Julia skrifaði:
Hallo, mir ist aufgefallen, dass es in der Anleitung Unklarheiten gibt. Soll das Vorderteil und die Ärmel mit Nadelstärke 3,5 oder 4 gestrickt werden? Ich vermute, dass Nadelstärke 4 korrekt ist. Könnten Sie das bitte überprüfen und gegebenenfalls korrigieren, vielen Dank.
13.02.2025 - 20:09DROPS Design svaraði:
Liebe Julia, die Ärmel werden mit Nadeln 5 und 4 gestrickt, eine Korrektur erfolgt, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!
14.02.2025 - 08:36
Francine Deguel skrifaði:
Bonjour, je pense qu'il y a un soucis pour l'encolure devant , si je fait aprés les mailles de montage du devant les 9 cm puis les augmentations comme vous dite je me retrouve avec une encolure trop basse, en voyant la vidéo c'est tout de suite que l'on commence les mailles en biais ? merci Francine
18.10.2024 - 06:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Deguel, les vidéos ne sont là que pour monter la technique, pour chaque modèle, la hauteur de l'encolure sera différente, ici en l'occurence, on va tricoter 9 cm avant d'augmenter pour l'encolure puis on va augmenter 4 fois (soit 8 rangs); on aura donc une encolure plus profonde que dans la vidéo (ou même dans la leçon). Bon tricot!
18.10.2024 - 08:48
North to Alaska#northtoalaskasweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, klauf í hliðum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-30-32-34-34-36 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 12-13-15-16-17-18 sinnum (= 24-26-30-32-34-36 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 78-82-92-98-102-108 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 11-12-10-10-9-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. Prjónið síðan í sléttprjóni – Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 13-14-15-15-15-15 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-3-4 sinnum (= 4-4-4-4-6-8 prjónaðar umferðir) = 82-86-96-102-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram öxl – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 24-26-30-32-34-36 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 28-30-34-36-38-40 lykkjur, (næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 24-26-30-32-34-36 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 28-30-34-36-38-40 lykkjur (= næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra framstykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 28-30-34-36-38-40 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-22-24-26-26-28 lykkjur fyrir hálsmál í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 28-30-34-36-38-40 lykkjur frá vinstra framstykki = 78-82-92-98-102-108 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 23-24-25-27-27-27 cm. Nú eru lykkjur auknar út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-3-4 sinnum (= 4-4-4-4-6-8 prjónaðar umferðir) = 82-86-96-102-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-29-30-31 cm, endið með eina umferð frá réttu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 82-86-96-102-108-116 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi) – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur), prjónið 82-86-96-102-108-116 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur) = 172-184-204-216-232-248 lykkjur í umferð. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið, byrjið umferð við merkiþráðinn, prjónið í hring. Prjónið þar til stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjóna fyrst lykkjur frá framstykki fram og til baka í umferð – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI: = 86-92-102-108-116-124 lykkjur í umferð. Prjónið síðan á prjón 4 og prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir – JAFNFRAMT er aukið út um 14-16-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir lykkjur í stroffprjóni, síðustu 5 lykkjur eru prjónaðar 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni = 100-108-120-128-136-144 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af. Framstykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er ca 2 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist 58-60-62-64-66-68 cm. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 5 til 6 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 72-78-80-84-90-94 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7-7-6-6-6-6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-6-6-6-6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-6-6-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 7-7-6-6-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 14-14-14-16-16-20 sinnum (= 7-7-7-8-8-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-10-10-12-12 sinnum (= 4-4-5-5-6-6 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með því að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 2 ½-2-2-1½-1½-1½ cm alls 11-13-13-14-16-17 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-43-40-39-39-38 cm frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir umferð 1 = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-9-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 51-51-49-48-48-47 cm frá miðju ofan á öxl. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 92 til 112 lykkjur á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið niður hálsmál að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northtoalaskasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.