DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Clear Day Vest

Prjónað vesti úr DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, tvöföldum kanti í hálsmáli og köðlum. Stærð S – XXXL.

DROPS 243-33
DROPS Design: Mynstur u-964
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-500-550 g litur 68, ljós himinblár

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-500-500 g litur 10 ljós blár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KANTLYKKJA:
Prjónuð er 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-1 (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 9 lykkjur (1 kantlykkja + A.1) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hluti á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað í hring á hringprjóna. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp í kringum handveg og hálsmál. Kantar í handvegi og í hálsmáli eru síðan prjónaðar í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 40-40-44-44-46-46 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 9 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 9 lykkjur í hverri umferð í framhaldinu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 KANTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, A.1, aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTU, prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, prjónið A.1, 1 kantlykkja.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins, þ.e.a.s. á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 21-23-23-25-26-28 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu eru 82-86-90-94-98-102 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir fram og til baka í mynstri eins og áður, án útaukninga.
Færið prjónamerkin þannig að nú sitja þau yst í hvorri hlið – stykkið er síðar mælt frá þessum prjónamerkjum.
Prjónið sléttprjón eins og áður með 1 kantlykkju og A.1 yst í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 20-20-20-20-17-16 cm frá prjónamerkjum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 7-8-9-11-14-17 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 96-102-108-116-126-136 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 25-26-27-28-28-29 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI.
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 23-25-25-27-28-30 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. byrjið innst við hálsmál og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 21-23-23-25-26-28 umferðum frá kanti efst á bakstykki + 2 lykkjur fram að prjónamerki).
Prjónið til baka frá röngu þannig: 1 kantlykkja, A.1 (byrjið með 2. umferð í mynsturteikningu), prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út til vinstri í byrjun á hverri umferð frá réttu, á eftir fyrstu 4 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli alls 5 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 28-30-30-32-33-35 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.
Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Byrjið við prjónamerki og prjónið upp 23-25-25-27-28-30 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 (byrjið með 2. umferð í mynsturteikningu) og 1 kantlykkju. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út til hægri í lok hverrar umferðar frá réttu, á undan síðustu 4 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli alls 5 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 28-30-30-32-33-35 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 26-26-30-30-32-32 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið áfram eins og áður yfir 28-30-30-32-33-35 lykkjur frá vinstra framstykki = 82-86-90-94-98-102 lykkjur.
Prjónið eins og áður með 1 kantlykkju og A.1 yst í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 28-28-28-28-27-26 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki = 96-102-108-116-126-136 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 33-34-35-36-38-39 cm, mælt yst meðfram handvegi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið rendur eins og áður yfir 96-102-108-116-126-136 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður yfir 96-102-108-116-126-136 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok umferðar = 206-222-238-258-282-306 lykkjur.
Prjónið hringinn í sléttprjóni og mynstur eins og áður – þær 9-11-13-15-17-19 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki á milli A.1 eru prjónaðar í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – byrjið og endið stroffprjónið með 1 lykkju slétt).
Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki, inn að hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón yfir næstu 78-84-90-98-108-118 lykkjur og aukið jafnframt út 31-33-37-39-43-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING-2, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, stroffprjón eins og áður yfir næstu 9-11-13-15-17-19 lykkjur, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón yfir næstu 78-84-90-98-108-118 lykkjur og aukið jafnframt út 31-33-37-39-43-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1 og stroffprjón eins og áður yfir síðustu 8-10-12-14-16-18 lykkjur = 268-288-312-336-368-400 lykkjur.
Prjónið síðan þannig: Haldið áfram í stroffprjóni í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með A.2 eins og áður, að auki er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir 109-117-127-137-151-165 lykkjur á milli A.2 á framstykki / bakstykki (byrjið og endið stroff með 1 lykkju slétt innan við A.2).
Þegar stroff mælist 6-6-6-7-7-7 cm, fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Vestið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá efsta punkti á öxl.

KANTUR Í HANDVEGI:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 prjónamerki efst í handveg (mitt á öxl).
Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 140-146-152-160-166-172 lykkjur í kringum handveg innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við prjónamerki meðfram handvegi.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir handvegi þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrstu sléttu lykkjunni mitt undir handveg þannig, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með því að gera þetta svona þá kemur kantur í handvegi til með að leggjast fallega og beygist ekki út.
Prjónið svona þar til kantur í handvegi mælist 3 cm. Fellið af á sama hátt og á fram- og bakstykki.
Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 3, byrjið frá réttu, slétt lykkja á undan A.1 á vinstri öxl að aftan (séð þegar flíkin er mátuð) og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum í A.1, prjónið upp ca 83-83-91-91-97-97 lykkjur í kringum hálsmál að framan að A.1 á hægri öxl að aftan (þessi lykkjufjöldi verður að vera deilanlegur með 2 + 1), prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum í A.1 og prjónið upp ca 25-25-29-29-31-31 lykkjur meðfram hálsmáli aftan í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1) = ca 124-124-136-136-144-144 lykkjur.
Prjónið mynstur og stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 8 lykkjur, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta A.1, prjónið 1 lykkju slétt, A.1, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsmáli mælist 11-11-11-13-13-13 cm.
Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragi stykkið saman eða beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) prjónið upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), prjónið upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Cornelia wrote:

