Hanna skrifaði:
Ja robię ten sweter ze ściągaczem 2x2 z wełny Alpaca. Teraz ma zamykać oczka nad ściągaczem Jak to zrobić aby było ładnie. Czy zamykać na prawych czy lewych oczkach wg wyliczonej ilości do zamknięcia. Czy oczka prawe mają być przekręcone. ?Próbowałam już ale wychodzi nieładnie, są dziury..Już jedno pytanie dzisiaj napisałam. Pozdrawiam.
10.02.2024 - 17:36DROPS Design svaraði:
Witaj Haniu, ładniej będzie to wyglądać, gdy będziesz zamykać oczka lewe, przerabiając 2 oczka lewe razem na lewo. Film pomocniczy znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!
13.02.2024 - 09:48
Hanna skrifaði:
Proszę o informację. Robię ten sweter w rozm.L. Jakie powinno być szerokie ramię . Czy na schemacie 16 cm dotyczy podkroju na plecach? Hanna
10.02.2024 - 14:39DROPS Design svaraði:
Witaj Haniu, 16 cm to szerokość dekoltu. Szybkie obliczenie: 55-16=39/2= 19,5 cm. Czyli szerokość ramienia wynosi 19,5 cm. Pozdrawiamy!
13.02.2024 - 09:51
Hanna skrifaði:
Robię drugi sweter z Waszego wzoru. Mam cieńszą włóczkę niż w oryginale. Robię rozmiar L, druty nr 6 i 5. Na podstawie próbki robionej ściągaczem wyliczyłam, że potrzebuję 133 oczka na ściągacz aby uzyskać 57 cm szerokości. Nie wiem ile oczek powinnam zamknąć w momencie przerabiania powyżej ściągacza ściegiem dżersejowym? Proszę o pomoc. Hanna
12.01.2024 - 09:41DROPS Design svaraði:
Haniu, musisz ustalić jaką szerokość ma mieć Twój sweter, wykonać próbkę dżersejem na drutach, których będziesz używać, i na podstawie próbki wyliczyć liczbę potrzebnych oczek. Wtedy odejmij tą liczbę od 133 oczek początkowych i będziesz wiedzieć ile oczek zamknąć w pierwszym rzędzie dżersejem. Zobacz też kurs DROPS TUTAJ. Pozdrawiamy!
12.01.2024 - 10:47
Zuzana skrifaði:
Ľahký zrozumiteľný návod, pekný svetrík, rýchlo hotový, urobil radosť. Len tá spotreba vyšla tesne.
03.03.2023 - 19:13
Liv skrifaði:
Der er ikke nogle mål ift. hvad størrelse man skal vælge? Overvidde ig længde osv.? 🥹
17.02.2023 - 22:22DROPS Design svaraði:
Hej Liv, jo du finder måleskitsen nederst i opskriften. Brystvidde i den mindste størrelse er 45 x 2 = 90 cm
23.02.2023 - 15:00
Elena Anzari skrifaði:
There are not many patterns for white Big Merino and this one is gorgeous! I appreciate the V neck.
06.08.2022 - 14:53
Country Cream#countrycreamsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði Big Merino / 1 þræði DROPS Alaska. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 236-35 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-89-95-103-113-125 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 14 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 21-23-25-27-29-33 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 60-66-70-76-84-92 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 56-62-66-72-80-88 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-22-23-26-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm = 60-66-70-76-84-92 lykkjur. Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 27-30-32-35-39-43 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkju í garðaprjóni, snúið. Setjið síðustu lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (hægri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. VINSTRI ÖXL (framstykki): Lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg! Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok umferðar frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í öðrum hverjum cm alls 9-9-10-10-11-11 sinnum (fyrsta úrtaka er gerð þegar framstykkið skiptist). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi hefur verið gerð til loka eru 19-22-23-26-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (framstykki): Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 30-33-35-38-42-46 lykkjur. Lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg! Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun umferðar frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í öðrum hverjum cm alls 9-9-10-10-11-11 sinnum. ATH! Fyrsta úrtaka er gerð í fyrstu umferð sem er prjónuð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi hefur verið gerð til loka eru 19-22-23-26-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 60-62-64-70-72-76 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 16-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-52-54-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 17-17-16-16-15-14 cm millibili alls 3 sinnum = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Þegar ermin mælist 50-48-48-47-44-42 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá prjónamerki mitt undir ermi) á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 52-50-50-49-46-44 cm, þ.e.a.s. það er 2 cm klauf efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en látið neðsti 14 cm vera opna = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að aftan með hringprjón 5,5 og 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið upp ca 84 til 104 lykkjur í kringum hálsmál – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið af að það komi 1 lykkja slétt mitt að framan. JAFNFRAMT í hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttri lykkju mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmáið til með að leggjast fallega í hálsi og slétta lykkjan kemur til með að fylgja með sem bein lína mitt að framan. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countrycreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.