DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11011.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Eirin Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 252-15

#eirincardigan

DROPS Design: Mynstur li-179
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-500-550-600-700 gr litur 9020, perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 gr litur 01, natur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 630: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 21 umferð á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 5,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11011.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt / snúinn brugðið – svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 9 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 8 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 7 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-9-9½-10 cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð.
Á framstykkjum er fyrst prjónaður listi með í kanti að framan sem síðar er saumaður saman meðfram hnakka í frágangi í lokin, síðan er framstykkið prjónað með því að prjónaðar eru upp lykkjur meðfram annarri öxlinni á bakstykki.
Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út að hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveginn eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna.
Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = mitt að aftan, saumið lista í kanti að framan við lykkjur meðfram hálsmáli aftan í hnakka.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 30-30-32-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 4 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur brugðið.
EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-12-12-13-13-14 sinnum (= 22-24-24-26-26-28 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 74-78-80-84-86-90 lykkjur í umferð.
Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 11-12-11-12-11-10 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-4-4-6-8 sinnum (= 4-4-8-8-12-16 prjónaðar umferðir) = 78-82-88-92-98-106 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri listi í kanti að framan prjónaður og vinstra framstykki meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 10 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 9-9-9½-9½-10-10 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan á vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 10 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 22-24-24-26-26-28 lykkjur frá bakstykki) = 32-34-34-36-36-38 lykkjur.
Öll mál á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 8-9-8-9-8-9 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að auka út fyrir v-hálsmál, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg.
Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá betri yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10 kantlykkjur eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-7-8-8-9-9 sinnum (= 28-28-32-32-36-36 prjónaðar umferðir).
Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-5-5-5 sinnum (= 10-10-10-10-10-10 prjónaðar umferðir).
Nú hefur verið aukið út alls 12-12-13-13-14-14 sinnum fyrir v-hálsmáli. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 23-24-23-24-23-22 cm, aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-4-4-6-8 sinnum (= 4-4-8-8-12-16 prjónaðar umferðir).
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með umferð frá réttu.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri listi í kanti að framan og framstykki prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 10 lykkjur á hringprjón 6 á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar listi í kanti að framan mælist 9-9-9½-9½-10-10 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á að prjóna þær áfram yfir kanti að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 22-24-24-26-26-28 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 10 lykkjur frá lista í kanti að framan inn í umferð = 32-34-34-36-36-38 lykkjur í umferð.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 8-9-8-9-8-9 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að auka út fyrir v-hálsmál, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg.
Lestuð því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá betri yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 11 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið ÚTAUKNING-1, prjónið 1 lykkju slétt og 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 10 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-7-8-8-9-9 sinnum (= 28-28-32-32-36-36 prjónaðar umferðir).
Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 11 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-5-5-5 sinnum (= 10-10-10-10-10-10 prjónaðar umferðir).
Nú hefur verið aukið út alls 12-12-13-13-14-14 sinnum fyrir v-hálsmáli. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 23-24-23-24-23-22 cm, aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-4-4-6-8 sinnum (= 4-4-8-8-12-16 prjónaðar umferðir).
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.
Stykkið er nú mælt héðan !

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig:
Prjónið lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 2-4-4-8-10-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 78-82-88-92-98-106 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 2-4-4-8-10-10 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið lykkjur frá vinstra framstykki.
Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir v-hálsmáli.
Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið eru 174-186-198-214-230-246 lykkjur í umferð.
Til að kantur að framan leggist fallega neðst í v-hálsmálinu eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kanta að framan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Herðið á þræði og prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= rétta): Herðið á þræði og prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður fram og til baka yfir allar lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 26-27-28-28-29-30 cm frá handveg.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 37-39-43-45-49-51 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – lesið ÚTAUKNING-3 = 211-225-241-259-279-297 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 11 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kantlykkjur að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Framstykkin mælast 57-59-61-63-65-67 cm mælt frá uppfitjunarkanti, peysan mælist 54-56-58-60-62-64 cm (framstykkin eru lengri en loka mál þar sem framstykkin ná aðeins niður á bakstykki).

