Marii skrifaði:
Hei, voiko mallin neuloa C-langoilla? Mitä lankoja tällöin suosittelisitte? Kiitos!
31.10.2026 - 14:45DROPS Design svaraði:
Voit neuloa puseron 1-kertaisella langalla lankaryhmästä C. Jos neulot 1-kertaisella DROPS Air-langalla, puserosta tulee pehmeä ja ilmava. Tai voit käyttää DROPS Big Merino -lankaa, joka on myös hvin pehmeä ja lämmin lanka.
02.11.2026 - 16:07
Francine skrifaði:
Quelle est la longueur du tricot uni entre les diagrammes ?
21.10.2026 - 18:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Francine, en fonction de votre taille, vous tricoterez 4 ou 5 cm en uni - cf JACQUARD au début des explications. Bon tricot!
22.10.2026 - 08:49
Francine skrifaði:
Dans un diagramme jacquard, lorsque je tricote un rang envers et que je commence selon la flèche indiquée par la taille, je dois reprendre au début du rang de gauche à droite par-là suite? Ex au 6 e rang XL, je tricote 2 mailles en jersey et les 6 dernières mailles puis je recommence le rang? Est-ce correct?
13.10.2026 - 15:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Francine, effectivement, notez la dernière maille tricotée sur l'endroit et en début de rang sur l'envers, vous commencerez par cette maille et vous lirez de gauche à droite avant de répéter le motif en entier de gauche à droite. Bon tricot!
14.10.2026 - 06:43
Francine skrifaði:
Dans un diagramme jacquard, lorsque je tricote un rang envers et que je commence selon la flèche indiquée par la taille, je dois reprendre au début du rang de gauche à droite par-là suite? Ex au 6 e rang XL, je tricote 2 mailles en jersey et les 6 dernières mailles puis je recommence le rang? Est-ce correct?
13.10.2026 - 15:19
Francine skrifaði:
Lorsqu’on tricote le diagramme en jacquard en aller retour, est-ce que je suis le rang donné( 2e) lorsque je tricote sur l’envers?
05.10.2026 - 20:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Francine, les diagrammes montrent tous les rangs du motif, ceux sur l'endroit mais aussi ceux sur l'envers, ainsi, sur l'endroit, vous lisez le diagramme de droite à gauche et sur l'envers de gauche à droite. Bon tricot!
06.10.2026 - 08:41
Francine skrifaði:
Est que je dois commencer le diagramme au coin droit et arrêter a la grandeur voulue soit à l’endroit indiqué par la flèche ex coin droit jusqu’à la flèche L ?
30.09.2026 - 01:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Francine, commencez le diagramme à la flèche indiquée pour votre taille et lisez (sur l'endroit) de droite à gauche), puis répétez le diagramme en entier jusqu'à la fin du rang. Autrement dit, en taille L, tricotez les 2 dernières mailles du diagramme (celles de gauche), puis répétez 5 fois les 20 mailes du diagramme (100 mailles de A.1) et tricotez les 3 premières mailles de A.1. Sur l'envers, tricotez les 3 dernières mailles de A.1 (on lit maintenant de gauche à droite), répétez A.1 et terminez par les 2 dernières mailles de A.1. Bon tricot!
30.09.2026 - 08:25
Lilith skrifaði:
Jeg forstår ikke åssen man skal strikke ermetoppen uten å få hull. Pinne 3 og 4 skal strikkes fire ganger hver, men dette resulterer jo i at kantene av ermetoppen er mye lengre enn maskene ved siden av ermetoppen. Altså det er ingen gradvis økning rundt ermetoppen, den strikkes bare rett frem. Hvordan skal jeg gjøre dette uten å få et stort hull mellom kanten på ermetoppen og masken ved siden av? (Jeg har prøvd german short rows, men dette endrer jo ingenting?)
28.08.2026 - 14:08DROPS Design svaraði:
Hei Lilith. Ved å strikke forkortede pinner former man ermtoppen slik at den ligger penere. Ta gjerne en titt på de hjelpevideoen vi har, både "Hvordan strikke et erme til et plagg med europeisk skulder med forkortede pinner" og "Hvordan strikke German Short Rows – med dobbeltmaske frem og tilbake på pinnen". Da skal du ikke få noen store hull. Klikk på Videoer til høyre /eller under bildet for videoer. mvh DROPS Design
31.08.2026 - 13:13
Anna skrifaði:
Hej! Jag får rätt längd och bredd på stickfastprovbiten men när jag mäter bakstyckets bredd så saknas det nästan 10cm från bredden på mönstret. Även om jag skulle sticka ännu lösare över stjärnmönstret så skulle det ändå inte bli rätt mått. Ska jag gå upp en stl på stickorna? Eller sticka i en större storlek?
