DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Caramel Ridge

Prjónað vesti úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í klukkuprjóni með v-hálsmáli, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-20
DROPS Design: Mynstur x-494
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-700-750-850-950-1000 g litur 66, toffee

TÖLUR:
DROPS TALA NR 538: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð (18 sýnilegar umferðir) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2.

ÚRTAKA-1 (á við um handveg og hálsmál aftan í hnakka):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg eða prjónið 1 lykkju í garðaprjóni þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður, lyftið yfir næstu lykkju og uppsláttinn sem tilheyrir yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (og uppsláttinn sem tilheyrir sléttu lykkjunni) slétt saman og steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjur sem prjónaðar voru saman.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg eða prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, prjónið næstu 3 lykkjur (og uppsláttinn sem tilheyrir) slétt saman, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður og 1/4 lykkjur í garðaprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Á HÆGRA FRAMSTYKKI ÞANNIG:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 klukkuprjónslykkju eins og áður, lyftið yfir næstu lykkju og uppslættinum sem tilheyrir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (og uppsláttinn sem tilheyrir sléttu lykkjunni) slétt saman og steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Á VINSTRA FRAMSTYKKI ÞANNIG:
Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 3 lykkjur (og uppsláttinn sem tilheyrir) slétt saman, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður og 7 lykkjur í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu!
AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Í KLUKKUPRJÓNSLYKKJU INNAN VIÐ 4 LYKKJUR Í GARÐAPRJÓNI Í HVORRI HLIÐ ÞANNIG:
Prjónið 3 lykkjur í sléttu lykkjuna, þ.e.a.s. prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur.
Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjón með uppslætti.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 6, 14, 22 og 30 cm.
M: 7, 15, 23 og 31 cm.
L: 8, 16, 24 og 32 cm.
XL: 6, 15, 24 og 33 cm.
XXL: 7, 16, 25 og 34 cm.
XXXL: 8, 17, 26 og 35 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. Kantur í hálsmáli er saumaður við hálsmál aftan í hnakka. Í lokin eru prjónaðir 2 vasar sem saumaðir eru á framstykkin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 105-111-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 71-75-81-89-97-105 lykkjur – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (fram og til baka) – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 7-7-7-9-9-9 lykkjur í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum sem hann tilheyrir og aðrar lykkjur eru prjónaðar í klukkuprjóni eins og áður).
Á eftir 4 umferðum í garðaprjóni, fellið af 3-3-3-5-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 65-69-75-79-87-95 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður, en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni.
Þegar prjónaðar hafa verið 8 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg (4 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-1 = 61-65-71-75-83-91 lykkjur.
Þegar prjónaðar hafa verið 20-20-22-22-24-24 umferðir á eftir úrtöku fyrir handvegi (eftir garðaprjón = 10-10-11-11-12-12 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í 12.-12.-14.-14.-16.-16. hverri umferð alls 3 sinnum í hvorri hlið = 73-77-83-87-95-103 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Setjið síðan lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið og fellið af fyrir hálsmáli. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflana SKÁHALLANDI ÖXL og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram!

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl, í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Setjið 1 lykkju á þráð alls 13 sinnum í hvorri hlið, síðan eru síðustu 15-17-19-21-23-27 lykkjur settar inn á þráðinn (alls 28-30-32-34-36-40 lykkjur á þræði fyrir skáhallandi öxl).

