Charlier skrifaði:
Le nombre de mailles obtenus pour la taille s après l\'empiècement n\'espas exact:après les augmentations raglan,le total des mailles est de 308 mailles et non 312m.
04.07.2026 - 12:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Charlier, si vous augmentez bien comme indiqué, vous devrez passer de 120 m au montage à 312 m en augmentant ainsi: 120+30+30+28+28+38+24+24=312 mailles après l'empiècement arrondi, vous augmentez ensuite 3x8 m - soit 24 m +312=336 mailles. Bon tricot!
06.07.2026 - 07:16
Heidi skrifaði:
Liebes Drops Team, Ich stricke gerade die Rundpasse und habe die erste Reihe von Muster A1 gestrickt. Meine Frage ist: Bei der zweiten Reihe von Muster A1 ( alles rechte Maschen) werden die Umschläge verschränkt oder nicht verschränkt gestrickt ? Entstehen die Löcher auch bei verschränkt gestrickten Umschlägen, durch das zusammenstricken und der vorherigen Reihe ? Viele Grüße, Heidi
14.05.2026 - 17:54DROPS Design svaraði:
Liebe Heidi, die Umschläge im Diagram werden ganz normal gestrickt werden, da hier Löcher entstehen sollen; nur die Umschläge al Zunahmen werden verschränkt gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
15.05.2026 - 10:05
Ilse skrifaði:
Hoe brei ik de bobbel? Volgens de uitleg meerder je en minder je onmiddellijk. Volgens sommige filmpjes brei je een aantal keer de 5 steken?
21.03.2026 - 19:19DROPS Design svaraði:
Dag Ilse,
Je breit in de voorste lus van de steek, dan in de achterste lus van dezelfde steek, dan weer in dezelfde voorste en de achterste steek en tot slot nog eentje in de voorste lus van dezelfde steek. Je hebt nu 5 steken (of lussen op de rechter naald). Vervolgens haal je de tweede steek over, de derde steek haal je over, etc. totdat je nog 1 steek op de rechter naald hebt staan.
22.03.2026 - 10:04
Hélène skrifaði:
Il me semble avoir compris dans ma question on aug quand ya la flèche horizontal du rang esce bien ça merci pour la réponse
23.02.2026 - 11:51
Hélène skrifaði:
Bonjour ou est augmentation dans A1 comme on fait 2 m ensemble 1 jeté etc donc on a tjs 4 mailles ,merci
23.02.2026 - 09:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, les augmentations dans A.1 se font à intervalles réguliers à chacun des rangs indiqués par une flèche, retrouvez le nombre d'augmentations correspondant à votre taille pour chacune de ces flèches sous le paragraphe EMPIÈCEMENT. Bon tricot!
24.02.2026 - 09:23
Mireille skrifaði:
Bonjour Après a1 il en taille m il y a 344 m.Il faut diviser en 70 m 100 m,70 m et 100m pour le raglan mais il y a 4 m de trop D'avance merci
17.02.2026 - 14:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mireille, notez bien que les marqueur sont tous placés dans une maille (et pas entre les mailles), vous aurez ainsi: 1+70+1+100+1+70+1+100=344 mailles. Bon tricot!
18.02.2026 - 09:52
Ingunn skrifaði:
Glem mitt siste spørsmål jeg oppdaget feilen min rett etter publisering ..
22.08.2025 - 23:10
Ingunn skrifaði:
To spørsmål: 1) jeg sliter litt med hvordan man skal strikke boble. Skal man løfte 2.-5. maske over den første masken man strikket eller over den nærmeste på høyre pinne (altså siste man strikket)? Videoen det er linket til passer ikke overens med beskrivelsen i denne oppskrifta. 2) Maskeantallet etter endt økning i mønsteret stemmer ikke overens med maskeantallet man bruker til å sette de 4 merkene ifbm raglandøking - det er 4 masker for mye på pinnen.
22.08.2025 - 23:07DROPS Design svaraði:
Hej Ingunn. Maske 2-5 lyfter du över den sista masken du strikket. Husk att telle de 4 maskor du sätter merkene i så blir det riktigt med antal masker. Mvh DROPS Design
29.08.2025 - 07:21
Kaja skrifaði:
Supełek, który opisaliście jest zupełnie inny od supelka, ktory jest w filmie pomocniczym.
01.08.2025 - 20:47
Anne skrifaði:
Es wäre hier einfach gewesen, verkürzte Reihen zu machen, damit man einen schöner sitzenden Halsausschnitt bekommt. Ich verstehe nicht, wieso es das bei Drops nicht gibt. Dabei ist das eigentlich schon Standard in modernen Designs.
27.07.2025 - 09:33
Sun Dream Tee#sundreamtee |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-24 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). LASKALÍNA: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (laskalínulykkjur), í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er prjónaður þannig: Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-134-138-142 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-32-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 150-156-160-168-174-180 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2-3-4-4-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út um 30-32-36-40-46-48 lykkjur jafnt yfir = 180-188-196-208-220-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-6-7 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur A.1 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í A.1 þannig: Ör-1: Aukið út 28-32-36-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 208-220-232-244-260-268 lykkjur. Ör-2: Aukið út 28-32-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 236-252-264-280-296-308 lykkjur. Ör-3: Aukið út 28-30-36-44-46-52 lykkjur jafnt yfir = 264-282-300-324-342-360 lykkjur. Ör-4: Aukið út 24-30-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 288-312-330-360-378-402 lykkjur. Ör-5: Aukið út 24-32-30-32-30-34 lykkjur jafnt yfir = 312-344-360-392-408-436 lykkjur. Prjónið A.1 til loka. Stykkið mælist ca 15-16-17-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú á að auka út fyrir laskalínu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi 4 prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 64-70-74-80-80-82 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 90-100-104-114-122-134 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 64-70-74-80-80-82 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, það eru 90-100-104-114-122-134 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í 4.-4.-2.-2.-2.-2. hverri umferð alls 3-3-5-6-8-8 sinnum = 336-368-400-440-472-500 lykkjur. Prjónið áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 19-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu lykkju með prjónamerki slétt, setjið næstu 70-76-84-92-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 98-108-116-128-140-152 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 97-107-115-127-139-151 lykkjur eins og áður (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-248-272-300-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið í öllum stærðum = 196-216-236-260-288-316 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-23-24-24-24 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-48-52-56-64-72 lykkjur jafnt yfir = 240-264-288-316-352-388 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMI: Setjið 70-76-84-92-96-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-4.-2.-2.-2.-2. hverri umferð alls 4-6-9-10-11-11 sinnum = 68-70-74-80-84-88 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 11-11-9-9-8-8 cm frá skiptingu. Það eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 78-82-86-92-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 14-14-12-12-11-11 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sundreamtee eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.