DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sherwood Smiles

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, sléttprjóni og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-16
DROPS Design: Mynstur e-351
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-400-450 g litur 58, ametist

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu):
AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum, stuttu umferðirnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Afgangur af berustykki er prjónaður í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-124-134-140-148 lykkjur með DROPS Safran yfir stuttan hringprjón 2,5 og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 3,5 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm.
Nú er stroffið brotið inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem ca 4. hver lykkja er prjónuð saman með samsvarandi ca 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú er kominn tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-30-32-34-38 lykkjur jafnt yfir = 142-146-154-166-174-186 lykkjur. Síðan er prjónað A.1 hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI MEÐ ÚTAUKNINGU FYRIR AXLARSÆTI:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki að framan til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Teljið 28-29-31-32-34-37 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur frá 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 56-58-62-64-68-74 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Það eru 28-29-31-32-34-37 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (hálft bakstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt að þessum prjónamerkjum.
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan, þannig að stykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Þetta er gert jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti.

Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. prjónamerki og á EFTIR 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (2 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og á EFTIR 4. og 2. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og á EFTIR 4. og 2. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. prjónamerki og á EFTIR 4. prjónamerki (2 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón að miðju að aftan.

Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út alls 6 sinnum fyrir axlarsæti við hvert prjónamerki = 166-170-178-190-198-210 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. lykkjum hefur einungis verið fjölgað á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlalykkja verðu sá sami.
Síðan er prjónað sléttprjón í hring yfir allar lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir axlarsæti á sama hátt og áður í hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 20-22-26-28-28-28 sinnum meðtalin 6 skipti í hálsmáli = 222-234-258-278-286-298 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-7-8-9-9-9 cm frá prjónamerki framan við hálsmál.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður fram að 1. prjónamerki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 192-204-228-240-248-260 lykkjur. Haldið prjónamerkjunum í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir ermum.
Prjónið 48-51-57-60-62-65 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki, fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 96-102-114-120-124-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 48-51-57-60-62-65 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki) = 296-308-332-372-380-392 lykkjur. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING ERMAR:
Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-24-25-21-27-25 sinnum, síðan er aukið út í hverri umferð alls 0-0-5-9-0-0 sinnum = 388-404-452-492-488-492 lykkjur.
Stykkið mælist ca 20-22-25-25-26-25 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin til þannig að þau sitji í hvorri hlið á ermum (prjónamerkin sitja nú í lykkju og það eru 96-98-110-124-118-114 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í).
Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig:
Aukið út á UNDAN og á EFTIR hverju af 4 prjónamerkjunum – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú á að auka út lykkjur á framstykki, bakstykki og á ermum. Aukið svona út í hverri umferð alls 6-6-4-7-11-15 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 436-452-484-548-576-612 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-27-29-29 cm frá prjónamerki mitt að framan.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 54-57-61-67-73-80 (hálft bakstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 108-114-122-134-146-160 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-57-61-67-73-80 lykkjur (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 232-248-268-292-320-352 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til stykkið mælist 20-20-20-20-20-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 63-73-77-83-93-97 lykkjur jafnt yfir = 296-320-344-376-412-450 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 110-112-120-140-142-146 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 118-122-132-152-156-162 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 8-10-12-12-14-16 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum.
Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 106-108-116-134-136-140 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 9-8-6-6-5-5 sinnum = 88-92-104-122-126-130 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-22-36-36-38 lykkjur jafnt yfir = 78-80-82-86-90-92 lykkjur.
Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 13-12-10-10-9-9 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Þræðið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn efst á ermi. Brjótið ermakúpuna þannig til að hún passi við opið þar sem lykkjur voru felldar af á öxl. Saumið ermakúpuna við axlalykkjur sem felldar voru af. Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = útaukning fyrir öxl
symbols = útaukning fyrir ermi
symbols = útaukning á berustykki
symbols = prjónstefna
symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Vibeke wrote:

Ang bærestykkeøkning. Jeg skjønner ikke helt hvordan jeg skal finne riktig maske å sette merkene i. Skal jeg telle meg ut fra midt bak?

23.01.2024 - 22:16

DROPS Design answered:

Hei Vibeke, Du teller fra begynnelsen av omgangen, riktig antall masker og setter merket før neste masken, tell igjen riktig antall masker og setter merket før neste masken, osv. God fornøyelse!

