DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19052.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Northern Mermaid Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Sky / DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og býkúpumynstri. Stærð XS/S - XXXL.

DROPS 236-6
DROPS Design: Mynstur sk-176
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
Liturinn / gæðin sem notað er í peysu á mynd:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-450-500 g litur 03, grá þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-225-225 g litur 38, krít

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-650-700-750-850-900 g litur 08, ljós beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-225-225 g litur 38, krít

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
21 lykkja á breidd og 27 umferðir á hæð með býkúpumynstri og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19052.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónast í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu á undan / á eftir 4 lykkjur með prjónamerki (í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið síðan útauknar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er að ofan.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-87-90-93-96-99 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-13-22-19-28-25 lykkjur jafnt yfir = 100-100-112-112-124-124 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar).
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 18 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-30-36-36-42-42 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 30-30-36-36-42-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki).

Fyrsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja sléttprjón (lykkja með 1. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2. prjónamerki (lykkja með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni), A.1, prjónið A.2 alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 3. prjónamerki (lykkja með prjónamerki er prjónuðu í sléttprjóni), A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 4. prjónamerki (lykkja með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni), A.1, prjónið A.2 alls 3-3-4-4-5-5 sinnum), A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu á undan 1. prjónamerki.
Haldið svona áfram með mynstur jafnframt því sem útaukning heldur áfram eins og útskýrt er að neðan – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 13-13-13-19-16-10 sinnum, meðtalin útaukning í fyrstu umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá MYNSTUR í útskýringu að ofan = 204-204-216-264-252-204 lykkjur.
Síðan heldur útaukning áfram fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út alls 18-24-24-18-24-36 sinnum á framstykki/bakstykki (9-12-12-9-12-18 sinnum á ermum).
Nú hefur verið aukið út alls 31-37-37-37-40-46 sinnum á framstykki/bakstykki og 22-25-25-28-28-28 sinnum á ermum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 312-348-360-372-396-420 lykkjur í umferð.
Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 23-27-28-29-31-34 cm mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 4 lykkjur með því að prjóna lykkjur með prjónamerki í þannig:
2. og 4. prjónamerki: Prjónið lykkju með prjónamerki snúna slétt saman með næstu lykkju.
1. og 3. prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Nú eru 308-344-356-368-392-416 lykkjur í umferð.

Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (bakstykki).
Stykkið mælist ca 27-31-32-33-35-38 cm frá öxl.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig – héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-216-240-252-276-312 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur frá berustykki).
Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-23-24-25-25-24 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.2.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-21-21-21-24-30 lykkjur jafnt yfir = 177-195-219-231-252-282 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 62-68-68-74-74-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-10-16-16-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-90-90-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 4-4-10-16-16-22 lykkjur.
Haldið áfram með A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur frá berustykki).
Þegar stykkið mælist 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-5-3-2½-2-1½ cm millibili alls 6-6-9-12-12-15 sinnum = 54-60-60-66-66-66 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist ca 34-31-31-30-29-26 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.2. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 40-37-37-36-35-32 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Lizette wrote:

Når raglan går til hver 2. Omgang udt ved for/bagstykke og hver 4. Omgang udt både ærme og for/bagstykke, synes jeg ikke det er tydeligt hvordan mønsteret skal implicered Det ville være fint med et diagram som følger én helt igennem raglan delen.

21.01.2024 - 10:26

country flag Caro wrote:

Buen día: Quería avisar de un error en la cantidad de puntos que debo aumentar al finalizar el cuello. Dice de aumentar 13 puntos para que de un total de 100, pero luego al colocar los marcadores resultan ser sólo 96 (18 + 30 + 18 + 30). ¿No sería correcto aumentar sólo 9 puntos? Estoy probando esa opción. ¡Gracias!

22.05.2023 - 16:54

country flag Rebecca wrote:

This shows two colors used, and to cast on with two colors, but there isn't any mention of a MC or CC; where does the CC come in, and why/where is it used?

31.01.2023 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, the whole jumper is worked with 2 strands held together as there were just one, so that you will work with 1 yarn each quality (Sky + Kid-Silk or Merino Extra Fine + Kid-Silk). Just remember to check your gauge (read more here). Happy knitting!

31.01.2023 - 17:05

country flag Hellu wrote:

I can’t see the pattern grid photos in Finnish version. :-( Could you please reupload those, thanks?! :)

23.01.2023 - 15:24

DROPS Design answered:

The charts will open now.

23.01.2023 - 18:13

country flag Inger Hurum wrote:

Modell sk-176 forklarer om kast mellom 2masker. Men det er ikke tegnet inn noen kast her 😏

21.10.2022 - 07:52

DROPS Design answered:

Hej Inger, nej det har du ret i, vi skal høre med design, så bliver symbolen sikkert fjernet. Tak for info :)

25.10.2022 - 12:20

country flag Lisette Moormann wrote:

Er wordt, i.t.t. wat ik ik gewend ben, helaas geen maat-tekening van dit model gegeven. Indien het er wel is, zou u me dat dan kunnen toesturen? Bij voorbaat dank. Groetjes Lisette

07.10.2022 - 17:43

DROPS Design answered:

Dag Lisette,

Onderaan de beschrijving van het patroon en onderaan de telpatronen kun je een maattekening vinden. (Misschien werd deze afbeelding niet goed geladen om het moment dat het patroon bekeek.

08.10.2022 - 16:27

country flag Sylvie wrote:

Merci pour votre réponse

05.09.2022 - 15:10

country flag Sylvie wrote:

Bonjour J'ai l'impression que dans les diagrammes il manque des jetés. Merci

03.09.2022 - 18:50

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, les augmentations des raglans (jetés) ne figurent effectivement pas dans les diagrammes, ces jetés doivent être faits comme indiqué dans les explications du pull, et se tricotent ensuite comme indiqué par les diagrammes A.1 et A.3. Bon tricot!

05.09.2022 - 09:11

country flag Krám Edit wrote:

Üdvözlöm! A ráhajtást nem találom a diagrammban.

01.09.2022 - 13:19

country flag Rikke Møller Hansen wrote:

Mangler der ikke markering af omslagene i mønsteret??

30.08.2022 - 10:55