Ich denke da ist ein Fehler bei der linken Schulter. Es heißt, das die erste Rückreihe glatt rechts gestrickt werden soll, da es eine Rückreihe ist, muss sie jedoch links gestrickt werden

12.03.2024 - 22:46

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, ja genau, wenn man glatt rechts strickt werden die Rückreihen links gestrickt, die Maschen werden bei der Vorderseite aufgelassen, so daß die 1. Reihe eine Rückreihe = links gestrickt wird. Viel Spaß beim Stricken!

13.03.2024 - 08:03

country flag Lyne wrote:

Pour le col je ne peut reproduire le A1 en rond alors dois-je le faire en aller retour ? Merci

20.01.2024 - 20:17

DROPS Design answered:

Bonjour Lyne, pour tricoter A.1 en rond, lisez tous les rangs de droite à gauche, autrement dit, tous les rangs impairs, vous allez faire les petites torsades et tous les rangs pairs vous tricotez (2 m env, 4 m end, 2 m env. Bon tricot!

22.01.2024 - 08:48

country flag Janna wrote:

Hallo Drops, ik heb een vraag over het voorpand. Ik heb 23 steken opgenomen van de schouder en na 7 cm 4 steken gemeerderd. Nu kom ik uit op 27 steken in totaal (ipv 28). Betekent dit dat ik 5 steken in totaal moet meerderen om op 28 steken uit te komen? Bedankt!

20.01.2024 - 10:16

DROPS Design answered:

Dag Janna,

Ja, ik denk ook dat er een steek meer gemeerderd moet worden aan beide kanten. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling om te controleren, want misschien zie ik iets over het hoofd.

21.01.2024 - 11:34

country flag Roudnitska wrote:

Bonjour. J'ai assemblé le dos et devant. Et je ne comprends pas pourquoi il faut faire le 31 augmentations sur les 2 parties: la taille est beaucoup plus large que le reste du pull? En comment je reparti ces augmentations? Merci d'avance pour votre retour. Marion

10.11.2023 - 13:43

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, il faut plus de mailles pour tricoter les côtes avec les petites aiguilles que pour tricoter du jersey avec la taille au-dessus, raison pour laquelle on va augmenter pour conserver la largeur souhaitée et éviter ainsi que les côtes ne resserrent l'ouvrage. Bon tricot!

10.11.2023 - 14:13

country flag Christel wrote:

Bonjour. Pour le dos après les 82 mailles il est écrit « décaler les marqueurs de chaque côté ». Je les décale où? À combien de mailles? Je dois les mettre à une maille de chaque côté ? Merci pour votre réponse

18.10.2023 - 14:54

country flag Christel wrote:

Bonjour. Pour le dos après les 82 mailles il est écrit « décaler les marqueurs de chaque côté ». Je les décale où? À combien de mailles? Je dois les mettre à une maille de chaque côté ? Merci pour votre réponse

18.10.2023 - 14:25

DROPS Design answered:

Bonjour Christel, mettez simplement les marqueurs de chaque côté, dans la 1ère et la dernière maille, ces marqueurs vont désormais servir de repère pour mesurer la longueur de l'emmanchure. Bon tricot!

18.10.2023 - 15:56

country flag Monica Roncadin wrote:

Kunnen de patronen die top down gebreid worden ook gewoon op 2 brei naalden worden gemaakt aangezien ik problemen heb met rondbrei naalden Dank u

05.10.2023 - 17:58

DROPS Design answered:

Dag Monica,

Niet alle patronen zijn geschikt om op 2naalden te breien omdat je anders te veel steken op de naald hebt of ergens een naad moet maken, maar deze zou je wel met rechte naalden kunnen breien, waarbij je de hals op 4 sokkenbreinaalden kunt maken.

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

08.10.2023 - 16:39

country flag Danielle Llorens wrote:

Cosy by the sea

06.08.2023 - 16:22

country flag Franziska wrote:

Glacier Vest

05.08.2023 - 04:58

country flag Cheryl O'Bryan wrote:

Powder Blue Tank

03.08.2023 - 21:58