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 13-13-15-15-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig (jafnframt því sem skáhallandi öxl heldur áfram eins og áður).
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA-1.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl.
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 5 og fellið af (uppslátturinn er nú felldur af eins og eigin lykkja til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman).
Prjónið hina öxlina á sama hátt – munið eftir ÚRTAKA-1.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 60-63-66-72-78-84 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 43-45-47-51-55-59 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið klukkuprjón með uppslætti, með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 1 lykkju í garðaprjóni að hlið. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – lesið útskýringu að ofan.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 7-7-7-9-9-9 lykkjur í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar prjóna á síðasta garðaprjón við handveg, prjónið 2 umferðir garðaprjón einungis yfir kant að framan (aðrar lykkjur eru ekki prjónaðar þegar prjónaðar eru 2 umferðir garðaprjón einungis yfir kant að framan – þetta garðaprjón er prjónað til að kanturinn að framan komi til með að leggjast fallega þegar úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar og þetta er einungis gert í 1 skipti).
Eftir 4 umferðir garðaprjón í hlið, fellið af 3-3-3-5-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á fyrstu umferð frá hlið = 40-42-44-46-50-54

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður, 4 lykkjur í garðaprjóni að handvegi og 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli, fækkið lykkjum og aukið út í handvegi og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl. Lestu því kaflana, V-HÁLSMÁL, HANDVEGUR og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram!

V-HÁLSMÁL:
Í fyrstu umferð frá réttu eftir úrtöku fyrir handveg, fækkið um 2 lykkjur fyrir v-hálsmáli – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 10. hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í 16. hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 8 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg (4 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 2 lykkjur í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1.
Þegar prjónaðar hafa verið 20-20-22-22-24-24 umferðir eftir úrtöku fyrir handveg (á eftir garðaprjón = 10-10-11-11-12-12 sýnilegar lykkjur á hæðina) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út 2 lykkjur í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hlið í 12.-12.-14.-14.-16.-16. hverri umferð alls 3 sinnum.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm (öll úrtaka / útaukning fyrir v-hálsmáli og handvegi er nú lokið), setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Setið 1 lykkju á þráð alls 13 sinnum, setjið síðan næstu 14-16-18-20-22-26 lykkjur á þráð (alls 27-29-31-33-35-39 lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl – ATH: Það er 1 lykkja færri á öxl á framstykki en á bakstykki þar sem sauma á kant í hálsmáli niður við bakstykki innan við 1 lykkju).
Þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir v-hálsmáli og settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, eru 7 lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl frá hæsta punkti.
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 7 kantlykkjur að framan í 7-7-8-8-9-9 cm = kantur í hálsmáli að aftan. Fellið af.
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 5 og fellið af á sama hátt og á bakstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 60-63-66-72-78-84 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 7 kantlykkjur að framan garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni = 43-45-47-51-55-59 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið klukkuprjón með uppslætti, með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið og 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan.

Afgangur af vinstra framstykki er prjónað á sama hátt og hægra framstykki, en með úrtöku og útaukningu í gagnstæðri hlið (ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn – byrjið yst við handveg og saumið 1 og 1 lykkju saman inn að hálsmáli = 1 lykkja eftir á bakstykki.
Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – skiljið eftir op ca 6 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf.
Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka innan við 1 lykkju.
Saumið tölur í vinstra framstykki.

VASAR:
Fitjið upp 21-21-23-23-25-25 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið síðan klukkuprjón með uppslætti (fram og til baka) með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm – endið eftir umferð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með lykkju). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið 1 vasa til viðbótar á sama hátt.
Saumið 1 vasa í hvort framstykki - ca 9-10-11-12-13-14 cm frá ysta kanti mitt að framan og ca 3 cm frá neðri kanti (beint yfir stroff).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Sheila Buchanan wrote:

Do you have a tutorial video for pattern number 129-15, take me to Spain vest, knitted Drops asymmetric vest worked from top down?

12.04.2024 - 23:07

DROPS Design answered:

Dear Sheila, you can find the relevant videos for each pattern if you click on the word "Videos+, just below the title line, above the pattern itself. Happy Crafting!

13.04.2024 - 00:08

country flag Christiane Jakoö wrote:

Ich danke Ihnen ganz herzlich , so komme ich prima klar. Christiane Jakoy

31.01.2024 - 09:49

country flag Christiane Jakoby wrote:

Sie müssen entschuldigt aber wie muß ich nun Stricken? Die erste Ma stilllegen und dann 4 Kraus rechts und weiter im Patent. Dann verschiebt sich der Kraus- Rand Richtung Hals und muß ich die 13 stillgelegten Ma in Hin-und Rückreihe stricken?

