DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Far Away

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 254-8
DROPS Design: Mynstur bm-115
Garnflokkur A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 gr litur 01, hvítur
200-200-250-250-300-300 gr litur 33, rafmagnsblár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 gr litur 01, natur
75-75-100-100-100-125 gr litur 21, koboltblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 27 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri með 1 þræði í hvorri tegund á prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
Mynstur er prjónað þannig: * Prjónið A.1 einu sinni á hæðina, prjónið 4-4-4-4-5-5 cm með grunnlit *, prjónið frá *-* þar til A.1 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, síðan er peysan prjónuð til loka með grunnlit.
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykkið niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað.
Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni.
Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað með mynstri niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna.
Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring.
Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 37-37-41-45-45-49 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Baby Merino í litnum hvítur og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum natur (= 2 þræðir, héðan í frá kallaðir grunnlitur).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-17-17-18-20-22 sinnum (= 30-34-34-36-40-44 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 97-105-109-117-125-137 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt!

Prjónið síðan þannig: Prjónið 2 lykkjur með grunnlit, sjá ör sem sýnir byrjun á þinni stærð og prjónið síðustu 6-0-2-6-0-6 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 80-100-100-100-120-120 lykkjur, prjónið 7-1-3-7-1-7 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið), prjónið 2 lykkjur með grunnlit. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm frá merki yst í hliðinni, endið með umferð frá röngu og athugið í hvaða umferð í mynstri þetta sé.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál með litnum hveiti og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju með grunnlit = 30-34-34-36-40-44 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 prjónaðar umferðir) = 33-37-37-39-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu).
Prjónið 2 umferðir með mynstur eftir A.1 með 2 lykkjur í grunnlit við handveg. Umferð 1 og 2 í A.1 hefur nú verið prjónað til loka.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-34-34-36-40-44 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 prjónaðar umferðir) = 33-37-37-39-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu).
Prjónið 2 umferðir með mynstur eftir A.1 með 2 lykkjur með grunnlit við handveg. Umferð 1 og 2 í A.1 hefur nú verið prjónað til loka.
Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman):
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu með grunnlit þannig (þessi umferð er umferð 3 í A.1):
Prjónið 33-37-37-39-43-47 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 31-31-35-39-39-43 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 33-37-37-39-43-47 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 97-105-109-117-125-137 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með grunnlit (þessi umferð er umferð 4 í A.1).

Prjónið síðan þannig, frá umferð 5 í A.1: 2 lykkjur með grunnlit, sjá ör sem sýnir byrjun í þinni stærð og prjónið síðustu 6-0-2-6-0-6 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 80-100-100-100-120-120 lykkjur, prjónið 7-1-3-7-1-7 fyrstu lykkjur í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið 2 lykkjur með grunnlit).
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm – passið uppá að þetta sé sama umferð og á bakstykki. Nú eru stykkin sett saman. Klippið þráðinn.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 4-4-6-7-9-9 nýjar lykkjur í umferð, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir 97-105-109-117-125-137 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 7-7-11-13-17-17 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir 97-105-109-117-125-137 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 3-3-5-6-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 208-224-240-260-284-308 lykkjur í umferð.
Nú er prjónað í hring í umferðinni, A.1 er prjónað yfir allar lykkjur. ATH! Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum, prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hliðum á fram- og bakstykki.
Miðjulykkja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið er alltaf prjónuð með grunnlit.
Prjónið þar til framstykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff með grunnlit (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 228-246-264-286-312-338 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af.
Framstykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-6-6-6-7-7 cm niður á framstykki).
Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 2,5 og grunnlit og byrjið í miðjulykkju sem fitjuð var upp mitt undir ermi - prjónið upp 82-86-94-102-110-114 lykkjur með grunnli – stillið af að prjónaðar sé upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi og færið merkið frá öxl að miðjulykkju mitt ofan á ermi – það eiga að vera jafnmargar lykkjur á milli lykkja með merki.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu svo að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-12-12-12-14 lykkjur fram hjá lykkju með merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-12-12-12-14 lykkjur fram hjá lykkju með merki, snúið stykkinu .
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við alls 8 sinnum (= 4 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merki í miðju af nýjum lykkjum undir ermi.
Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur í sléttprjóni og mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi – lesið MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en prjónað er áfram.

MYNSTUR:
Munið eftir úrtöku áður en prjónað er áfram.
Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka og prjóna á ermina í hring, prjónið mynstur þannig: Prjónið með grunnlit þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm, prjónið síðan A.1 hringinn á ermi - mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá lykkju með merki mitt ofan á öxl hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með merki í mitt ofan á ermi á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.1. Prjónið mynstur eins og á fram- og bakstykki, en þegar prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar með A.1 á hæðina, prjónið ermina til loka með grunnlit.

ÚRTAKA:
Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig:
Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi fækkið um 2 lykkjur 4-4-5-6-7-8 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-1½-1½-1½ cm alls 9-10-12-15-17-17 sinnum = 56-58-60-60-62-64 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-44-42-41-39 cm mælt frá öxl.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 62-64-66-66-68-70 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af.
Ermin mælist ca 51-50-50-49-48-46 cm frá merki mitt ofan á öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 2,5 og grunnlit. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 112 til 148 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-10-10-10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og fellið af aðeins laust.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl.

Mynstur

symbols = DROPS Baby Merino í litnum hvítur + DROPS Kid-Silk í litnum natur
symbols = DROPS Baby Merino í litnum rafmagnsblár + DROPS Kid-Silk í litnum koboltblár
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Sabine skrifaði:

Wunderschön!

26.09.2024 - 07:49

country flag Gosia skrifaði:

Oh my God i can't believe it's for free!!!!!! Love yo and thank you.

25.09.2024 - 11:25

country flag Magdalena skrifaði:

Porcelain Glow

11.08.2024 - 10:51

country flag Aurora skrifaði:

Crystal clear

11.08.2024 - 08:31

country flag Monika skrifaði:

Isblomma

10.08.2024 - 22:46

country flag Lisbeth skrifaði:

Nordic feel

10.08.2024 - 20:22

country flag Sandy skrifaði:

Fint! Väldigt lik mönstret ”Porcelain sweater” som varit viralt på sociala medier ett tag nu🧐

10.08.2024 - 18:39

country flag Hannah skrifaði:

The Azul Sweater

10.08.2024 - 15:11

country flag Su skrifaði:

Amsterdam

09.08.2024 - 15:20

country flag Jadzia skrifaði:

Frost on the window

08.08.2024 - 23:44