Guion Chloe skrifaði:
Bonjour, Je commence l'étape du devant en taille S, j'ai donc 40 mailles en haut de mon dos. Hors on me demande de relever 23 mailles pour l'épaule gauche puis ce sera 23 mailles pour la droite et ensuite 25 pour l'encolure dos. Ça fait donc beaucoup plus que 40 mailles du départ. Je ne comprends pas comment faire le relevé des mailles pour débuter le devant.. Pourriez vous m'aider ? Merci d'avance, bonne journée
11.06.2025 - 22:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guion, retrouvez ici, en vidéo ou bien là, en photos comment on doit relever les mailles des devants le long des épaules du dos: non pas dans les mailles relevées mais le long des rangs tricotés pour la largeur d'épaules. Bon tricot!
12.06.2025 - 09:23
Jeanette Brandt Ottosson skrifaði:
Är det meningen att framstycket ska vara längre än bakstycket när man stickor ihop fram och bakstycke?
04.03.2025 - 15:36DROPS Design svaraði:
Hej Jeanette. Om du ser på bilderna så ser du att framstycket går över axeln så därför blir framstycket längre när det är en europeisk/sned axel. Mvh DROPS Design
05.03.2025 - 14:48
Virginia Elvira Savario skrifaði:
Me encanta la puntada y todos sus proyectos E hilos feliz año
07.01.2025 - 10:50
Marianne skrifaði:
Ja, jeg har gjort nøjagtig som der står.
03.01.2025 - 12:49
Marianne skrifaði:
Er der et tip til at strikke ærmekanterne op? Mine svipper helt vildt ud, altså så retsiden af ribben nærmest lægger sig mod retten på selve vesten. Jeg har forsøgt at sy på vrangen og ligesom trække den ind på plads, men det ville jo være fedt, hvis de bare kunne sidde der, som de ser ud til at gøre på fotoet.
26.12.2024 - 12:31DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Har du strikket opp riktig maskeantall i den str. du strikker og har du byttet til mindre strikkepinne? Prøv evnt. å dampe kanten lett ned. mvh DROPS Design
03.01.2025 - 11:09
Michaela Lindahl skrifaði:
Hej! Finns det möjlighet att få hjälp med att göra skjusteringar för att minska ärmhålet en aning? Västen är till en person som vill bära den utan tröja under och önskar därför ett mindre ärmhål. Stickar i storlek S. Tack så mycket!
02.12.2024 - 21:56DROPS Design svaraði:
Hej Michaela, du kan starte økningerne til ærmegab inden du når til de 20 cm som står i mønsteret :)
03.12.2024 - 07:58
Sofia Gustafsson skrifaði:
Hej! När jag ska öka till ärmhål på framsidan, mäts det från de uppstickade maskorna vid halskanten, eller de första uppstickade maskorna vid axeln? Tack på förhand!
24.11.2024 - 11:44DROPS Design svaraði:
Hej Sofia, du måler fra der hvor du strikked masker op først ved axeln :)
27.11.2024 - 14:11
Deborah J Lackie skrifaði:
For the A.1 pattern center stitches - on the wrong side - are the stitches still knit 1, knit 1 from cable ? or should it be p1, p1 from cable needle?
09.10.2024 - 22:29DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lackie, when you work the wrong side rows in A.1 the middle 4 stitches will be purled (all rows are drawn in diagram), so from WS work A.1 as follows: K2, P4, K2, and work the cables on every row from the right side. Happy knitting!
10.10.2024 - 09:20
Margaret Taylor skrifaði:
In the increase tip-1 for armholes where is the increase added? Is it edge stitch increase and then the 8 stitches of A1? What does increase by making yarn over mean?
06.05.2024 - 22:20DROPS Design svaraði:
Hi Margaret, Making 1 yarn over means taking the strand around the needle before working the next stitch, which increases 1 stitch. The yarn overs are then worked twisted (working through the back loop instead of the front) on the next row to avoid holes. The yarn overs are made after the 9 stitches (edge stitch plus A.1) at the beginning of the row and before the 9 stitches at the end of the row. Happy knitting!
07.05.2024 - 06:42
Cornelia skrifaði:
Ich denke da ist ein Fehler bei der linken Schulter. Es heißt, das die erste Rückreihe glatt rechts gestrickt werden soll, da es eine Rückreihe ist, muss sie jedoch links gestrickt werden
12.03.2024 - 22:46DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, ja genau, wenn man glatt rechts strickt werden die Rückreihen links gestrickt, die Maschen werden bei der Vorderseite aufgelassen, so daß die 1. Reihe eine Rückreihe = links gestrickt wird. Viel Spaß beim Stricken!
13.03.2024 - 08:03
Clear Day Vest#cleardayvest |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, tvöföldum kanti í hálsmáli og köðlum. Stærð S – XXXL.
