Claudia skrifaði:
Liebes Dropsteam, ich habe jetzt die verkürzten Reihen des Halsausschnittes gestrickt und wie erwartet 104 M. auf der Nadel. Für die Passe sollte ich jetzt 5x beidseitig der 4 markierten Maschen zunehmen und dann auf insgesamt 112 M. kommen. Wie geht das? Wenn ich jetzt 5x an jedem Markierer zunehme, sind das, laut meiner Rechnung , 40 M. mehr. Aber von 104 auf 112 wäre es doch nur eine Zunahme. Ich bin verwirrt 🤪
20.10.2026 - 15:32DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, die Zunahmen, die Sie bei den verkürzten Reihen gestrickt haben, sind in den 5 x enthalten: "Glatt rechts stricken und die Raglanzunahmen in jeder 2. Runde weiterarbeiten, bis insgesamt 5-5-5-6-7-9 x beidseitig der 4 markierten Maschen zugenommen wurde (die Zunahmen in den verkürzten Reihen einschließlich)". D.h. Sie haben tatsächlich nur noch eine weitere Zunahme-Runde, bis Sie 5 x zugenommen haben und auf die 112 Maschen kommen (4 bereits gestrickte Zunahme-Reihen + 1 neue Zunahme-Runde) . Viel Spaß beim Weiterstricken!
20.10.2026 - 20:32
Chratol skrifaði:
Bonjour, lors de la division des fentes en bas du pull, pour le devant il est indiqué de faire les augmentations avant de changer de tailles d'aiguilles. Pourtant changer avant devrait permettre un meilleur rendu. Quant au dos, il est directement question de changer de taille d'aiguille et de tricoter comme le devant, cela n'inclut donc pas les augmentations ? Pourriez vous préciser ces deux passages s'il-vous-plaît ? Merci par avance.
30.08.2026 - 16:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chratol, vous pouvez effectivement augmenter avec les aiguilles 6 si vous préférez, je transmets votre retour à nos stylistes qui feront les corrections d'usage dès que possible; merci pour votre retour. Bon tricot!
31.08.2026 - 16:26
Hanne skrifaði:
Bedankt voor het antwoord, maar mijn vraag was eigenlijk hoe ik de omslagen aan de juiste kant van de raglan brei die in de verkorte toeren voorkomen .
05.07.2026 - 14:04DROPS Design svaraði:
Dag Hanne,
Bovenaan bij de instructies staat aangegeven hoe je de omlsagen voor de raglan op de volgende breit. Het staat aangegeven voor zowel aan de verkeerde kant als aan de goede kant en voor beide kanten van de ralglan.
06.07.2026 - 20:31
Hanne skrifaði:
Halslijn, verkorte toeren: Hoe brei ik de omslagen aan de juiste kant?
04.07.2026 - 21:49DROPS Design svaraði:
Dag Hanne,
Er worden geen omslagen gemaakt tijdens het breien van de verkorte toeren. Je breit tot voorbij de steek met de markeerdraad, zoals aangegeven, dan keer je het werk en brei je terug. Eventueel kun je, direct nadat je het werk gekeerd hebt, de eerste steek afhalen, zodat het keerpunt wat minder opvalt.
05.07.2026 - 11:39
Sophie skrifaði:
Hallo, ich stricke gerade den Halsausschnitt und habe richtig große Löcher. Muss ich in jeder Reihe Maschen zunehmen? Eigentlich kenne ich das bei Raglanpullis so, dass nur in jeder 2. Runde zunahmen gestrickt werden?
17.06.2026 - 21:45DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, beim Halsausschnitt strickt man in Hin- und Rückreihen, die Raglanzunahmen sollen in jeder Reihe entstehen, dh bei den Hin- sowie bei den Rückreihen; diese Zunahmen stricken Sie wie unter RAGLANZUNAHMEN: erklärt wird, beachten Sie, daß die Umschläge nicht zu locker gearbeitet sind, damit keine Löcher entstehen. Viel Spaß beim Stricken!
18.06.2026 - 10:04
Rebekka skrifaði:
På bakstykket, skal man øke jevnt fordelt slik som på forstykket, eller skal man droppe å øke her?
13.04.2026 - 00:06DROPS Design svaraði:
Hei Rebekka, Du skal øke jevnt fordelt og strikke vrangbord slik som på forstykket. Hilsen Drops Team.
13.04.2026 - 07:14
Teresa skrifaði:
Hallo, Um auf die angegebene Maschenprobe zu kommen, muss ich Nadelstärke 9 nutzen. Allerdings werden dabei die Maschen dann viel zu groß und "löchrig". Wie kann ich das umgehen?
