Lorena Virlinzi skrifaði:
Buonasera ho un dubbio che riguarda lo sprone taglia S: che significa: “AUMENTO 2: Lavorare A.3 sulle prime 0-7-7-14-14-0 maglie” ? Per la taglia S non si deve fare alcun aumento ? Poi si farà solo A2? A3 fra i 2 A2? Grazie mille
20.01.2025 - 18:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Lorena, è corretto. Buon lavoro!
21.01.2025 - 22:59
Ruth Hermann Iversen skrifaði:
Finnes denne oppskriften på norsk?
13.08.2024 - 10:55
Henriette skrifaði:
Wow smuk farve. Jeg vil SÅ gerne kunne bruge denne farve i en vest. Kan du anbefale en af jeres vest opskrifte, som kan benyttes af en tråd Air og to tråde Kid-silk, så jeg kan benytte den flotte farve i en vest? Mvh Henriette
18.10.2023 - 23:19DROPS Design svaraði:
Hej Henriette, du kan strikke alle veste med samme strikkefasthed som i denne kombination. Se her 11 masker eller 12-13 masker Hold strikkefastheden som står i opskriften for at få korrekt størrelse :)
20.10.2023 - 11:01
Anett skrifaði:
Kan denne strikkes i to tråder Brushed Alpaca Silk? Jeg forstår at oppskriften er 1 tråd gruppe C og 2 tråder gruppe A, og Brushed Alpaca Silk blir da to tråder gruppe C, men vil dette egentlig ha stor betydning for sluttresultatet dersom jeg følger oppskrift? Takknemlig for svar.
04.08.2023 - 07:20DROPS Design svaraði:
Hej Anett, ja du kan strikke med 2 tråder Brushed Alpaca Silk, men sørg for at du får den strikkefasthed som står i opskriften (da vil du få målene ifølge måleskitsen nederst i opskriften) :)
10.08.2023 - 13:33
Katarína Fejfarova skrifaði:
Môžte mi poradiť,koľko je spotreba vlny na pulóver S?dakujem
19.03.2023 - 16:43DROPS Design svaraði:
Dobrý deň, Katarína, spotreba priadze je uvedená v hornej časti návodu - pre veľkosť S budete potrebovať 250 g DROPS AIR a 150 g DROPS KID-SILK. Veľa šťastia!
19.03.2023 - 16:55
Jacqueline Moore skrifaði:
Hi - which colours are used in the picture of Mellow Mint on the webpage?
08.03.2023 - 00:37DROPS Design svaraði:
Hi, we use DROPS AIR, colour 01, off white + DROPS KID-SILK, colour 48, parrot green, held together. Happy knitting!
08.03.2023 - 05:16
Jacqueline Moore skrifaði:
How much yarn would I need if I knitted this pattern, Mellow Mint, with a Group E yarn? Thanks.
06.03.2023 - 01:05DROPS Design svaraði:
Hi Jacqueline, You will need to add together the weights of the 2 yarn qualities given and use this weight for a yarn from group E. Happy crafting!
06.03.2023 - 07:13
Anette Brandt Schmidt skrifaði:
Green Green Grass
22.01.2023 - 11:52
Dropdomino skrifaði:
Sea wave
20.01.2023 - 09:12
Therese skrifaði:
Apple blossom
19.01.2023 - 23:56
Mellow Mint#mellowmintsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og klauf í hlið. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-14 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-68-68-72-76 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-7-12-13-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 65-70-75-80-85-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki, aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 alls 13-14-15-16-17-18 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 91-98-105-112-119-126 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 9-10-10-11-12-13 cm frá prjónamerki. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.3 yfir fyrstu 0-7-7-14-14-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 42-42-42-42-42-60 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 7-0-7-0-7-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 42-42-42-42-42-66 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 0-7-7-14-14-0 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka, eru 121-130-139-148-157-168 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 14-16-17-19-20-22 cm frá prjónamerki. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.3 yfir fyrstu 0-7-0-7-0-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 54-48-66-60-78-84 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 7-14-7-14-7-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 60-54-66-60-72-84 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 0-7-0-7-0-0 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka, eru 161-172-185-196-209-224 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-25-27-29-32-34 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 33-35-38-40-40-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 47-51-55-58-65-69 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 33-35-38-40-40-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 24-26-27-29-32-35 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 107-114-125-132-145-154 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-8-8 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 16 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin = 53-57-63-66-73-77 lykkjur á framstykki og 54-57-62-66-73-77 lykkjur á bakstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig, þannig að það verði klauf í hvorri hlið. FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-25-27-28-29-33 lykkjur jafnt yfir = 74-82-90-94-102-110 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, * prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 14 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-25-28-28-29-33 lykkjur jafnt yfir = 74-82-90-94-102-110 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroff alveg á sama hátt og á framstykki. ERMI: Setjið 33-35-38-40-40-43 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 39-41-46-48-48-51 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-8 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 5-5-7-7-7-8 sinnum = 29-31-32-34-34-35 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 26-24-23-22-20-18 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 14 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-13-12-14-14-17 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mellowmintsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.