Andersen Christine skrifaði:
Hallo liebes Team Wann wird der Umschlag li bzw. re verschränkt gestrickt?
15.06.2024 - 09:43DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Anderson ja genau, entweder rechts oder links je nach A.1 aber immer verschränkt um Löcher zu vermeiden. Viel Spaß beim Stricken!
17.06.2024 - 08:10
Gaby Bosch skrifaði:
Ich komm da nicht ganz mit - je 120 M in 3,5 und in 3,0 und dann zusammenlegen, indem ich die eine Nadel herausziehe? Wie das denn? Muß ich immer von jeder Nadel 1 Masche zusammenstricken?
24.05.2024 - 10:25DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bosch, die Maschen werden hier über 2 Nadeln angeschlagen, damit die Anschlagskante nicht zu eng wird; in diesem Video zeigen wir, wie man so strickt. Viel Spaß beim Stricken!
24.05.2024 - 13:11
Nikki skrifaði:
Hoi! Ik heb een keer een andere raglan-trui gemaakt waarin ik met German-shortrows de achterkant van de nek wat hoger maakte dan de voorkant. Dat was alleen wel een hele simpele trui in alleen tricot. Is het ook mogelijk om dit te doen bij dit patroon?
02.04.2024 - 21:21DROPS Design svaraði:
Dag Nikki,
Deze trui is daar minder geschikt voor omdat het patroon verbroken wordt bij het breien van verkorte toeren.
03.04.2024 - 20:23
Cecile skrifaði:
Bonjour, Je commence l’empiècement de ce pull. Je fais la 3ème taille donc 120 mailles. Si je suis vos explications d’augmentation au 1er rang, je me retrouve avec 128 mailles et non pas 124 ! Je ne comprends pas bien ou l’on doit mettre les augmentations si elles sont réparties de part et d’autres des anneaux marqueurs, à chaque marqueur, on est sur 128 mailles !!! Merci de bien vouloir me donner plus d’explications, En vous remerciant Cécile
29.03.2024 - 20:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Cécile, en taille L on commence par 120 mailles et on va augmenter 1 maille pour chaque manche, 1 maille sur le devant et 1 maille sur la 2ème moitié du dos = soit 4 mailles au total, on a bien ainsi 124 mailles. Ce ne sont pas des augmentations pour le raglan à faire à chaque marqueur, ce sont des augmentations à faire juste dans les mailles indiquée. Bon tricot!
02.04.2024 - 14:15
Mme Aumercier skrifaði:
Bonjour , j'ai bien fait les augmentations du raglan et j'ai bien mon compte de mailles (95m) .Pour les augmentations du dos et du devant, j'ai augmenté 9 fois tous les 2 tours et je n'ai que 70 m au lieu de 148 m pour le dos et le devant .Où me suis-je trompée ? Je vous remercie .
11.03.2024 - 06:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Aumercier, si vous avez bien 488 mailles (taille XXXL) quand vous avez terminé les augmentations, vous devez 95 mailles pour chaque manche et 149 mailles pour le devant/74+75 mailles pour le dos), avez-vous bien vérifier votre nombre total de mailles?
11.03.2024 - 09:18
Patricia Aumercier skrifaði:
Bonjour , pour l'empiècement , on augmente pour le dos /devant en début ou milieu de rang? On augmente quand les augmentations du raglan sont terminées ? Merci .
07.03.2024 - 08:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Aumercier, on augmente pour le raglan avant/après les 2 mailles endroit à chaque transition entre le dos/les devants et les manches, quand vous augmentez seulement pour le dos et le devant, augmentez à la fin du demi-dos (en début de tour) avant les 2 mailles du raglan, augmentez au début du devant après les 2 m du raglan après la manche + avant le 2 m du raglan avant la 2ème manche et augmentez au début du dos après les 2 m du raglan après la 2ème manche. Bon tricot!
07.03.2024 - 08:39
Susanne Lev skrifaði:
Hvordan finder jeg størrelse?
11.02.2024 - 12:06
Winter Weekend#winterweekendsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, perluprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónanaður snúinn slétt / brugðið í mynstri, þannig að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, 3 lykkjur slétt / brugðið (fylgið mynstri) saman, prjónið 6 lykkjur í mynstri (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), 3 lykkjur slétt / brugðið (fylgið mynstri) saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-120-120-136-136-136 lykkjur með DROPS Nord á hringprjón 3,5 og hringprjón 3 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 3,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 9 cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar þannig að prjónamerkið sitji á milli 2 lykkjur brugðið, berustykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Nú eru 4 merkiþræðir settir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja slétt. Teljið 22-22-22-26-26-26 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 44-44-44-52-52-52 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, það eru 22-22-22-26-26-26 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (hálft bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem aukið er út þannig: Prjónið 22-22-22-26-26-26 lykkjur slétt, prjónið 16 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING, prjónið 44-44-44-52-52-52 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 16 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 22-22-22-26-26-26 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Það eru núna 124-124-124-140-140-140 lykkjur á prjóni. Prjónið A.1 hringinn með 2 lykkjur sléttprjón í hverri laskalínu. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 28-32-36-38-39-39 sinnum = 348-380-412-444-452-452 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukning fyrir ermar er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-2-4-3-7-9 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 31-34-40-41-46-48 sinnum á fram- og bakstykki og 28-32-36-38-39-39 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 360-388-428-456-480-488 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 23-25-28-28-31-33 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá byrjun umferðar þannig: Prjónið 53-56-62-67-72-74 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 73-81-89-93-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-11-13-15-21 nýjar lykkjur á prjóninn í hlið undir ermi, prjónið 107-113-125-135-145-149 lykkjur (framstykki), setjið næstu 73-81-89-93-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-11-13-15-21 nýjar lykkjur á prjóninn í hlið undir ermi og prjónið síðustu 54-57-63-68-73-75 lykkjur (það eru alls 107-113-125-135-145-149 lykkjur á bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 232-248-272-296-320-340 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki ca mitt á milli nýrra lykkja sem voru fitjaðar upp í hvorri hlið á stykki. Haldið áfram hringinn með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – lesið ÚRTAKA (það fækkar um 8 lykkjur í hvert skipti). Fækkið lykkjum svona í 16.-13.-13.-13.-16.-0. hverjum cm 1-2-2-2-1-0 sinnum til viðbótar = 216-224-248-272-304-332 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 30-30-29-31-30-30 cm frá skiptingu (það eru ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 236-244-268-296-328-360 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 73-81-89-93-95-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3,5, prjónið jafnvel upp 1 lykkju í hverja af 9-11-11-13-15-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 82-92-100-106-110-116 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki ca mitt á milli nýrra lykkja sem voru prjónaðar upp undir ermi. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 7½.-5.-4.-3½.-3.- 2½. hverjum cm alls 5-7-8-9-10-11 sinnum = 62-64-68-70-70-72 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-36-36-34-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-4-6-6-8 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-76-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermin á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroff í hálsmáli niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterweekendsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.