24.01.2024 - 06:39

country flag Nettan wrote:

Hej! Stickar denna i strl S och ska snart börja göra resåren i slutet. Funderar över varför jag ska öka med hela 63maskor innan resår? Låter väldigt mycket?! På den ritande bilden ser det ut som det är väldigt rakt från ärmhålan ner till resåren!! Hur ser tröjan ut på? Bilderna visar inte riktigt detta Mvh

17.11.2023 - 15:58

DROPS Design answered:

Hei Nettan. Jo, det skal økes før man strikker vrangborden. Dette gjøres for å få en pen overgang mellom fram-og baskstykket. Når man bytter til mindre pinne str. og øker masker masker før vrangbord vil man få samme mål det er under ermhullet og vrangborden (rakt från ärmhålan ner till resåre). Om man ønsker en trangere/smalere vrangbord, man kan la være å øke masker før vrangbord, bare husk å ha et maskeantallet vrangborden går opp i. mvh DROPS Design

20.11.2023 - 09:12

country flag Margaretha wrote:

Hej! Jag stickar tröjan 239-16 på rundsticka. När jag lagt upp maskor för ärmen har jag svårt för att fortsätta sticka vidare, jag når inte fram med stickorna så jag kan fortsätta. Hur ska jag göra för att fortsätta?

16.09.2023 - 21:43

DROPS Design answered:

Hei Margaretha Kan være litt stramt men bruk en settpinne til hjelp. Strikk noen masker med en settpinne før du setter maskene på rundpinnen igjen. Vil bli lettere etter noen omganger. mvh DROPS Design

18.09.2023 - 14:22

country flag Katharine wrote:

Thank you so much for your quick answer. This is very helpful. Now I can go on knitting :)

14.09.2023 - 09:44

country flag Katharine wrote:

Hello I have again a question concerning the short rows it says in the first row - turn when 2 stitches have been worked past 2nd marker- does the increase stitch count as one and do I knit another additional stitch and then turn? And do I always repeat this the same way till row 7? Thank you once more for your help.

13.09.2023 - 23:57

DROPS Design answered:

Hi Katharine, The 2 stitches which are worked after the marker do not include the increase, and the same applies to all the short rows (so work the increase after the marker, then work 2 more stitches before turning). Happy knitting!

14.09.2023 - 06:43

country flag Katharine wrote:

Thank you very much for your quick answer. I did make a new gauge with the size 4 needles and had 24 stitches. So I decided to work with the size 4 and 3 needles as I prefer to have the pullover bigger then the size M. I'll see how it goes and hope it works out well. I've noticed that the models are different and I'm learning to look at the measurements more acurately that I then choose the correct size :)

04.09.2023 - 12:39

country flag Katharine wrote:

Hello I have a question concerning the swatch. I knitted 10 cm with the needle size 3.5 and had 26 stitches for the whidth, that means 2 stitches more then the mentioned 24 stitches. I would prefere the size M but a little bit bigger (but not the size L). What would you advise me to do? Thank you for your help.

02.09.2023 - 11:26

DROPS Design answered:

Dear Katharine, you could try using a 4mm needle, for the swatch. On another hand, with your gauge, if you work the stitches for the M size you will obtain the measurements of the L size. You can use the stitch count for the S size and you will obtain the measurements for the M size. Take into account that often, when starting to work, the gauge may vary from the initial one and will become looser. Happy knitting!

03.09.2023 - 22:57

country flag Bea wrote:

Ciao, È il mio primo progetto grande e volevo capire come seguire lo schema descritto come A. 1. Sto lavorando con i ferri circolari 2.5 e ho appena finito il bordo del collo doppio. Grazie in anticipo per l'aiuto.

30.06.2023 - 07:35

country flag Melissa wrote:

Is there a video tutorial on attaching the sleeve to the saddle shoulder? Or could you give me a bit more of a detailed instruction on how to do so? Thank you!

25.05.2023 - 19:00

DROPS Design answered:

Dear Melissa, in this video we show (for another pattern) how to work such a saddle shoulder and, from time code 4:43 how to sew the cast on stitches for sleeve onto the cast off stitches. Happy knitting!

26.05.2023 - 10:01

country flag Lina wrote:

Tips: I stedet for å felle av de 15 skuldermaskene, brukte jeg de to neste omgangene til å øke de 15 maskene til 52 masker (str M) og fulgte deretter oppskriften videre. Ble kjempefin puff, jevn og uten å måtte sy i tråd og feste til slutt.

20.04.2023 - 00:20