DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Nepal yarn
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Dandelion Field

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 255-2

#dandelionfieldsweater

DROPS Design: Mynstur ne-392
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-650-700-800 gr litur 2923, gulur
300-350-350-400-450-500 gr litur 0100, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri á prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Byrjið / endið við ör í valinni stærð (á við um A.3 og A.4).

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 5,6.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Merking í mynsturteikningu sýnir í hvaða umferð bakstykkið endaði – þetta auðveldar þegar prjóna á framstykki og handvegur er stilltur af.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í mitt undir ermi, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum gulur, prjónið 1 lykkju slétt með litnum gulur (merkið situr í þessari lykkju), prjónið 3 lykkjur snúnar slétt saman með litnum gulur (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað.
Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni.
Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 33-33-33-43-43-43 lykkjur á hringprjón 5 með litnum gulur í DROPS Nepal. Prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan JAFNFRAMT er prjónað eins og útskýrt er að neðan. ATH: Ystu 3 lykkjur í hvorri hlið + útaukning er prjónað með litnum gulur þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1A, prjónið A.1B alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið A.1C, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1C, prjónið A.1B eins og áður, prjónið A.1A, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 14-17-17-17-19-22 sinnum (= 28-34-34-34-38-44 prjónaðar umferðir). ATH: Í hvert skipti sem A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.1B á breiddina.
Útaukning fyrir skáhallandi öxl er lokið í stærð M, L, XL og XXXL. Prjónið síðan í stærð S og XXL eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ S og XXL:
Prjónið UMFERÐ 2 einu sinni til viðbótar, síðan er prjónuð UMFERÐ 3, en án útaukninga (= alls 30-40 prjónaðar umferðir).

ALLAR STÆRÐIR:
Á eftir síðustu útaukningu eru 91-101-101-111-121-131 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 14-16-16-16-19-20 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan.
Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá!
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón í litnum gulur, prjónið A.2A alls 8-9-9-10-11-12 sinnum (það eru eftir 8 lykkjur í umferð), prjónið A.2B endið með 3 lykkjur sléttprjón í litnum gulur.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm mælt frá merki yst meðfram handveg – endið eftir umferð frá röngu og fellið jafnframt af 1 kantlykkju í hvorri hlið í síðustu umferð = 89-99-99-109-119-129 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Notið litinn gulur og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl innan við ystu lykkju, prjónið síðan upp 1 lykkju í næstu umferð yst við handveg (prjónið upp innan við ystu lykkju) = 31-35-35-35-41-45 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Byrjið við ör í valinni stærð í A.3A og prjónið 3-7-7-7-3-7 lykkjur sem eftir eru í A.3A, prjónið allt A.3A alls 2-2-2-2-3-3 sinnum, prjónið A.3B, endið með 3 lykkjur í garðaprjóni í litnum gulur.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig (útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur):
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt í litnum gulur, aukið út um 1 lykkju til vinstri (í litnum gulur), haldið áfram með A.3 eins og áður og endið með 3 lykkjur slétt í litnum gulur.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið í litnum gulur, prjónið A.3 frá röngu þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið í litnum gulur.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 prjónaðar umferðir) = 36-40-40-40-46-50 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Notið litinn gulur, byrjið 1 umferð á undan síðustu útaukningu fyrir skáhallandi öxl á bakstykki, prjónið upp 1 lykkju í þessa umferð innan við ystu lykkju, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl (innan við ystu lykkju) = 31-35-35-35-41-45 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur sléttprjón í litnum gulur, prjónið A.4 alls 2-3-3-3-3-4 sinnum, prjónið 8-2-2-2-8-2 fyrstu lykkjur í A.4, þ.e.a.s. endið við ör í valinni stærð.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt í litnum gulur, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir, aukið út til hægri (í litnum gulur), prjónið 1 lykkju slétt í litnum gulur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið í litnum gulur, prjónið A.4 frá röngu þar til eftir eru 3 lykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið í litnum gulur.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 prjónaðar umferðir) = 36-40-40-40-46-50 lykkjur.
Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman):
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 36-40-40-40-46-50 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 19-21-21-31-29-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 36-40-40-40-46-50 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 91-101-101-111-121-131 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón og mynstur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, þ.e.a.s. prjónið 3 lykkjur sléttprjón í litnum gulur í byrjun og lok umferðar og haldið áfram með mynstur yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið þar til stykkið mælist 28-29-30-31-33-34 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu, stillið af að endað sé í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki og fellið jafnframt af 1 kantlykkju í hvorri hlið í síðustu umferð (til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá í lok umferðar er hægt að prjóna síðustu 2 lykkjur í umferð brugðið saman) = 89-99-99-109-119-129 lykkjur. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.
Stykkið er nú mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið mynstur eins og áður yfir 89-99-99-109-119-129 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 1-1-11-11-11-11 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir 89-99-99-109-119-129 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 1-1-11-11-11-11 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 180-200-220-240-260-280 lykkjur í umferð.
Nú er prjónað mynstur í hring yfir allar lykkjur, þ.e.a.s. haldið er áfram að prjóna mynstur hringinn yfir allar lykkjur – byrjun umferðar er á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi og framstykki.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 28-29-30-30-30-31 cm frá handveg – endið eftir 5. eða 9. umferð í A.2 (framstykkið á að mælast ca 56-58-60-61-63-65 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar uppp).
Prjónið 2 umferðir sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur með litnum gulur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff í litnum gulur (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-36-40-44-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 212-236-260-284-304-328 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Framstykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 7 til 8 cm niður á framstykki).
Prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 og litinn gulur og byrjið í miðjulykkju sem fitjuð var upp mitt undir ermi, setjið 1 merki í þessa lykkju og prjónið upp 72-76-90-92-96-100 lykkjur – stillið af að prjónuð sé upp 1 lykkja í lykkjuna mitt undir ermi og 1 lykkja við merki mitt ofan á öxl og prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við báðar lykkjur með merki í.
Teljið út frá merki mitt ofan á öxl hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – merki mitt ofan á öxl á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.2A.

Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni og A.2A yfir allar lykkjur, en 3 miðjulykkjur undir ermi eru prjónaðar í litnum gulur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi fækkið um 2 lykkjur 4-6-8-10-12-13 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 5-4½-2½-2½-2-2 cm alls 7-7-11-9-8-8 sinnum = 50-50-52-54-56-58 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan mynstur með 3 lykkjur í sléttprjóni í litnum gulur mitt undir ermi þar til ermin mælist 42-40-41-38-36-34 cm frá merki mitt ofan á öxl.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff í litnum gulur (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-60-62-64-66-68 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 48-46-47-45-43-41 cm frá miðju ofan á öxl.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3,5 og litinn gulur. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 100-104-108-132-136-136 lykkjur innan við 1 lykkju (ef prjónaðar eru upp færri lykkjur er hægt að jafna lykkjufjöldann út í fyrstu umferð) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4½-4½-5½-5½-6½-6½ cm (= ca 12-12-15-15-18-18 umferðir), skiptið yfir í litinn natur og prjónið síðan þar til stroffið mælist 10-10-12-12-14-14 cm (= ca 15-15-18-18-20-20 umferðir með litnum natur). Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust með sléttri lykkju. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli – það á að vera sýnileg rönd með litnum natur efst í kanti í hálsmáli séð frá réttu. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin. Leiðrétting á hægra framstykki (fjöldi endurtekninga í A.4) og ermum.

Mynstur

litur gulur = litur gulur
litur natur = litur natur
miðjulykkja ermi = miðjulykkja ermi
síðasta útaukning fyrir öxl á bakstykki er í þessari umferð = síðasta útaukning fyrir öxl á bakstykki er í þessari umferð
Diagram for DROPS 255-2
Diagram for DROPS 255-2
Diagram for DROPS 255-2

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dandelionfieldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (69)

country flag Le Anh skrifaði:

Hi! I am knitting this sweater in size S, and I am struggling with this explanation: ¨Work the next row as follows from the right side: 3 stockinette stitches in color goldenrod, work A.2A a total of 8-9-9-10-11-12 times (8 stitches left on row), work A.2B, 3 stockinette stitches in color goldenrod.¨ It means that I will knit the first row 8 times repeatly from the right and continue the same with the next rows until I get the length? Thanks

22.12.2024 - 21:08

DROPS Design svaraði:

Dear Le Anh, yes, you work 3 stitches in stocking stitch in goldenrod, then work the first row of A.2A and repeat it as many times as necessary for your size, now work the first row of chart A.2B once and finish the row with 3 stitches in goldenrod. On the next rows work in the same way, but with row 2 of the charts over the first row of the charts, then row 3, e.t.c. Happy knitting!

22.12.2024 - 22:52

country flag Claudia skrifaði:

Eine Frage zum RECHTEN VORDERTEIL: Für Größe XXXL werden 45 Maschen aufgenommen. Als das Muster beginnt, sollen erst 3 rechte Maschen gestrickt werden, dann 3x A4 + 2 Maschen von A4. Macht zusammen 35 Maschen. Müsste ich daher statt 3x A4 nicht 4x A4 stricken? So käme ich auf 45 Maschen.

20.11.2024 - 23:41

DROPS Design svaraði:

Liebe Claudia, ja es stimmt wahrscheinlich so, danke für den Hinweis, unser Designteam wird das noch mal schauen. Viel Spaß beim Stricken!

21.11.2024 - 08:44

country flag Anette skrifaði:

Wenn ich die Abbildung von dem Dandelion Field Pullover anschaue ist der 1. Rechts, RR links gestrickt. Außerdem hat er gerade Schultern.. ich verzweifelte hier. Habe die Wolle und Anleitung seit Wochen, bin aber nicht über die ersten Reihen hinausgekommen...

