Marlena skrifaði:
Brak wyjaśnienia jak zamykać oczka na rękawach. There is no explanation how to close the stiches on sleeves.
23.02.2025 - 18:33DROPS Design svaraði:
Witaj Marleno, zgadza się. Zostanie to uzupełnione. Dziękujemy za informację i pozdrawiamy!
24.02.2025 - 17:13
Susana Santos skrifaði:
Ola! Obrigada antes de mais pelos modelos lindos!! tenho uma duvida nas carreiras encurtadas. Terminei e vou agora puxar dos ombros para fazer a manga e estou completamente baralhada nas carreiras encurtadas Começam a partir do meio do ombro certo? no tamalho L sao 8 pontos para cada lado mas depois perdi-me no como fazer as carreiras encurtadas e no virar qual é o video explicativo? muito grata
07.01.2025 - 12:43DROPS Design svaraði:
Bom dia! Muito obrigado pelas suas palavras! Pessoalmente, acho este modelo lindo. Sim, as carreiras encurtadas começam a meio do ombro. Aqui tem o link directo para o tutotial das carreiras encurtadas alemãs: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1794&lang=pt Bons tricôs! Bom Ano!!
08.01.2025 - 11:33
Susana Santos skrifaði:
Quando diz “COSTAS & FRENTE: Montar 2-3-3-4-4-5 malhas, depois continuar A.1 por cima das 85-91-97-103-113-121 malhas da frente (incluindo as 2 malhas na cor trigo de cada lado), montar 4-6-6-8-8-10 malhas (lado, meio sob a manga), continuar A.1 por cima das 85-91-97-103-113-121 malhas das costas, montar 2-3-3-4-4-5 malhas (lado, meio sob a manga) = 178-194-206-222-242-262 malhas.” quer dizer fazer montar as malhas e continuar a tricotar as restantes de forma seguida ? Obrigada
01.12.2024 - 01:35DROPS Design svaraði:
Bom dia, Sim, porque se vai unir as diferentes partes da camisola numa só peça. Bons tricôs!
02.12.2024 - 10:11
Louise skrifaði:
Maat M , rugpand :”en brei de eerste 17 steken zodat patroon symmetrisch wordt “ ik snap die 17 niet? Begonnen bij pijl maat M dus
20.10.2024 - 08:36DROPS Design svaraði:
Dag Louise,
A.1 wordt zo gepositioneerd op het achterpand dat de bloemvormen mooi in het midden komen. Daarom brei je eerst een aantal steken van het laatste stuk van A.1, dan brei je een aantal volledige herhalingen van A.1 en tot slot brei je de eerst steken van A.1.
20.10.2024 - 18:38
Madelaine skrifaði:
Passionflower pullover
09.08.2024 - 19:20
Dominique skrifaði:
Très joli modèle, intemporel. merci de bien vouloir indiquer dans vos modèles à motifs si ceux-ci sont symétriques ou pas, je suis gauchère ! (d'ailleurs peut-être que vous pourriez, dans vos FAQ/ Videos/Explications, rajouter des conseils de lecture pour gauchère pour la réalisation de motifs non symétriques). Merci pour tous ces jolis modèles.
09.08.2024 - 16:44
Nikole skrifaði:
Zuckerwatte (Cotton Candy)
09.08.2024 - 10:25
Isabelle skrifaði:
Superbe, j’en ferai bien mon premier pull en jacquard 😍😍😍
08.08.2024 - 23:25
Marie skrifaði:
Candygirl
08.08.2024 - 21:32
Chrissie Phillips skrifaði:
Winter Rose or Hellebore
08.08.2024 - 20:23
Bright Rose#brightrosesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykkið niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 31-33-35-37-39-39 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air í litnum hveiti. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 12-13-14-15-17-19 sinnum (= 24-26-28-30-34-38 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 79-85-91-97-107-115 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið 4 umferðir fram og til baka án útaukningar. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti, sjá ör sem sýnir byrjun á þinni stærð og prjónið síðustu 1-16-19-22-15-19 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 72-48-48-48-72-72 lykkjur, prjónið 2-17-20-23-16-20 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið 2 lykkjur með litnum hveiti. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 11-12-13-14-14-15 cm frá merki yst í hliðinni. Nú eru lykkjur auknar út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og A.1, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.1. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum = 85-91-97-103-113-121 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm og haldið áfram með mynstur og 2 lykkjur í litnum hveiti í hvorri hlið, mælt frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu – og merkið hvaða umferð í mynstrið sem er prjónuð í síðustu umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál með litnum hveiti og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 24-26-28-30-34-38 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 28-30-32-34-38-42 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg með litnum hveiti og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 24-26-28-30-34-38 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 28-30-32-34-38-42 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 28-30-32-34-38-42 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 23-25-27-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 28-30-32-34-38-42 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 79-85-91-97-107-115 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir sléttprjón með litnum hveiti. Haldið áfram í sléttprjóni í litnum hveiti þar til stykkið mælist 14-14-14-14-16-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið síðan þannig, frá réttu: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti, sjá ör sem sýnir byrjun fyrir þína stærð og prjónið síðustu 1-16-19-22-15-19 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 72-48-48-48-72-72 lykkjur, prjónið 2-17-20-23-16-20 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið), prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 23-24-25-26-28-29 cm. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og A.1, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.1. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum = 85-91-97-103-113-121 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm, haldið áfram með mynstur og 2 lykkjur í litnum hveiti í hvorri hlið, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu – passið uppá að þetta sé sama umferð eins og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 2-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur í umferð, haldið áfram með A.1 yfir 85-91-97-103-113-121 lykkjur frá framstykki (einnig yfir 2 lykkjur í hvorri hlið í litnum hveiti), fitjið upp 4-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), haldið áfram með A.1 yfir 85-91-97-103-113-121 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 178-194-206-222-242-262 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring, A.1 er prjónað yfir allar lykkjur. ATH! Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum, prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, í síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 180-192-204-216-240-264 lykkjur. Prjónið síðan með A.2, mynstrið gengur nú jafnt upp í heila mynstureiningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan í sléttprjóni og litnum hveiti. Prjónið þar til stykkið mælist 55-57-59-60-62-64 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaða upp efst á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff með litnum hveiti (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 212-224-240-256-284-312 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af. Framstykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6 til 7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 með litnum hveiti og byrjið í miðjulykkju sem fitjuð var upp mitt undir ermi - prjónið upp 70-74-78-84-88-94 lykkjur – stillið af að prjónaðar sé upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu svo að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá lykkju með merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu . UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-4-4-5-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-4-4-5-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 10-10-10-10-12-12 sinnum (= 5-5-5-5-6-6 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur í sléttprjóni og mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi – lesið MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en prjónað er áfram. MYNSTUR: Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka og prjóna á ermina í hring, prjónið A.3 hringinn á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá merki mitt ofan á öxl hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með merki í mitt ofan á ermi á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan með A.4, passið uppá að enda með nokkrar umferðir í litnum hveiti fyrir stroff. ÚRTAKA: Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi fækkið um 2 lykkjur 2-3-3-4-4-5 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-2½-2½-1½ cm alls 9-9-10-12-13-14 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-45-44-43-41-39 cm mælt frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 52-51-50-50-48-46 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og litinn hveiti. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 92 til 124 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.