30.01.2024 - 11:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jakob, stricken Sie die Maschen genauso wie zuvor, damit Das Muster nicht verschoben wird, dh bei der 1. verkürzte Reihe stricken Sie 1 M kraus rechts, legen Sie still, stricken Sie die Ende bis zur Ende, wenden und diese Reihe wiederholen, bei der nächsten Hinreihe sind es nur noch 3 kraus rechte Maschen, 1 M stricken und still legen, die 2 nächsten M kraus rechts stricken und bis zur Ende genauso wie zuvor stricken, diese Reihe bei der Rücseite wiederholen und immer so Weiterstricken, so werden die 4 krausrechte Maschen + 11 M Patentmuster stillgelegt und die restlichen Maschen genauso wie zuvor mit Patentmuster stricken. Viel Spaß beim stricken!

31.01.2024 - 08:09

country flag Christiane Jakoby wrote:

Wenn ich die erste Masche stilllegen soll dann sind es ja nur noch 3 Kraus Re Maschen. Können Sie mir den genauen Vorgang beschreiben? Ich stehe völlig auf dem Schlauch und habe soetwas noch nicht gestrickt.

29.01.2024 - 13:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jakoby, die Maschen stricken Sie einfach wie zuvor, dh wie sie erscheinen: Patent und Krausrechts, also bei den verkürzten Reihen wird man genauso wie zuvor stricken, nur immer weniger Maschen gegen Armloch damit die Schulter am Hals höher als beim Armloch ist. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2024 - 07:38

country flag Christiane Jakoby wrote:

Hallo liebes Drops Team, ich bin beim Rückenteil und soll für die Schulterschrägung 13x bds. 1 Ma stilllegen. Bedeutet das, daß ich weiter in die Höhe stricke und wenn ja, wie soll ich die 4 Ma kraus re weiterstricken ? Ich kann mir das Ganze nicht vorstellen. lg Christiane Jakoby

28.01.2024 - 16:07

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jakoby, bei der Schulterschrägung stricken Sie die verkürzten Reihe ab Schulter, dh die Maschen gegen Schulter werden stillgelegt und alle anderen Maschen genauso wie zuvor gestrickt. So bei der 4 ersten Mal stricken Sie die Maschen krausrippe wie zuvor. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2024 - 12:19

country flag Branislava wrote:

Hello. In the explanation for Decrease, after the garter section it says we have to do 1 stich in English rib and than the -2 decrease for english rib (slip kw, k2tog, passsliped stich) . It seams to me, by looking at the photos of the pattern, that after the garter stiches I should slip as if to knitt that very first stich of fhe English rib section. Thanks in advance

27.11.2023 - 17:35

DROPS Design answered:

Dear Branislava, decrease just as explained, along the front band stitches in garter stitch, you should have 1 knitted stitch from the English Rib - maybe you can see that better on the 3rd picture. Happy knitting!

28.11.2023 - 08:34

country flag Ute Ivetic wrote:

Wie viel Wolle benötige ich für diese Weste in Größe M?

03.11.2023 - 14:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ivetic, die Garnmenge finden Sie im Kopfteil für jede Grösse, so in M brauchen Sie 700 g DROPS Alaska/50 g das Knäuel =14 Knäuel Alaska. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2023 - 15:53

country flag Irina wrote:

Sunday Vest

07.08.2023 - 06:28

country flag Véronique wrote:

J'aime bien les poches et les fentes latérales aussi .

04.08.2023 - 12:56

country flag Véronique wrote:

Modèle classique et point ( côtes anglaises ? ) moelleux à mettre en toutes saisons . Choisir une couleur adaptée si l'on veut changer .

04.08.2023 - 12:54