Anna skrifaði:
This pattern, shown in the photos, does not have braids. Is this description good?
18.09.2024 - 14:40DROPS Design svaraði:
Dear Anna, you will cross the stitches working cables over 2 sts on each side of front / back piece when working ribbing edge after vent. Happy knitting!
18.09.2024 - 15:48
Hasen skrifaði:
Die Strickanleitung ist sehr gut erklärt
18.09.2024 - 14:04
Stone Shore#stoneshoresweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. LEIÐBEININGAR KAÐLAR / FLÉTTA: Gerið kaðla / fléttu með 2 lykkjum án þess að nota kaðlaprjón þannig: TIL HÆGRI: Prjónið 2. lykkju á vinstri prjóni slétt eins og áður jafnframt því sem 1. Lykkjan á vinstri prjóni verður eftir á prjóni, prjónið síðan 1. lykkju á vinstri prjóni slétt. Sleppið báðum lykkjum af vinstri prjóni. TIL VINSTRI: Prjónið 2. lykkju á vinstri prjóni slétt í aftari lykkjubogann jafnframt því sem 1. lykkja á vinstri prjóni verður eftir á prjóni, prjónið síðan 1. lykkju slétt eins og áður. Sleppið báðum lykkjum af vinstri prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-96-96 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn þannig (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn tvöfaldur að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 29-29-31-31-33-33 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 6. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja frá stroffi og þessar lykkjur kallast nú laskalykkjur. Teljið 1 lykkju, setjið 1. merkiþráðinn í umferð (= byrjun umferðar), teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn í umferð, teljið 24-24-28-28-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn í umferð, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn í umferð, það eru eftir 24-24-28-28-32-32 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði fram að byrjun umferðar (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir / undan 2 laskalykkjum við hvern merkiþráð í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma – lesið útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-18-19-20-22-23 sinnum = 216-224-240-248-272-280 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2-2-2-3-3-4 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 46-48-50-50-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-10-10-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 62-64-70-74-82-86 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-50-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-10-10-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 60-62-68-71-79-82 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-144-156-168-184-204 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 4-8-8-10-10-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram að fyrri merkiþræðinum, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan, síðasta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan byrjun á umferð, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, setjið til baka merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 2. merkiþræði, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, setjið til baka merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, prjónið út umferðina eins og áður. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjóna lykkjur frá framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 66-72-78-84-92-102 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 20-22-28-30-30-36 lykkjur jafnt yfir í umferð = 86-94-106-114-122-138 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt – munið eftir útaukningu), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Prjónið síðan stroff JAFNFRAMT eru ystu 2 lykkjur í hvorri hlið fléttaðar í hverri umferð frá réttu. Lesið LEIÐBEININGAR KAÐLAR / FLÉTTA og prjónið þannig: Fléttið 2 lykkjur til hægri, prjónið stroff eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, fléttið 2 lykkjur til vinstri. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki þar til stroffið mælist 8 cm. Bakstykkið mælist 2 cm lengra en framstykki. ERMAR: Setjið 46-48-50-50-54-54 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-10-10-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-56-58-60-64-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðju á 4-8-8-10-10-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað eru um 2 lykkjur í hverjum 11-5-5-5-4-2½ cm alls 4-7-7-7-8-11 sinnum = 42-42-44-46-48-48 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-37-36-36-34-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-8-10-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-52-52-56-56-56 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-42-40-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stoneshoresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.