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handvegi og niður á við á hringprjón 5,5.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6 cm niður á framstykki).
Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5,5 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 58-64-66-76-80-84 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-6-4-5-5-4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-6-4-5-5-4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5-5-4-4-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5-5-4-4-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 10-10-14-14-18-20 sinnum (= 5-5-7-7-9-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með því að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu í byrjun umferðar (mitt undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur í hverjum hver 5-3½-3½-2½-2-2 cm alls 7-10-10-14-15-16 sinnum = 44-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-46-46-45-45-45 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-10-10-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-54-56-58-58-60 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 52-52-52-52-52-52 cm frá miðju ofan á öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan listann við lykkjur aftan í hnakka.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2024
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting í úrtöku á ermi.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 252-15

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eirincardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Michaela skrifaði:

Guten Tag! Wenn ich die Ärmel an das Rupfteil anstricke entstehen so große Maschen, durch das Wenden. Was mache ich falsch?

15.03.2025 - 13:55

country flag Tuula Paappanen skrifaði:

Miten viimeistellään kun työ on valmis, esim pitääkö kastella muotoon vai miten? Kiitos

11.02.2025 - 13:36

DROPS Design svaraði:

Hei, viimeistele neule siten, että kostutat sen kevyesti ja asetat sen muotoonsa kuivumaan.

11.02.2025 - 19:27

country flag Patricia TARBOURIECH skrifaði:

Bonjour, Merci beaucoup pour la correction. Très cordialement. Patricia

27.11.2024 - 16:37

country flag Maria skrifaði:

Solution for sleeve size M: decrease 10 times 2 stitches, every 7th manche.

17.11.2024 - 19:39

country flag Maria skrifaði:

I have the same problem described by Catherine et Stephane. The count doesn’t add up in the sleeve: from 66 to 46 stitches would take 10 times 2 decreases, instead of the described 5 (or 6) for size M. Looking forward to hear from you!

17.11.2024 - 16:44

DROPS Design svaraði:

Dear Maria, as indicated to Catherine and Stephanie, our designers are checking the pattern right now and will correct any errors found. Once we have an answer from them we will correct the online pattern. Thank you for your patience.

17.11.2024 - 23:39

country flag Catherine skrifaði:

Bonjour, j'ai le même problème que Stéphanie : avec 66 mailles pour les manches au départ, je diminue 2x5 mailles(-10 m), il me reste donc 56 m... et pas 46 m, pouvez-vous me répondre?

09.11.2024 - 23:05

DROPS Design svaraði:

Comme indiqué précédemment, cette question a été transmise à nos stylistes, merci d'avance pour votre patience.

11.11.2024 - 08:50

country flag Stéphanie skrifaði:

Bonjour Oui je parle bien des manches mais si on diminue 5x2 mailles ça fait une diminution de 10 mailles. Si on a 64 m relevées on doit avoir 54 mailles après les diminutions et non 44 !?

04.11.2024 - 13:14

DROPS Design svaraði:

Effectivement, j'ai transmis à nos stylistes qui vont vérifier, merci d'avance pour votre patience.

04.11.2024 - 14:43

country flag Stéphanie skrifaði:

Bonjour Il faut monter 64 m (taille dans laquelle je tricote) et diminuer 2 mailles 5 fois Il est noté = 44 mailles. Je ne comprends pas comment on obtient ça si on diminue 10 mailles ?

03.11.2024 - 18:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Stéphanie, vous parlez des manches, exact? En taille M, vous relevez 64 mailles autour de l'emmanchure, vous tricotez les rangs raccourcis puis, quand la manche mesure 2 cm à partir du début, mesuré sous la manche, vous diminuez 5 x 2 mailles tous les 7 cm, vous avez ainsi 44 mailles quand toutes les diminutions sont faites. Bon tricot!

04.11.2024 - 09:42

country flag Maria skrifaði:

Hallo, bei den Ärmelabnahmen (bei Größe M) werden 5x 2 Maschen abgenommen =46 Maschen. Wenn ursprünglich 66 Maschen sind, wären es dann nicht 56 nach den Abnahmen? Danke für ihre Hilfe

28.10.2024 - 20:35

DROPS Design svaraði:

Liebe Maria, eine Korrektur erfolgt, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!

25.11.2024 - 14:34

country flag Stéphanie skrifaði:

Après avoir réuni le dos et les deux devants on a 182 mailles. Il est dit de continuer les augmentations pour l’encolure V jusqu’à avoir 186 mailles. Il n’y a pas d’explication sur ces augmentations.

20.10.2024 - 22:52

DROPS Design svaraði:

Bonjour Stéphanie, vous continuez simplement à augmenter pour l'encolure V comme vous le faisiez auparavant sur chacun des devants. Si vous aviez 182 m au moment de remettre vos mailles ensemble, il vous manque 4 mailles, soit 2 rangs d'augmentations. Bon tricot!

21.10.2024 - 09:26