13.03.2026 - 12:44DROPS Design svaraði:
Liebe Teresa, um die richtigen fertigen Maßnahmen wie bei der Skizze zu bekommen, sollen Sie die richtige Maschenprobe 11 M x 15 Reihen Glattrechts = 10 10 cm haben; Sie können immer mal versuchen die Maschenprobe zu spannen, so schauen Sie,ob es mit kleineren Nadeln nach Spannen die richtige Maschenpobe bekommen. Hier lesen Sie mehr um Maschenprobe. Viel Spaß beim Stricken!
13.03.2026 - 15:42
Leonie skrifaði:
Hey, ich bin etwas unsicher, was bei der Passe unter Rumpfteil verstanden wird. In jeder 4. Reihe wird ja an allen Markierern zugenommem, in neder zweiten Reihe nur am Rumpfteil. Nehme ich dann am 1. (Rückenteil) und am 3. Markierer (Vorderteil) zu oder wie ist das zu verstehen? Vielen Dank!
08.12.2025 - 17:27DROPS Design svaraði:
Liebe Leonie, wenn man abwechslungsweise 4 und 8 Maschen zunimmt, wird man in jeder 2. Runde nur für Rücken- und Vorderteil (= vor 1. + nach 2. + vor 3. und nach 4. Markierer) zunehmen und in jeder 2. Runde wie zuvor = Rücken- / Vorderteil und Ärmel zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
09.12.2025 - 08:32
Marina skrifaði:
Ciao! Io lavoro in circolare taglia M. Nella scollatura ho ferri n. 8 da 40. Ho messo i 4 segnapunti e sono arrivata al FERRO 1, ho aumentato con i 2 gettati sui primi due segnapunti e poi 2 maglie. Non capisco cosa vuol dire girare. Come faccio a girare con i ferri circolari? E il FERRO 2 inizia anche se il primo non è finito? Non capisco... vi ringrazio per la spiegazione!
14.09.2025 - 22:55DROPS Design svaraði:
Buonasera Marina, in quel punto si lavora a ferri accorciati, come indicato nelle spiegazioni, cioè non si lavora su tutte le maglie del ferro, ma solo su quelle indicate, poi si gira il lavoro e si continua. Buon lavoro!
14.09.2025 - 22:58
Marina skrifaði:
Buongiorno. Si può lavorare con due capi di Drops Air?
19.08.2025 - 19:24DROPS Design svaraði:
Buonasera Marina, deve provare a lavorare un campione e vedere se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!
19.08.2025 - 22:36
August Sunset#augustsunsetsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-32 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið að lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með merki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll merkin (8 lykkjur fleiri). Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan / á eftir merki þannig: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð prjónaður á undan / á eftir merki þannig: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, síðan er stykkið prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-76-76-80-80 lykkjur með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir) yfir stuttan hring-prjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 8 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður þar sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá upp-fitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan. Nú eru sett 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 10-10-11-11-12-12 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-22-24-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 10-10-11-11-12-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkinu (hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 8. Byrjið mitt að aftan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu merkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. merki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá síðasta merki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu merkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu við hvert merki = 104-104-108-108-112-112 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 5-5-5-6-7-9 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með merki í (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 112-112-116-124-136-152 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 8-10-10-12-12-12 sinnum á fram- og bak-stykki (4-5-5-6-6-6 sinnum á ermum). Nú eru 160-172-176-196-208-224 lykkjur í umferð. Í stærð S og M – farðu beint áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukninu fyrir ermar er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 1-1-2-3 sinnum = 180-200-216-236 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 13-15-16-19-21-24 sinnum á fram- og bakstykki og 9-10-10-12-13-15 sinnum á ermum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 160-172-180-200-216-236 lykkjur í umferð. Prjónið slétt-prjón án útaukningar þar til stykkið mælist ca 20-22-23-26-28-30 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffið í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-26-28-31-34-37 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 32-34-34-38-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 48-52-56-62-68-74 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 32-34-34-38-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp nýjar 6-6-8-8-8-8 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 24-26-28-31-34-37 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-128-140-152-164 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið – þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota merkiþræðina þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 16-16-17-16-16-16 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við merkiþræðina. Setjið 54-58-64-70-76-82 lykkjur frá bakstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan yfir lykkjur á framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 54-58-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 70-74-82-90-98-106 lykkjur. Prjónið stroff frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið 54-58-64-70-76-82 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 6 og prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Setjið 32-34-34-38-40-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-40-42-46-48-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur. Byrjið við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-5½-4-3-2½-2 cm millibili alls 4-4-5-6-7-8 sinnum = 30-32-32-34-34-36 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-27-26-24-23-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-8-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #augustsunsetsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.