DROPS 243-33 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJA: Prjónuð er 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 9 lykkjur (1 kantlykkja + A.1) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram vinstri öxlinni, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hægri öxlinni. Hægri og vinstri öxl er sett saman fyrir framstykki þegar útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant í kringum í kringum handveg. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í kringum hálsmál. Kantur í hálsmáil er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp 40-40-44-44-46-46 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 9 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 9 lykkjur í hverri umferð í framhaldinu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 KANTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, A.1, aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTU, prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, prjónið A.1, 1 kantlykkja. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins, þ.e.a.s. á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 21-23-23-25-26-28 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 82-86-90-94-98-102 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir fram og til baka í mynstri eins og áður, án útaukninga. Færið prjónamerkin þannig að nú sitja þau yst í hvorri hlið – stykkið er síðar mælt frá þessum prjónamerkjum. Prjónið sléttprjón eins og áður með 1 kantlykkju og A.1 yst í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-20-20-20-17-16 cm frá prjónamerkjum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 7-8-9-11-14-17 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 96-102-108-116-126-136 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 25-26-27-28-28-29 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI. Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 23-25-25-27-28-30 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. byrjið innst við hálsmál og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 21-23-23-25-26-28 umferðum frá kanti efst á bakstykki + 2 lykkjur fram að prjónamerki). Prjónið til baka frá röngu þannig: 1 kantlykkja, A.1 (byrjið með 2. umferð í mynsturteikningu), prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út til vinstri í byrjun á hverri umferð frá réttu, á eftir fyrstu 4 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli alls 5 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 28-30-30-32-33-35 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Byrjið við prjónamerki og prjónið upp 23-25-25-27-28-30 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 (byrjið með 2. umferð í mynsturteikningu) og 1 kantlykkju. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út til hægri í lok hverrar umferðar frá réttu, á undan síðustu 4 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli alls 5 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 28-30-30-32-33-35 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 26-26-30-30-32-32 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið áfram eins og áður yfir 28-30-30-32-33-35 lykkjur frá vinstra framstykki = 82-86-90-94-98-102 lykkjur. Prjónið eins og áður með 1 kantlykkju og A.1 yst í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 28-28-28-28-27-26 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki = 96-102-108-116-126-136 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 33-34-35-36-38-39 cm, mælt yst meðfram handvegi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið rendur eins og áður yfir 96-102-108-116-126-136 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður yfir 96-102-108-116-126-136 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok umferðar = 206-222-238-258-282-306 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni og mynstur eins og áður – þær 9-11-13-15-17-19 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki á milli A.1 eru prjónaðar í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – byrjið og endið stroffprjónið með 1 lykkju slétt). Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki, inn að hálsmáli. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón yfir næstu 78-84-90-98-108-118 lykkjur og aukið jafnframt út 31-33-37-39-43-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING-2, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, stroffprjón eins og áður yfir næstu 9-11-13-15-17-19 lykkjur, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón yfir næstu 78-84-90-98-108-118 lykkjur og aukið jafnframt út 31-33-37-39-43-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1 og stroffprjón eins og áður yfir síðustu 8-10-12-14-16-18 lykkjur = 268-288-312-336-368-400 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan þannig: Haldið áfram í stroffprjóni í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með A.2 eins og áður, að auki er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir 109-117-127-137-151-165 lykkjur á milli A.2 á framstykki / bakstykki (byrjið og endið stroff með 1 lykkju slétt innan við A.2). Þegar stroff mælist 6-6-6-7-7-7 cm, fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Vestið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá efsta punkti á öxl. KANTUR Í HANDVEGI: Leggið stykkið flatt og setjið 1 prjónamerki efst í handveg (mitt á öxl). Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 140-146-152-160-166-172 lykkjur í kringum handveg innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við prjónamerki meðfram handvegi. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir handvegi þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrstu sléttu lykkjunni mitt undir handveg þannig, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með því að gera þetta svona þá kemur kantur í handvegi til með að leggjast fallega og beygist ekki út. Prjónið svona og fækkið lykkjum þar til kantur í handvegi mælist 3 cm. Fellið af á sama hátt og á fram- og bakstykki. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3, byrjið frá réttu, slétt lykkja á undan A.1 á vinstri öxl að aftan (séð þegar flíkin er mátuð) og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum í A.1, prjónið upp ca 83-83-91-91-97-97 lykkjur í kringum hálsmál að framan að A.1 á hægri öxl að aftan (þessi lykkjufjöldi verður að vera deilanlegur með 2 + 1), prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum í A.1 og prjónið upp ca 25-25-29-29-31-31 lykkjur meðfram hálsmáli aftan í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1) = ca 124-124-136-136-144-144 lykkjur. Prjónið mynstur og stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 8 lykkjur, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta A.1, prjónið 1 lykkju slétt, A.1, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsmáli mælist 11-11-11-13-13-13 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragi stykkið saman eða beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cleardayvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.