Jenny Norman skrifaði:
Storlekarna i beskrivningen (xs-xxl) är inte samma som i diagrammet (s-xxxl). Det kanske ska rättas till? :)
07.03.2024 - 19:39DROPS Design svaraði:
Hej Jenny. Tack för info, det ska vi rätta :)
08.03.2024 - 14:31
Natalia skrifaði:
Błędnie jest oznaczony rozmiar L , XL i XXL w schemacie A.2 i A.3
17.02.2024 - 22:17
Natalia skrifaði:
Czy nie wystąpił błąd w wyliczeniach na rozmiar L? Po skończeniu schematu A.1 mamy 174 oczka. Schemat A.2 składa się z 7 oczek,. Mamy go przerobić 29 razy przez całe okrążenie.
17.02.2024 - 16:04DROPS Design svaraði:
Witaj Natalio, schemat A.1 jest taki sam dla wszystkich rozmiarów, jego ostatni rząd ma 6, nie 7 oczek. 6x29=174. Pozdrawiamy!
18.02.2024 - 08:11
Aurore skrifaði:
Barbe à papa
20.01.2024 - 14:53
Anna skrifaði:
Zucker Watte
20.01.2024 - 14:17
Mariana Thulin skrifaði:
Bubble gum
19.01.2024 - 19:52
Ana skrifaði:
Velvet cake
18.01.2024 - 23:45
Karin skrifaði:
Sugar
18.01.2024 - 21:18
Karin skrifaði:
Candy
18.01.2024 - 21:12
Claudia skrifaði:
Hier ist mir sofort "Candy" in den Sinn gekommen
18.01.2024 - 18:20
Strawberry Sprinkle#strawberrysprinklesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-16 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit DROPS Flora. Skiptið yfir á hringprjón 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4-4-4-5-5-5 cm. Nú er sett 1 merki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 12-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 100-108-112-116-120-124 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið umferð 1 í A.1 alls 25-27-28-29-30-31 sinnum berustykkið hringinn (= 50-54-56-58-60-62 lykkjur fleiri) = 150-162-168-174-180-186 lykkjur. Prjónið umferð 2 í A.1 og fækkið um 3-1-0-0-0-1 lykkjur jafnt yfir, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 147-161-168-174-180-185 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá merki. Prjónið umferð 1 í A.2 alls 21-23-24-29-36-37 sinnum berustykkið hringinn (= 42-46-48-58-72-74 lykkjur fleiri) = 189-207-216-232-252-259 lykkjur. Prjónið umferð 2 í A.2 og fækkið um 0-0-0-4-0-1 lykkjur jafnt yfir, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 189-207-216-228-252-258 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-14-14-16-16-17 cm frá merki. Prjónið umferð 1 í A.3 alls 21-23-27-38-36-43 sinnum berustykkið hringinn (= 42-46-54-76-72-86 lykkjur fleiri) = 231-253-270-304-324-344 lykkjur. Prjónið umferð 2 í A.3 og jafnið lykkjufjöldann til þannig að það verða = 232-256-272-306-322-342 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki. Nú skiptist stykkið eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið 34-38-40-44-48-52 lykkjur sléttprjón (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-89-97-105 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 34-38-40-45-49-53 lykkjur í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-194-214-234 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-21-22-21-21-21 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan með hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið), JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-22-22-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 168-184-198-216-240-262 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi (mitt undir ermi). Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 2½-2½-2-1-1-1 cm alls 5-5-6-10-10-11 sinnum = 44-48-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 35-34-33-33-31-29 cm frá skiptingunni, það eru eftir ca 9-9-9-10-10-10 cm að loka máli. Prjónið síðan með sokkaprjóna 4, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-10-10-10 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-43-42-43-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberrysprinklesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.