 09:41
Sophie skrifaði:
Ich habe das Muster nun einmal auf dem Rücken gestrickt. Ich komme auf ca. 10.5 cm. Zwischen den Mustern sind auf dem trage Bild auch Spalten mit der Grundfarbe. Wie lang sind diese?
10.11.2024 - 19:05
Hélène skrifaði:
Bonjour, j’aime beaucoup ce modèle mais j’aimerais le tricoter avec la qualité Alaska (groupe C). Je m’embrouille un peu dans les calculs. Que me recommandez vous pour une taille M ?
09.11.2024 - 13:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, une laine du groupe C n'aura pas le même échantillon que ce modèle, vous pouvez utiliser en base un modèle similaire d'un échantillon de 17-16 mailles (cf ici) et y adapter les diagrammes. Bon tricot!
11.11.2024 - 08:23
Alya skrifaði:
Halo garn studio, saat sedang mengerjakan rajutan menggunakan jarum melingkar, saya masih bingung dengan berapa panjang ukuran jarum melingkar yang akan saya gunakan, contohnya seperti saat mengerjakan bagian belakang dan bagian leher... terima kasih!!!
04.11.2024 - 14:45
Anne Akay skrifaði:
I love this pattern! I am making size XL so I have 30 stitches under the sleeve after I have joined the front and back. How do I work A1 (20 stitches) to fit nicely into those 30 stitches? Thanks!
03.11.2024 - 20:56DROPS Design svaraði:
Dear Anne, in the body you should have 13 stitches under the sleeve, not 30. The pattern will not match under the sleeves but it doesn't matter, since it won't be too visible. You need to take into account the center pattern and calculate where the pattern gets cut under the sleeve. You can read the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=39&cid=19. Happy knitting!
03.11.2024 - 22:44
Dora skrifaði:
Is it okay that my knitting tension is 18st x 28rows, not exactly as the pattern says?
03.11.2024 - 15:15DROPS Design svaraði:
Dear Dora, yes, you can use that gauge to work, but take it into account and check your work's measurements regularly as you work so as to adjust the number of stitches/rows when necessary. Happy knitting!
03.11.2024 - 19:18
Far Away#farawaysweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-8 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynstur er prjónað þannig: * Prjónið A.1 einu sinni á hæðina, prjónið 4-4-4-4-5-5 cm með grunnlit *, prjónið frá *-* þar til A.1 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, síðan er peysan prjónuð til loka með grunnlit. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykkið niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað með mynstri niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 37-37-41-45-45-49 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Baby Merino í litnum hvítur og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum natur (= 2 þræðir, héðan í frá kallaðir grunnlitur). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-17-17-18-20-22 sinnum (= 30-34-34-36-40-44 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 97-105-109-117-125-137 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan þannig: Prjónið 2 lykkjur með grunnlit, sjá ör sem sýnir byrjun á þinni stærð og prjónið síðustu 6-0-2-6-0-6 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 80-100-100-100-120-120 lykkjur, prjónið 7-1-3-7-1-7 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið), prjónið 2 lykkjur með grunnlit. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm frá merki yst í hliðinni, endið með umferð frá röngu og athugið í hvaða umferð í mynstri þetta sé. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál með litnum hveiti og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju með grunnlit = 30-34-34-36-40-44 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 prjónaðar umferðir) = 33-37-37-39-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Prjónið 2 umferðir með mynstur eftir A.1 með 2 lykkjur í grunnlit við handveg. Umferð 1 og 2 í A.1 hefur nú verið prjónað til loka. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-34-34-36-40-44 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 prjónaðar umferðir) = 33-37-37-39-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Prjónið 2 umferðir með mynstur eftir A.1 með 2 lykkjur með grunnlit við handveg. Umferð 1 og 2 í A.1 hefur nú verið prjónað til loka. Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu með grunnlit þannig (þessi umferð er umferð 3 í A.1): Prjónið 33-37-37-39-43-47 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 31-31-35-39-39-43 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 33-37-37-39-43-47 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 97-105-109-117-125-137 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með grunnlit (þessi umferð er umferð 4 í A.1). Prjónið síðan þannig, frá umferð 5 í A.1: 2 lykkjur með grunnlit, sjá ör sem sýnir byrjun í þinni stærð og prjónið síðustu 6-0-2-6-0-6 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 80-100-100-100-120-120 lykkjur, prjónið 7-1-3-7-1-7 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið 2 lykkjur með grunnlit). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm – passið uppá að þetta sé sama umferð og á bakstykki. Nú eru stykkin sett saman. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 4-4-6-7-9-9 nýjar lykkjur í umferð, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir 97-105-109-117-125-137 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 7-7-11-13-17-17 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir 97-105-109-117-125-137 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 3-3-5-6-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 208-224-240-260-284-308 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring í umferðinni, A.1 er prjónað yfir allar lykkjur. ATH! Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum, prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hliðum á fram- og bakstykki. Miðjulykkja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið er alltaf prjónuð með grunnlit. Prjónið þar til framstykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff með grunnlit (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 228-246-264-286-312-338 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Framstykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-6-6-6-7-7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 2,5 og grunnlit og byrjið í miðjulykkju sem fitjuð var upp mitt undir ermi - prjónið upp 82-86-94-102-110-114 lykkjur með grunnli – stillið af að prjónaðar sé upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi og færið merkið frá öxl að miðjulykkju mitt ofan á ermi – það eiga að vera jafnmargar lykkjur á milli lykkja með merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu svo að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-12-12-12-14 lykkjur fram hjá lykkju með merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-12-12-12-14 lykkjur fram hjá lykkju með merki, snúið stykkinu . UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við alls 8 sinnum (= 4 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merki í miðju af nýjum lykkjum undir ermi. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur í sléttprjóni og mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi – lesið MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en prjónað er áfram. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku áður en prjónað er áfram. Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka og prjóna á ermina í hring, prjónið mynstur þannig: Prjónið með grunnlit þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm, prjónið síðan A.1 hringinn á ermi - mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá lykkju með merki mitt ofan á öxl hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með merki í mitt ofan á ermi á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.1. Prjónið mynstur eins og á fram- og bakstykki, en þegar prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar með A.1 á hæðina, prjónið ermina til loka með grunnlit. ÚRTAKA: Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi fækkið um 2 lykkjur 4-4-5-6-7-8 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-1½-1½-1½ cm alls 9-10-12-15-17-17 sinnum = 56-58-60-60-62-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-44-42-41-39 cm mælt frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 62-64-66-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 51-50-50-49-48-46 cm frá merki mitt ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5 og grunnlit. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 112 til 148 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-10-10-10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #farawaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.