Cornelia Becker skrifaði:
Hallo, werden die Maschen für die Schulterschrägung stillgelegt oder werden diese abgekettet?
29.10.2024 - 17:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Becker, die Maschen für die Schulterschrägung werden stillgelegt dann alle auf einmal abgekettet. Viel Spaß beim Stricken!
30.10.2024 - 07:44
Juliet skrifaði:
Thank you for your reply 😊
09.04.2024 - 07:57
Juliet skrifaði:
I don’t understand how to increase in English rib. It says work 3 sts in the knitted stitch, do these 3 stitches include the the 4 outer garter stitches? Or do I start counting 3 sts after completing the 4 outer garter sts?
08.04.2024 - 19:05DROPS Design svaraði:
Dear Juliet, the edge stitches you always knit with garter stitch. As for "3 sts in the knitted stitch," it means, that wherever you need to increase (in the English rib) you should knit 3 stitches into one stitch that is knitted (as opposed to purled). I hope this helps. Happy Knitting!
08.04.2024 - 20:39
Bea Palland skrifaði:
Hallo, Misschien een domme vraag maar ik neem aan dat ik dit patroon ook gewoon met twee breinaalden kan breien i.p.v met de rondbreinaald?
26.02.2024 - 16:54DROPS Design svaraði:
Dag Bea,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
28.02.2024 - 20:22
Adrianna skrifaði:
Hi thank you for your answer. Do you have a video how to do diagonal shoulder and neck for this pattern please? Thank you for your help
07.11.2023 - 23:08DROPS Design svaraði:
Dear Adrianna, slip the stitches as for short rows; in this other video, we also show for another pattern how to work a diagonal shoulder - both videos might help you. Happy knitting!
08.11.2023 - 08:23
Adrianna skrifaði:
Hi, I’m trying to do diagonal shoulders and neck but I can’t finish in 73sts(I’m doing size S) 26sts on 1 site, 17 neck, 26 on 2 site = 69 where are those 4 stitches that we finished armholes? Please help as I’m confused 😬
06.11.2023 - 21:33DROPS Design svaraði:
Hi Adriana, The last 4 stitches are cast off on each side of the neck (after casting off the 17 middle stitches), all of which happens while you are still placing stitches on threads for the diagonal shoulders. Hope this helps and happy knitting!
07.11.2023 - 06:50
Lina skrifaði:
Nydelig!
03.08.2023 - 09:59
Caramel Ridge#caramelridgevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2. ÚTAUKNING (á við um handveg): Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu! AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Í KLUKKUPRJÓNSLYKKJU INNAN VIÐ 4 LYKKJUR Í GARÐAPRJÓNI Í HVORRI HLIÐ ÞANNIG: Prjónið 3 lykkjur í sléttu lykkjuna, þ.e.a.s. prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur. Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjón með uppslætti. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í kringum hálsmál í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 105-111-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 71-75-81-89-97-105 lykkjur – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (fram og til baka) – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 7-7-7-9-9-11 lykkjur í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum sem hann tilheyrir og aðrar lykkjur eru prjónaðar í klukkuprjóni eins og áður). Á eftir 4 umferðum í garðaprjóni, fellið af 3-3-3-5-5-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 65-69-75-79-87-91 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður, en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 20-20-20-16-16-16 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg (10-10-10-8-8-8 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í 20.-20.-20.-16.-16.-16. hverri umferð alls 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið = 73-77-83-91-99-103 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Setjið síðan lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið og fellið af fyrir hálsmáli. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflana SKÁHALLANDI ÖXL og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram! SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl, í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Setjið 1 lykkju á þráð alls 13 sinnum í hvorri hlið, síðan eru síðustu 13-15-17-21-23-25 lykkjur settar inn á þráðinn (alls 26-28-30-34-36-38 lykkjur á þræði fyrir skáhallandi öxl). HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 17-17-19-19-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig (jafnframt því sem skáhallandi öxl heldur áfram eins og áður). Prjónið eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl. Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 5 og fellið af (uppslátturinn er nú felldur af eins og eigin lykkja til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm. Nú eru miðju 9-9-11-11-15-15 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og á bakstykki og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl. Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 5 og fellið af á sama hátt og á bakstykki. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – skiljið eftir op ca 6 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 84-84-90-90-106-106 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 12-12-12-14-14-14 cm – ATH: Stillið af að stroffið haldi áfram fallega yfir klukkuprjónslykkjurnar mitt að framan. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum við hvorn axlasaum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelridgevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.