17.11.2024 - 15:44

DROPS Design svaraði:

Liebe Anette, bei diesem Modell strickt man die 1. Reihe als Rückreihe, deshalb wird man links stricken. Siehe oben unter Tab Videos und Lektion wie man so einen Pullover strickt. Dort finden Sie Videos und Lektionen mit Fotos die Ihnen helfen werden. Viel Spaß beim Stricken!

18.11.2024 - 08:26

country flag Susanne skrifaði:

Ich glaube, es gibt einen Fehler in der Anleitung: rechtes Vorderteil sollen insgesamt 2 Rapporte A4 gestrickt werden, dann sind das aber nur insgesamt 25 Maschen. Ich denke, dass A4 3mal gestrickt werden muss.

29.10.2024 - 18:08

country flag Bri Lange skrifaði:

But this does not equal 35 stitches!! I am doing size medium and adding 3 goldenrod to the beginning and end will not equal 35.

29.10.2024 - 17:21

DROPS Design svaraði:

oops you are right, my bad, in M you will work: the last 7 sts in A.3A, then repeat the 10 sts A.3 A a total of 2 times (= 20 sts), and work the 5 sts A.3B and finish with 3 sts with goldenrod = 7+20+5+3=35 sts; the 3 sts with goldenrod are only one one side = towards armhole and not towards neck. Happy knitting!

29.10.2024 - 17:24

country flag Bri Lange skrifaði:

Hi. Loving the pattern so far but, I am working left front piece and when I add in the pattern it says to follow from the arrow then follow the pattern and finish with 3 stockinette stitches in goldenrod but when I do that I am not getting the right pattern. Help!!!

28.10.2024 - 19:43

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Lange, you first work the first 3 sts with goldenrod, then work either the last 3 or the last 7 sts (see size) of A.3A, then work all sts in A.3A = 10 sts a total of 2 or 3 times, and finish row with the 5 sts A.3B and 3 sts golden rod. From WS work reading diagrams from the right towards the left: A.3B, repeat A.3A a total of 3 times and work the first 3-7 sts (read from the left towards the right). Happy knitting!

29.10.2024 - 09:04

country flag Anette skrifaði:

Hej Jeg er nået til der, hvor jeg samler for og bag på rundpind under ærmegab. Hvordan sikrer jeg at mønstret bliver pænt, der hvor jeg henholdsvis afslutter og starter en runde? Her mødes jo den pind der afsluttes med den der starter, og så kommer det til at se ud som om, jeg lavet fejl i mønstret. Tak for hjælp.

25.10.2024 - 08:57

DROPS Design svaraði:

Hej Anette, jo når du afslutter med samme pind fra vrangen som du gjorde på bagstykket, så kommer det til at passe med mønsteret :)

25.10.2024 - 10:34

country flag Phoebe skrifaði:

How much positive ease should be allowed for the dandelion field pullover pattern? That will determine whether I choose to knit a size S or a size M. Thank you!

21.10.2024 - 01:26

DROPS Design svaraði:

Hi Phoebe, If you use the size chart at the bottom of the pattern, with the measurements specified for your size, you will get the loose-fit shape as shown in the photograph. Happy knitting!

21.10.2024 - 06:59

country flag Elodie skrifaði:

Bonjour, J'ai commencé la partie devant gauche (taille S) et je me demande s'il faut tricoter les 7 cm puis faires les augmentations "rang1 - rang 2" ou si c'est à faire en même temps ? Autrement dit, est-ce qu'il faut faire 7 cm + 10 rangs ou juste les 10 rangs ? merci

14.10.2024 - 14:01

DROPS Design svaraði:

Bonjour Élodie, tricotez d'abord 7 cm sur les 31 mailles relevées le long de l'épaule puis commencez à augmenter pour l'encolure (en début de rang sur l'endroit pour le devant gauche/ en fin de rang sur l'endroit pour le devant droit); vous aurez donc 7 cm + les 10 rangs d'augmentations pour l'encolure pour les 2 devants avant de les réunir. Bon tricot!

14.10.2024 - 16:19

country flag NN67 skrifaði:

Bonjour, Je rencontre des difficultés pour monter et tricoter les manches. Est il possible de traduire en français la question posée par Susana Araujo ainsi que votre réponse ? (ou alors pourquoi pas une vidéo !). Merci pour vos réponses.

08.10.2024 - 22:08

DROPS Design svaraði:

Bonjour NN67, dans cette leçon nous montrons comment relever les mailles des manches; et dans celle-ci comment centrer un diagramme. N'hésitez pas à poser directement votre question pour avoir la réponse adaptée (indiquez votre taille si besoin). Bon tricot!

09.10.2024 - 08:22