Nathalie Lavallee skrifaði:
Thank you for your answer! To make sure I understand correctly, when the pattern says to increase raglan for the front and back pieces, I need to yo before marker 1, after marker 2, before marker 3 and after marker 4? and for the sleeves, yo after marker 1, before marker 2 and after marker 3 and before marker 4? Thank you!
04.01.2023 - 14:31DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lavallee, when increasing 8 sts on every row from RS you will increase on each side of each marker, then when increasing alternately 4 and 8 sts: increase first 4 sts on body only (1 on each front piece + 1 on back piece as you wrote) then on next row from RS increase 8 sts as before. Hope it will help. Happy knitting!
04.01.2023 - 15:14
Nathalie Lavallee skrifaði:
Hello, In order to repeat the pattern after the initial 30 rows, when the diagrams end, how do we proceed as far as A.1? I understand I need to alternate between 1 and 3 stitches at the beginning of a row. But I'm not clear as to how to proceed with the cable stitches : how do I alternate between the stitches in behind and in front of the piece? thank you! Nathalie
04.01.2023 - 01:29DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lavallee, you will have to work 1 extra cable before the previous one in height (since you have now enough stitches) and 1 extra cable after the previous one (since you have now enough stitches), so repeat the 2 cable rows making sure the cables are always lined up. Happy knitting!
04.01.2023 - 09:24
Nathalie skrifaði:
Hello, Can you please clarify the following from the pattern ? «Then continue to increase for raglan, but every other increase is only on the front and back pieces (4 stitches increased) every 4th row on the sleeves. Which stitches and raglan correspond to the front and back pieces and which ones correspond to the sleeves? (I am new at this!) thank you!
04.01.2023 - 01:06DROPS Design svaraði:
Dear Nathalie, the stitches between markers 1 and 2 are for the first sleeve and the stitches between marker 3 and 4 are for the 2nd sleeve. The stitches on left front piece are the one before the marker-1, the stitches on back piece are between marker 2 and 3 and the stitches on right front piece are after marker 4. Happy knitting!
04.01.2023 - 09:19
Denise Chassagne skrifaði:
Bonjour Dans la présentation de l'ouvrage il est écrit gilet sans manche alors que ce modèle a des manches. Ce gilet sera mon prochain ouvrage. Merci pour vos modèles gratuits.
06.09.2022 - 07:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chassagne et merci pour votre retour, la correction est faite. Bon tricot!
06.09.2022 - 09:33
Sylvie skrifaði:
Merci pour votre réponse
05.09.2022 - 15:09
Sylvie skrifaði:
Bonjour J'ai l'impression que dans les diagrammes il manque des jetés. Merci
03.09.2022 - 18:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, les augmentations des raglans ne figurent pas dans les diagrammes A.1, A.2, A.4, A.5, ces jetés se font conformément aux explications écrites, et se tricotent au rang suivant comme indiqué par les différents diagrammes. Bon tricot!
05.09.2022 - 09:09
Uschi skrifaði:
Ist das Modell auf dem Foto mit der Drops Sky und dem Kidsilk oder mit dem Drops Merino Extrafine und Kidsilk gestrickt?
02.09.2022 - 13:48DROPS Design svaraði:
Liebe Uschi, im Foto ist das Modell mit Sky und Kid-Silk gestrickt. Viel spaß beim stricken!
02.09.2022 - 15:21
Leora Noam skrifaði:
Honeycomb cardi
08.08.2022 - 11:50
Dagmar skrifaði:
Honey in the morning
08.08.2022 - 09:38
Peggi skrifaði:
Cozy
06.08.2022 - 16:50
Northern Mermaid Cardigan#northernmermaidcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky / DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, V-hálsmáli og býkúpumynstri. Stærð XS/S - XXXL.
DROPS 236-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónast í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu á undan / á eftir 4 lykkjur með prjónamerki (í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á eftir kant að framan í byrjun á umferð / á undan kanti að framan í lok umferðar. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN KANTI AÐ FRAMAN: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR KANTI AÐ FAMAN: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3-3-4-4-4-4 næstu hnappagötum með 9-10-7-7½-6½-7 cm millibili. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Byrjið með að prjóna 2 lausa kanta að framan í garðaprjóni – það á að sauma þá síðar við hálsmál aftan í hnakka. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp á milli þessa tveggja kanta að framan í garðaprjóni fyrir öxl og hálsmál aftan í hnakka. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7-7-7-9-9-9 lykkjur á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til kantur að framan mælist 11-11-12-12-14-14 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Geymið stykkið. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7-7-7-9-9-9 lykkjur á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið garðaprjón, þar til kantur að framan mælist 11-11-12-12-14-14 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, ekki klippa þráðinn. Fitjið nú upp 60-60-66-66-72-72 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið síðan 7-7-7-9-9-9 lykkjur frá hægri kanti að framan slétt = 74-74-80-84-90-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-30-36-36-42-42 lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 8-8-8-10-10-10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, aukið út um lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 1. prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar í sléttprjóni), A.2, A.4, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2. prjónamerki, A.2, prjónið A.3 alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, A.4, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 3. prjónamerki, A.2, A.4, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 4. prjónamerki, A.5, aukið út um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli, 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka jafnframt því sem útaukningar fyrir laskalínu og v-hálsmáli heldur áfram eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu (8 lykkjur fleiri) alls 19-19-19-25-22-26 sinnum, meðtaldar útaukningar í fyrstu umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá MYNSTUR í útskýringu að ofan. Síðan heldur útaukning áfram fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð(í hverri umferð frá réttu) og á ermum í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu). Aukið svona út alls 12-18-18-12-18-30 sinnum á framstykki/bakstykki (6-9-9-6-9-15 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 31-37-37-37-40-46 sinnum á framstykki/bakstykki og 25-28-28-31-31-31 sinnum á ermum. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við kanta að framan í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, ásamt útaukningu í fyrstu umferð. Síðan er aukið út í 4. hverri umferð alls 12-12-15-15-18-18 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 328-364-376-392-416-440 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 23-27-28-29-31-34 cm frá uppfitjunarkanti aftan í hnakka – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í síðustu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur með því að prjóna lykkjur með prjónamerki í þannig: 2. og 4. prjónamerki: Prjónið lykkju með prjónamerki snúna slétt saman með næstu lykkju. 1. og 3. prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Nú eru 324-360-372-388-412-436 lykkjur í umferð. Í næstu umferð (ranga) skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 54-60-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (hægra framstykki), setjið næstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-60-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki). Stykkið mælist ca 26-30-31-32-34-37 cm frá öxl. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig – héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-232-256-272-296-332 lykkjur. Prjónið mynstur þannig: 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, prjónið A.3 þar til 8-8-8-10-10-10 lykkjur eru eftir í umferð, (haldið áfram með mynstur beint yfir lykkjur frá berustykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón, 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 26-24-25-26-26-25 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-22-22-22-25-31 lykkjur jafnt yfir = 189-210-234-250-271-301 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8-8-8-10-10-10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 62-68-68-74-74-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-10-16-16-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 4-4-10-16-16-22 lykkjur. Haldið áfram með A.3 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur frá berustykki). Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-5½-3½-2½-2½-1½ cm millibili alls 6-6-9-12-12-15 sinnum = 54-60-60-66-66-66 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til ermin mælist ca 38-35-34-34-31-29 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.3 og prjónið e.t.v. sléttprjón að réttu máli. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-41-40-40-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman kanta að framan mitt aftan í hnakka, saumið síðan saman við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernmermaidcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.