07.06.2026 - 20:22DROPS Design svaraði:
Hej Anna, kom ihåg att du får ett antal nya maskor i varje sida när du sätter ihop fram och bakstycke :)
09.06.2026 - 09:36
Malin skrifaði:
Hallo, ein wirklich tolles Muster! Mir geht es allerdings wie Barbara. Ich habe nun mit der Grundfarbe die fehlenden cm gestrickt, sehe aber auf allen Bildern, dass nach dem letzten Muster direkt mit dem Bündchen begonnen wird, was auch besser aussieht in meinen Augen. Messen wir ab einem falschen Punkt? Die Maschenprobe hier ist auch wirklich spannend. Ich habe immer eine Nadelstärke mehr, hier aber 2, was bei der Dicke der Garne zusammen eigentlich nicht ungewöhnlich erscheint. LG und danke
27.03.2026 - 13:47
Barbara skrifaði:
Hoi, als ik de aanwijzingen in maat S volg voor het voorpand dan moet ik na 61 cm aan de boord beginnen. A1 is 31 naalden, dus 11,5 cm en er zit 4 cm tussen de patroondelen. Het begin van het voorpand bestaat uit 10 cm + 6 naalden = 12 cm waarna het eerste patroon wordt gebreid. Op de foto zie ik driemaal het patroon + 2 witte strepen voor de boord begint. Dat is 42,5 cm. Plus de 12 cm aan het begin maakt 54,5 cm. Dan kom ik 6,5 cm tekort om op 61 cm te komen. Wat doe ik verkeerd?
07.03.2026 - 20:23
Far Away#farawaysweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-8 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynstur er prjónað þannig: * Prjónið A.1 einu sinni á hæðina, prjónið 4-4-4-4-5-5 cm með grunnlit *, prjónið frá *-* þar til A.1 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, síðan er peysan prjónuð til loka með grunnlit. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykkið niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað með mynstri niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 37-37-41-45-45-49 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Baby Merino í litnum hvítur og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum natur (= 2 þræðir, héðan í frá kallaðir grunnlitur). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-17-17-18-20-22 sinnum (= 30-34-34-36-40-44 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 97-105-109-117-125-137 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan þannig: Prjónið 2 lykkjur með grunnlit, sjá ör sem sýnir byrjun á þinni stærð og prjónið síðustu 6-0-2-6-0-6 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 80-100-100-100-120-120 lykkjur, prjónið 7-1-3-7-1-7 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið), prjónið 2 lykkjur með grunnlit. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm frá merki yst í hliðinni, endið með umferð frá röngu og athugið í hvaða umferð í mynstri þetta sé. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál með litnum hveiti og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju með grunnlit = 30-34-34-36-40-44 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 prjónaðar umferðir) = 33-37-37-39-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Prjónið 2 umferðir með mynstur eftir A.1 með 2 lykkjur í grunnlit við handveg. Umferð 1 og 2 í A.1 hefur nú verið prjónað til loka. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-34-34-36-40-44 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 prjónaðar umferðir) = 33-37-37-39-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Prjónið 2 umferðir með mynstur eftir A.1 með 2 lykkjur með grunnlit við handveg. Umferð 1 og 2 í A.1 hefur nú verið prjónað til loka. Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu með grunnlit þannig (þessi umferð er umferð 3 í A.1): Prjónið 33-37-37-39-43-47 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 31-31-35-39-39-43 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 33-37-37-39-43-47 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 97-105-109-117-125-137 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með grunnlit (þessi umferð er umferð 4 í A.1). Prjónið síðan þannig, frá umferð 5 í A.1: 2 lykkjur með grunnlit, sjá ör sem sýnir byrjun í þinni stærð og prjónið síðustu 6-0-2-6-0-6 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 80-100-100-100-120-120 lykkjur, prjónið 7-1-3-7-1-7 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið 2 lykkjur með grunnlit). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm – passið uppá að þetta sé sama umferð og á bakstykki. Nú eru stykkin sett saman. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 4-4-6-7-9-9 nýjar lykkjur í umferð, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir 97-105-109-117-125-137 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 7-7-11-13-17-17 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir 97-105-109-117-125-137 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 3-3-5-6-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 208-224-240-260-284-308 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring í umferðinni, A.1 er prjónað yfir allar lykkjur. ATH! Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum, prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hliðum á fram- og bakstykki. Miðjulykkja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið er alltaf prjónuð með grunnlit. Prjónið þar til framstykkið mælist 57-59-61-62-64-66 cm. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff með grunnlit (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 228-246-264-286-312-338 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Framstykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki fyrir miðju ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-6-6-6-7-7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 2,5 og grunnlit og byrjið í miðjulykkju sem fitjuð var upp mitt undir ermi - prjónið upp 82-86-94-102-110-114 lykkjur með grunnli – stillið af að prjónaðar sé upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi og færið merkið frá öxl að miðjulykkju mitt ofan á ermi – það eiga að vera jafnmargar lykkjur á milli lykkja með merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu svo að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-12-12-12-14 lykkjur fram hjá lykkju með merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-12-12-12-14 lykkjur fram hjá lykkju með merki, snúið stykkinu . UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við alls 8 sinnum (= 4 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merki í miðju af nýjum lykkjum undir ermi. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur í sléttprjóni og mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi – lesið MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en prjónað er áfram. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku áður en prjónað er áfram. Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka og prjóna á ermina í hring, prjónið mynstur þannig: Prjónið með grunnlit þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm frá öxl, prjónið síðan A.1 hringinn á ermi - mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá lykkju með merki mitt ofan á öxl hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með merki í mitt ofan á ermi á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.1. Prjónið mynstur eins og á fram- og bakstykki, en þegar prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar með A.1 á hæðina, prjónið ermina til loka með grunnlit. ÚRTAKA: Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi fækkið um 2 lykkjur 4-4-5-6-7-8 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-1½-1½-1½ cm alls 9-10-12-15-17-17 sinnum = 56-58-60-60-62-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-44-42-41-39 cm mælt frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 62-64-66-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 51-50-50-49-48-46 cm frá merki mitt ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5 og grunnlit. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 112 til 148 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-10-10-10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #farawaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.